Efnahags- og viðskiptanefnd vill hækka sóknargjöld um mörg hundruð milljónir

Til stóð að taka til baka tíma­bundna hækkun á sókn­ar­gjöldum á fjár­lögum í ár. Bisk­ups­stofa tók það óstinnt upp og sagði trú­frelsi í land­inu stefnt í hættu. Efnahags- og við­skipta­nefnd hefur ákveðið að hækka sókn­ar­gjöldin aftur.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ásamt Agnesi M. Sigurðardóttur, biskup Íslands.
Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, ásamt Agnesi M. Sig­urð­ar­dóttur, biskup Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Í áliti meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar um svo­kall­aðan band­orm, frum­varp um breyt­ingu á ýmsum lögum vegna fjár­laga 2022, kemur fram að hann leggi til að sókn­ar­gjöld verði hækkuð í 1.107 krónur á ári árið 2022.

Meiri­hlut­inn sam­anstendur af þing­mönnum stjórn­ar­flokk­anna: Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks.

Í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar var lagt til að sókn­ar­gjöld, lög­boðið fram­lag til sókna þjóð­kirkj­unnar og ann­arra trú­fé­laga, myndu verða 985 krónur á mán­uði fyrir hvern skráðan ein­stak­linga 16 ára og eldri á næsta ári.

Hefði það gengið eftir myndi sókn­ar­gjaldið lækka úr 1.080 krónum á þessu ári og sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu áttu sókn­ar­gjöld alls að verða 2.757 millj­ónir króna á árinu 2022. Það er um 215 millj­ónum krónum lægri upp­hæð en á að fara í sókn­ar­gjöld í ár.

Nú hefur þeirri ákvörðun verið snúið. Því mun kostn­aður rík­is­sjóðs vegna greiðslu sókn­ar­gjalda aukast um meira en hálfan millj­arð króna frá því sem stefnt var að í fjár­laga­frum­varp­inu.

Söfnuðir teljast ekki lengur traustir viðskiptamenn

Í umsögn bisk­ups­stofu um band­orm­inn var fyr­ir­ætl­unum um að lækka sókn­ar­gjöldin harð­lega mót­mælt.

Þar ​​sagði að þetta myndi leiða til þess að trú­fé­lög lands­ins myndu „enn eitt árið verða fyrir for­dæma­lausu tekju­falli þar sem tekj­urnar verða nú aðeins um 51 pró­sent af því sem vera ætti skv. lögum um sókn­ar­gjöld. Hefði því sann­ar­lega mátt ætla að hér væri ekki síður til­efni til björg­un­ar­að­gerða en nú eru uppi gagn­vart ýmsum öðrum aðilum í þjóð­fé­lag­inu.“

Bisk­ups­stofa heldur því fram að ef lögum um sókn­ar­gjald yrði fram­fylgt væri það 1.915 krónur og segir að upp­söfnuð skerð­ing þess á síð­ustu 14 árum sé 19 millj­arðar króna. „Og nú er jafn­vel svo komið, að sókn­irnar fá varla lán eða aðra fyr­ir­greiðslu, eins og t.d. skuld­breyt­ingar, í við­skipta­bönk­unum þar söfn­uð­irnir telj­ast ekki lengur traustir við­skipta­menn vegna bágs fjár­hags. Það má því segja að þeim séu nú allar bjargir bann­aðar. Margoft hefur verið við því varað á liðnum árum, að í þessar aðstæður stefndi, en við­brögð stjórn­valda verið lítil sem engin.“

Trúfrelsi á Íslandi í hættu

Í umsögn­inni, sem Pétur Markan bisk­u­prit­ari skrifar, sagði að það þyrfti að lág­marki að hækka sókn­ar­gjöldin upp í það sem þau voru í ár að við­bættri þeirri hækkun sem hefði átt að verða milli áranna 2021 og 2022. Þá færi sókn­ar­gjaldið upp í 1.171 krónur og fram­lagið myndi hækka um 275 millj­ónir króna.

„Því vart verður því trúað, að stjórn­völd ætli sér í alvöru að leggja starf­semi trú­fé­lag­anna end­an­lega í rúst eins og nú virð­ist stefna í og stefna með því trú­frelsi á Íslandi í hættu!,“ skrif­aði Pétur og bætti við að sóknir lands­ins bæru „uppi sál­gæslu­starf, mann­úðar og vel­ferð­ar­starf, barna og æsku­lýðs­starf, eldri­borg­ara­starf, messu­hald, and­legt rækt­ar­um­hverfi og menn­ing­ar­starf vítt í kringum landið. Sóknir lands­ins eru hryggja­stykkið í fjöl­mörgum sam­fé­lögum, and­legt líf, sál­gæsla og menn­ing­ar­vett­vangur fólks­ins, sem greiðir sókn­ar­gjald fyrir þessa þjón­ustu.“

Efnahags- og við­skipta­nefnd varð við kröfu bisk­ups­stofu að mestu og hefur ákveðið að hækka sókn­ar­gjaldið á næsta ári í 1.107 krónur.

Rúm­lega 60 pró­sent eru í þjóð­kirkj­unni

Alls áttu 7.951 millj­ónir króna að fara í mála­flokk­inn trú­mál á næsta ári sam­kvæmt fjár­lög­um. Ljóst er að sú tala mun hækka en umtals­vert. Til við­bótar við aukin sókn­ar­gjöld ákvað meiri­hluti fjár­laga­nefndar að leggja til að yrði verði fjár­heim­ild sem nemur 129,6 millj­ónum króna til Þjóð­kirkj­unnar vegna launa- og verð­lags­bóta árs­ins 2022. Í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans segir að „leið­rétt­ing þessi er til þess að upp­fylla samn­ing íslenska rík­is­ins og Þjóð­kirkj­unnar sem var óbættur við gerð fjár­laga.“

Í sam­ræmi við nýjan við­bót­ar­samn­ing um end­­ur­­skoðun á kirkju­jarð­­ar­­sam­komu­lag­inu frá 1997 og samn­ingi um rekstr­­ar­­kostnað kirkj­unnar frá 1998 sem var und­ir­rit­aður fyrir rúmum tveimur árum fær þjóð­kirkjan þorra þeirrar upp­hæðar sem sett er í mála­flokk­inn trú­mál. Árlega fær hún fram­lög frá rík­­inu á grund­velli kirkju­jarða­­sam­komu­lags­ins sem og fram­lög sem renna til Kirkju­­mála­­sjóðs og Jöfn­un­­ar­­sjóðs sókna.

Í kirkju­jarða­sam­komu­lag­inu fólst að ríkið yfir­tók hund­ruð jarða sem kirkjan átti upp­haf­lega, gegn því að greiða laun presta.

Til við­­bótar fær þjóð­­kirkjan greidd sókn­­ar­­gjöld og ef miðað er við að 61,1 pró­sent íbúa lands­ins til­heyra henni sam­kvæmt nýj­ustu birtu tölum Þjóð­skrár þá má ætla að hlut­deild þjóð­kirkj­unnar í útgreiddum sókn­ar­gjöldum verði á næsta ári verði tæp­lega 1,9 millj­arðar króna. Önnur trú­fé­lög skipta svo á milli sín rúm­lega 1,2 millj­arði króna.

Rúmur helm­ingur vill aðskilnað

Kjarn­inn greindi frá því í síð­asta mán­uði að ein­ungis 15 pró­­sent lands­­manna eru ánægð með störf Agn­­esar M. Sig­­urð­­ar­dótt­­ur, bisk­­ups Íslands, sam­­kvæmt nýjum þjóð­­ar­púlsi Gallup.

[Þriðj­ungur lands­­manna, alls 33 pró­­sent, sögð­ust treysta þjóð­­kirkj­unni en 36 pró­­sent treystu henni ekki. Þetta eru svipuð hlut­­föll og hafa verið á und­an­­förnum árum þegar spurt hefur verið um traust til kirkj­unn­­ar.

Alls sögð­ust 51 pró­­sent lands­­manna að þeir vildu aðskilnað ríkis og kirkju. Hlut­­fallið lækk­aði lít­il­­lega frá árinu 2019 þegar 55 pró­­sent sögð­ust á þeirri skoðun en það hefur verið yfir 50 pró­­sent í næstum árlegum könn­unum Gallup frá árinu 2007.

Í þjóð­­ar­púls­inum sást að fólk undir fer­tugu er helst hlynnt aðskiln­að­i.

Telur sam­komu­lagið kosta ríkið yfir 100 millj­arða

Sig­geir F. Ævars­son, fram­kvæmda­stjóri lífs­skoð­un­ar­fé­lags­ins Sið­mennt­ar, skrif­aði grein á Vísi fyrir tæpum mán­uði síðan þar sem hann færði rök fyrir því að kirkju­jarða­sam­komu­lagið frá 1997 væru óhag­stæð­ustu samn­ingar Íslands­sög­unn­ar. Hann sagði að þeir myndu að end­ingu kosta ríkið yfir 100 millj­arða króna og skila litlu sem engu til baka.

Í grein Sig­geirs sagði að fast­eigna­mat þeirra kirkju­jarða sem væru enn í eigu rík­is­ins væri undir 2,8 millj­örðum króna. Upp­reiknað virði þeirra jarða sem hefðu verið seldar væri um 4,2 millj­arða króna. Því væri upp­reiknað heild­ar­viðir jarð­anna um sjö millj­arðar króna. Það er minna en sam­an­lagðar heild­ar­greiðslur rík­is­sjóðs til þjóð­kirkj­unnar á árunum 2021 og 2022.

Sig­geir sagði í grein sinni að þegar sam­komu­lagið væri á enda runnið væri ríkið búið að greiða vel yfir 100 millj­arða króna fyrir jarð­irn­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár