Geðklofinn afhjúpaður

Reynir Trausta­son skrifar bóka­dóm um Hin hálu þrep Bjarna Bern­harðs.

Fjórar stjörnur
Hin hálu þrep
Bjarni Bern­harður
Útgef­andi: Ego­út­gáfan
181 blað­síða

Lista­mað­ur­inn Bjarni Bern­harður á að baki verri lífs­reynslu en flestir. Hann hefur glímt við fíkn og svo geð­veiki frá unga aldri, sem leiddi til þess að hann varð manni að bana. Sá atburður hefur fylgt honum eins og skugg­inn síðan. 

Bjarni hefur fyrir löngu náð tökum á lífi sínu. Hann er list­mál­ari og ljóð­skáld. Margir þekkja hann úr mið­borg Reykja­víkur þar sem hann selur verk sín og spjallar við gesti og gang­andi. 

Eftir að hafa skrifað fjölda ljóða­bóka ákvað Bjarni að skrá lífs­sögu sína. Og það er óhætt að segja að honum hafi tek­ist vel upp. Hann segir frá lífi sínu af mis­kunn­­ar­lausri ein­lægni. Bjarni var sjó­maður og fjöl­skyldu­faðir framan af full­orð­ins­árum. Hann átti í róst­ur­sömu sam­bandi við konu sína og þau skildu. Hann segir frá drykkju sinni og neyslu hug­víkk­andi efna sem lit­uðu smám saman allt hans líf. Frá­sögnin er í senn slá­andi og upp­lýsandi. Les­and­inn fylgir Bjarna um brautir sem leiða hann til geð­veiki. Nærtækt er 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár