Nýjasta eintak Charlie Hebdo komið út, Múhameð á forsíðunni

Nýjasta eintak franska skop­mynda­blaðsins Charlie Hebdo kom úr prentun í morgun og er nú til sölu víða um heim. Á forsíðunni er, eins og við var búist, skopmynd af Múhameð spámanni þar sem hann heldur á skilti með frasanum „Je suis Charlie" (Ég er Charlie). Fyrir ofan myndina stendur „Tout est pardonné" (allt er fyrir­gefið).

Renald Luzier, skopmynda­teiknarinn sem teiknaði forsíðuna, sést hér að neðan tárvotur útskýra hvernig hún varð til.


https://www.youtube.com/watch?v=ZrKN3HDBqKA

Blaðið er gefið út í þremur milljónum eintaka, en venjulegt upplag þess er 60 þúsund eintök. Það er einnig gefið út á sex tungu­málum. Blöð voru prentuð á frönsku, ítölsku og tyrknesku auk þess sem útgáfur á ensku, spænsku og arabísku er að finna á netinu.

Nýtt myndband af Kouachi-bræðrunum

Hryðjuverka­árásirnar sem framdar í París í síðustu viku eru þær mann­skæðustu sem hafa átt sér stað í Frakk­landi frá árinu 1961, en þá stóð Alsírska stríðið yfir. Árásirnar hófust á miðvikudag, fyrir einni viku síðan, þegar ráðist var inn í höfuð­stöðvar skop­mynda­ritsins Charlie Hebdo. Þar voru tveir lögreglu­menn og tíu starfs­menn blaðsins myrtir. Árásar­mennirnir voru tveir bræður, Said Kouachi og Cherif Kouachi. Þeir réðust sérstak­lega á blaðið, og ákveðna starfs­menn þess, vegna teikninga sem það hafði birt af Múhammeð spámanni.

Charlie Hebdo var gefið út í þremur milljónum eintaka í dag og á sex tungu­málum.

Charlie Hebdo var gefið út í þremur milljónum eintaka í dag og á sex tungumálum.
Charlie Hebdo var gefið út í þremur millj­ónum ein­taka í dag og á sex tungu­málum.

Á fimmtudag myrti Ame­dy Couli­ba­ly, sem sagðist vera vitorðs­maður bræðranna, lögreglu­konu í París.

Bræðurnir voru báðir drepnir í áhlaupi lögreglu síðdegis á föstudag. Þeir höfðu þá tekið gísl og héldust við í lítilli prentsmiðju rétt utan Parísar. Samtímis var ráðist inn í verslun í austur­hluta Parísar, sem rekin er af gyðingum, þar sem önnur gíslataka var í gangi. Þar hafði Amedy Coulibaly tekið minnst sex gísla. Coulibaly hafði hótað að myrða gísla sína ef reynt yrði að handsama Kouachi bræður. Coulibaly var drepinn í áhlaupi lögreglu en hann hafði áður drepið fjóra gísla.

Í gærkvöldi birtu fjölmargar frétta­stofur víða um heim nýtt myndband af Kouachi bræðrunum á meðan að á árásinni á Charlie Hebdo stóð.

https://www.youtube.com/watch?v=a7Kpex8O9QE

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár