Pútín undir pressu eftir morðið á andstæðingnum Nemtsov

Þúsundir manna hafa komið saman í Moskvu í dag til að minnast stjórnar­andstæðingsins Boris Nemtsov en hann var skotinn til bana á föstu­daginn. Samherjar Nemtsov segja að hann hafi fengið morð­hótanir undir nafnleysi dagana áður en hann var skotinn, og hann hafi sagt sínum nánustu að Vladímir Pútín, forseti Rússlands, vildi sig feigan.

Nemtsov hefur haldið uppi gagnrýni á stjórn­völd í Rússlandi, ekki síst vegna átakanna í Úkraínu. Stjórnar­andstæðingar í Rússlandi hafa skipulagt skrúð­göngu í dag, og er búist við miklum fjölda fólks, þar sem minningu Nemtsov verður haldi á lofti, að því er segir í umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC.

Pútín sjálfur hefur brugðist við morðinu með opinberum yfir­lýsingum um að hann sjálfur ætli sér að stýra morð­rann­sókninni. Þessu hafa stjórnar­andstæðingar mótmælt kröftug­lega og sagt aðkomu hans að rann­sókninni fráleita og draga úr trúverðug­leika hennar.

https://www.youtube.com/watch?v=_PAoa7c9m_4

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár