Brotthvarf Swift af Spotify snýst um sölu á útgáfufyrirtæki

Líkt og Kjarninn greindi frá í gær þá ákvað Taylor Swift, stærsta poppstjarna samtímans, að láta fjarlægja allar plötur sem hún hefur gefið út af tónlistar­veitunni Spotify. Sú aðgerð er gríðarlegt áfall fyrir Spotify enda Swift á meðal vinsælustu lista­manna hjá tugum milljóna notenda sem borga mánaðar­lega fyrir aðgang að veitunni.

Nú greinir Business Insider frá því að ástæðan fyrir því að plötur Swift eru ekki lengur aðgengilegar á Spotify sé sú að Scott Borchetta, aðal­eigandi og forstjóri útgáfu­fyrirtækis Swift, The Big Machine Label Group, sé að reyna að selja fyrir­tækið sitt. Borchetta vill fá um 200 milljónir dali, um 24,4 milljarða króna, og er víst þeirrar skoðunar að væntanlegir kaupendur muni einungis horfa til þess hversu margar plötur fyrir­tækið selji þegar þeir taka afstöðu til verð­miðans. Samkvæmt frétt Business Insider er hann þeirrar skoðunar að spilanir laga á Spotify muni ekki hafa nein teljandi áhrif á kaup­verðið.

Þetta er viðmótið sem mætir notendum Spotify þegar þeir reyna að spila plötur og lög Taylor Swift.

Virkar til skamms tíma, veldur skaða til langs tíma


Því er Borchetta að fjar­lægja tón­list Swift til að skapa skort á tón­list Swift og þar með ýta áhan­gendum hennar í átt að því að kaupa nýj­ustu plötu hennar 1989, sem kom út í síð­ustu viku, annað hvort á geisla­disk eða í gegnum nið­ur­hal á síðum á borð við iTu­nes, sem skilar meiru í vas­ann en hlust­anir á Spotify.

Þetta er viðmótið sem mætir notendum Spotify þegar þeir reyna að spila plötur og lög Taylor Swift.
Þetta er við­mótið sem mætir not­endum Spotify þegar þeir reyna að spila plötur og lög Taylor Swift.

Til skamms tíma virðist aðgerðar­fræðin vera að virka. Talið er að ný plata Swift hafi selst í 1,3 milljónum eintaka fyrstu helgina eftir að hún kom út. Reynist það rétt er um að ræða mestu sölu á plötu á einni helgi í Banda­ríkjunum frá árinu 2002, sem er ári áður en iTunes varð til og gerbylti tónlistar­geiranum.

Universal Music Group, sem sér um drefingu á tónlist Swift fyrir útgáfu­fyrirtæki Borchetta, hefur reynt mikið að fá hann til að skipta um skoðun og telur nálgun hans vera mjög gamaldags. Til lengri tíma muni hún líka hafa neikvæð áhrif á vinsældir Swift, sem er gríðar­lega vinsæl á Spotify. Fjórði hver notandi tónlistar­veitunnar hefur streymt lagi eftir hana og lög hennar eru á um 20 milljón spilunar­listum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár