Stýrivextir hækkaðir um 0,75 prósent – Hafa ekki verið hærri í sex ár

Peninga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka stýri­vexti upp í 5,5 prósent. Þeir hafa nú hækkað um 4,75 prósentu­stig frá því í maí í fyrra, en eru enn langt undir verð­bólgunni.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er formaður peningastefnunefndar.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri er for­maður pen­inga­stefnu­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Stýri­vextir Seðla­banka Íslands voru í dag hækkaðir um 0,75 prósentu­stig í 5,5 prósent. Vextirnir hafa ekki verið svo háir síðan í ágúst 2016, eða í sex ár. Eftir nýjustu vaxta­hækkunina hefur peninga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hækkað vexti um um 4,75 prósentu­stig síðan í maí í fyrra. Á þessu ári einu saman hafa vextirnir hækkað um 3,5 prósentu­stig, en þeir voru tvö prósent um síðustu áramót.

Ástæða þessa er mikil verðbólga, sem mælist 9,9 prósent um þessar mundir og búist er við að hún skríði upp í tveggja stafa tölu við næstu birtingu. Sú verðbólga hefur að mestu verið drifin áfram af hækkandi íbúða­verði.

Búast má við því að lánveitendur hækki vexti íbúðalána í kjölfarið og að greiðslu­byrði heimila aukist samhliða umtals­vert.

Versnandi verðbólguhorfur og aðvörun til vinnumarkaðarins

Í yfir­lýsingu peninga­stefnu­nefndar segir að samkvæmt uppfærðri þjóð­hagsspá Seðla­bankans sem birt er í ágúst­hefti Peninga­mála eru horfur á tæplega sex prósent hagvexti í ár sem er 1,3 prósentum meiri vöxtur en spáð var í maí. „Stafar það einkum af þrótt­meiri einka­neyslu og hraðari bata í ferða­þjónustu. Störfum heldur áfram að fjölga og atvinnu­leysi að minnka og meiri spenna hefur myndast í þjóðar­búinu en áætlað var í maí.“

Verðbólgu­horfur hafi hins vegar áfram versnað og nú er gert ráð fyrir að hún nái hámarki undir lok ársins í tæplega ellefu prósentum. „Verri verðbólgu­horfur endur­spegla kröftugri umsvif í þjóðar­búskapnum en gert var ráð fyrir í maí og þrálátari hækkanir á húsnæðis­markaði auk meiri alþjóðlegrar verðbólgu. Þá hafa verðbólgu­væntingar hækkað enn frekar á flesta mæli­kvarða.“

Peninga­stefnu­nefnd telur líklegt að herða þurfi taumhald peninga­stefnunnar enn frekar til að tryggja að verðbólga hjaðni í markmið innan ásættanlegs tíma. „Peninga­stefnan mun á næstunni ráðast af þróun efnahags­umsvifa, verðbólgu og verðbólgu­væntinga. Ákvarðanir í atvinnu­lífi, á vinnu­markaði og í ríkis­fjármálum munu skipta miklu um hversu hátt vextir þurfa að fara.“

Skýr merki um að markaðurinn sé að kólna

Íbúðaverð á höfuð­borgar­svæðinu hefur hækkað um 15,5 prósent síðustu sex mánuði og 25,5 prósent síðasta árið. Ef horft er aftur til upphafs kórónu­veiru­faraldursins, sem hófst af alvöru hérlendis í mars 2020, þá hefur íbúðaverð á höfuð­borgar­svæðinu hækkað um 48 prósent.

Á landinu öllu hækkaði íbúðaverð um 26,4 prósent frá júní í fyrra og til loka sama mánaðar í ár. Verðið hækkaði meira í nágranna­sveitar­félögum höfuð­borgar­svæðinu og annars staðar á lands­byggðinni en í höfuð­borginni sjálfri og sveitar­félögunum sem liggja að henni.

Skýr merki eru þó um að húsnæðis­markaðurinn sé að kólna. Líkt og Kjarninn greindi frá því gær þá hefur verulega hægt á hækkunum á markaðnum – hækkun á verði var 1,1 prósent milli síðustu mánaða og hefur ekki verið minni um langa hríð – ásamt því að framboð íbúða er að aukast. Ef horft er á sex mánaða hlaupandi meðaltal þá hafa kaup­samningar ekki verið færri frá því í apríl 2015.

Þetta bendir til þess að skarpar stýri­vaxta­hækkanir Seðla­banka Íslands, ásamt takmörkunum sem hann hefur sett á útlán, hafi verið að bíta. Hærri stýri­vextir gera það enda að verkum að hámarksláns­fjárhæð sem heimilin geta tekið til að kaupa sér húsnæði minnkar.

Í mánaðar­skýrslu Húsnæðis- og mannvirkja­stofnunar (HMS) um húsnæðis­markaðinn sem birt var í gær var bent á að á meðan að stýri­vextir hækkuðu tvö prósentu­stig frá því í maí á þessu ári og þangað til í gær hafi verð­bólgan vaxið um fimm prósentu­stig á sama tíma. Því hafa stýri­vextir lækkað að raunvirði. Í umfjöllun HMS segir að stýri­vextir hafi nú verið lægri en verðbólga allt frá því í apríl 2020. „Aldrei áður hafa þeir verið undir verðbólgu í svo langan tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár