Þrettánfaldur jólasveinn

í Frankens­leiki fer Eiríkur Örn Norðdahl þriðju leið­ina. Jóla­svein­arnir voru til, en þeir eru allir stein­dauðir. Og þó, kannski ekki alveg dauðir úr öllum æðum – kannski eru þeir upp­vakn­ingar sem ranka við sér einu sinni á ári, þegar þeirra nótt rennur upp.

Eiríkur Örn Norðdahl
Eiríkur Örn Norðdahl Höfundur bók­ar­innar Frankens­leikir – eða hinn nýi Aurg­elmir. Mynd: Erik Brunulf eriksture@gmail.com
Bók

Frankens­leikir – eða hinn nýi Aurg­elmir

Höfundur Eiríkur Örn Norðdahl
Mál og menning
Gefðu umsögn

Fjóla liggur heilu næt­urnar and­vaka á aðvent­unni, með það mark­mið eitt að grípa nú einu sinni jóla­svein­ana glóð­volga þegar þeir setja í skó­inn. Eins og flest sæmi­lega for­vitin börn hafa ein­hvern tím­ann gert. En þetta var þegar hún var fimm ára. Núna er hún sex ára og for­eldr­arnir hafa sagt henni hið ósegj­an­lega; að jóla­svein­arnir séu ekki til og að það séu for­eldr­arnir sem gefa í skó­inn. Eitthvað sem jóla­barnið Fjóla ætlar sér svo sann­ar­lega ekki að sætta sig við.

 

Það er kannski mesta furða að það sé ekki algeng­ara að barna­bóka­höf­undar leiki sér með þetta eitt helsta tabú bernsk­unnar, hvort jóla­svein­arnir séu til eða ekki, en vand­inn er bara sá að fyr­ir­fram reiknar maður með að annað svarið eyði­leggi trú­verð­ug­leika bók­ar­innar og hitt svarið eyði­leggi ævin­týrið.

 

En í Frankens­leiki fer Eiríkur Örn Norðdahl þriðju leið­ina. Jóla­svein­arnir voru til, en þeir eru allir stein­dauðir. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár