Verða lífeyrissjóðirnir of stórir fyrir Ísland?

Lands­sam­tök líf­eyr­is­sjóða og Kjarninn standa fyrir morg­un­verð­ar­fundið næst­kom­andi mið­viku­dag þar sem rætt verður um stærð íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins, áhrif þess á íslenskt efna­hags­kerfi og þær áskor­anir sem fylgja því að það á eftir að stækka meira.

Verða íslensku líf­eyr­is­sjóð­irnir of stórir fyrir Íslands í nán­ustu fram­tíð? Þetta er umfjöll­un­ar­efni morg­un­verð­ar­fundar sem Lands­sam­tök líf­eyr­is­sjóða og Kjarninn standa sam­eig­in­lega að næst­kom­andi mið­viku­dag, 9. maí. Fund­ur­inn fer fram á Grand hótel og stendur yfir milli 8:30 og 10. Fundinum verður auk þess streymt beint á vef Kjarnans.

Fram­sögu­menn á fund­inum verða Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri, Gylfi Magn­ús­son, dós­ent í við­skipta­fræði við Háskóla Íslands, Jón Þór Sturlu­son, starf­andi for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og Þorbjörn Guð­munds­son, for­maður stjórnar Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða.

Íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerfið er stórt miðað við hag­kerfi lands­ins. Eignir í líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu eru um ein og hálf lands­fram­leiðsla og eiga sjóð­irnir um þriðj­ung af heild­ar­fjár­munum á Íslandi. Hrein eign þeirra nam 3.966 millj­örðum króna í lok febr­úar síð­ast­lið­ins. Hún hefur auk­ist um 433 millj­arða króna frá lokum árs 2016.

Fyrir liggur að sjóð­irnir munu stækka umtals­vert á næstu árum og hlut­fall þeirra af heild­ar­fjár­munum lands­manna mun sam­kvæmt spám aukast.

Hægt er að skrá sig á fund­inn hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár