Hvatt til endurskoðunar á grænni stefnu

Ríkis­endurskoðun hvetur fjármála- og efnahags­ráðuneyti og umhverfis- og auðlinda­ráðuneyti til að ljúka sem fyrst vinnu við nýja stefnu um vistvæn innkaup og grænan ríkis­rekstur. Mikilvægt er að í stefnunni sé hvatt til aukinnar þátttöku ráðuneyta.

Ríkis­endurskoðun hvetur fjármála- og efnahags­ráðuneyti og umhverfis- og auðlinda­ráðuneyti til að ljúka sem fyrst vinnu við nýja stefnu um vistvæn innkaup og grænan ríkis­rekstur. Mikilvægt er að í stefnunni sé hvatt til aukinnar þátttöku ráðuneyta og stofnana. Frá þessu er greint á vefsíðu Ríkis­endur­skoðunar.

Einnig þarf, samkvæmt fréttinni, að kanna hvort rétt sé að skylda ríkis­aðila til að stunda vistvæn innkaup í skilgreindum vöru­flokkum. Loks þarf að tengja stefnuna við önnur markmið stjórn­valda í umhverfis­málum, svo sem lofts­lagsmál.

Skýrsla til Alþingis var lögð fram núna í nóvember þar sem úttektin á vistvænum innkaupum og grænum ríkis­rekstri er kynnt. Hún hófst í september 2017 og er unnin með vísan í lög um ríkis­endur­skoðanda og endur­skoðun ríkis­reikninga.

Skylda ríkisaðila til að færa grænt bókhald

Ríkis­endurskoðun telur mikilvægt að stjórn­völd tryggi betri yfirsýn um innkaup ríkisins til að auðvelda árangursmat. Nýtt rafrænt innkaupa­kerfi sem er nú á tilrauna­stigi sé góð leið til að ná slíkri yfirsýn. Stofnunin hvetur fjármála- og efnahags­ráðuneyti og umhverfis- og auðlinda­ráðuneyti jafnframt til að skoða mögu­leikann á því að skylda ríkis­aðila til að færa grænt bókhald sem bæði getur leitt til hagkvæmari ríkis­rekstrar og veitt betri upplýsingar um umhverfis­áhrif hans.

Í skýrslunni kemur fram að frá árinu 1998 hafi stjórn­völd haft umhverfis­stefnu að leiðar­ljósi í ríkis­rekstri og frá árinu 2009 hafi verið í gildi stefna um vistvæn innkaup ríkisins. Árið 2013 var aftur á móti sett fram ný og endur­skoðuð stefna, Vistvæn innkaup og grænn ríkis­rekstur, stefna ríkisins 2013 til 2016.

„Sú fram­tíðarsýn sem birtist í stefnunni fyrir árið 2016 var á þá leið að stjórn­völd settu skýrar kröfur um vistvænar áherslur við innkaup sem væru drif­kraftur í nýsköpun og grænu hagkerfi. Árangur yrði mældur og hann kynntur fyrir almenningi og birgjum. Stofnanir hefðu greiðan aðgang að ítarlegum leið­beiningum um vistvæn innkaup og góða þekkingu á málefninu. Einnig yrðu fyrir hendi góðar fyrir­myndir um grænan rekstur í ríkis­kerfinu. Til að ná fram þessu takmarki var lögð fram aðgerða­áætlun með átta markmiðum og skýrum aðgerðum við hvert markmið þar sem tilgreindir voru ábyrgðar­aðilar og tíma­frestir,“ segir í skýrslunni.

Við lok árs 2016 vann ráðgjafa­fyrirtækið Alta ehf. skýrslu fyrir umhverfis- og auðlinda­ráðuneyti um mat á stöðu innleiðingar stefnunnar á árunum 2013 til 2016. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að sú sýn sem sett var fram í stefnunni fyrir árið 2016 hafi aðeins náð fram að ganga að hluta.

Fram til þessa hafi stefnan verið í hvatningar­formi en til að ná lengra þyrfti að leggja auknar kröfur á ríkis­aðila í umhverfis­málum. Þá þyrfti að skýra ábyrgð, yfirsýn og eftir­fylgni, auka fræðslu og markaðs­setningu og nýta tækifæri til að tengja stefnuna við aðrar stefnur og markmið, sem sagt í loftslags­málum.

Margt áunnist

Engu að síður hefði margt áunnist, samkvæmt skýrslu­höfundum. Lagður hefði verið góður faglegur grunnur, fræðslu­efni verið útbúið og verkfæri eins og umhverfis­skilyrði, Grænt bókhald og Græn skref í ríkis­rekstri útfærð og gerð aðgengileg á vefnum. Þá hefðu komið fram góð dæmi um metnaðar­fullar stofnanir sem hefðu innleitt vistvæn innkaup og umhverfis­starf sem skilar góðum árangri. Eins hefði framboð á umhverfis­vænum vörum og þjónustu aukist með meiri eftir­spurn.

Alta ehf. bendir á ýmis tækifæri til umbóta í skýrslu sinni. Meðal annars er lagt til að skipta stefnunni um vistvæn innkaup og grænan ríkis­rekstur í tvo þætti. Annars vegar yrðu vistvæn innkaup látin heyra formlega undir fjármálaog efnahags­ráðuneyti og samþætt við innkaupa­stefnu ríkisins. Þá fengju Ríkiskaup það hlutverk að sjá um innleiðingu vistvænna innkaupa, vinna að faglegri uppbyggingu á sviði græns ríkis­rekstrar í samvinnu við umhverfis- og auðlinda­ráðuneyti og Umhverfis­stofnun, hafa yfirsýn um stöðu innkaupa­mála hjá ríkis­aðilum og sjá um heimasíðu vistvænna innkaupa www.vinn.is. Hins vegar yrðu verkefni um Græn skref og Grænt bókhald sjálfstæð og á forræði Umhverfis­stofnunar í umboði umhverfis- og auðlinda­ráðuneytis. Stofnunin bæri ábyrgð á því að veita ríkis­aðilum ráðgjöf og hvatningu.

Ekkert minnst á grænan ríkisrekstur í fjármálaáætlun ríkisins 2018-22

Í samtölum Ríkis­endur­skoðunar við fjármála- og efnahags­ráðuneyti og umhverfis- og auðlinda­ráðuneyti kom fram að verið væri að fara yfir niður­stöður matsins og undirbúa endur­skoðun stefnunnar. Fram kom hjá báðum aðilum að mat Alta ehf. og niður­stöður þess yrðu notuð sem grunnur að þeirri vinnu og telur Ríkis­endurskoðun það jákvætt. Þess má þó geta að ekkert er minnst á vistvæn innkaup og grænan ríkis­rekstur í fjármála­áætlun ríkisins 2018 til 2022. Hins vegar er fjallað um vistvæn innkaup í stefnu­mótun Ríkis­kaupa til næstu þriggja ára sem fjármála- og efnahags­ráðuneyti hefur samþykkt. Ríkis­endurskoðun hvetur ráðuneytin til að ljúka sem fyrst fyrir­hugaðri endur­skoðun á stefnu um vistvæn innkaup og grænan ríkis­rekstur.

Verkefnið Græn skref í ríkis­rekstri fór formlega af stað í nóvember 2014. Verkefnið var sett á laggirnar af stýrihópi vistvænna innkaupa (VINN) og var það mótað eftir Grænum skrefum Reykja­víkurborgar. Í nóvember 2017 höfðu 50 ríkis­aðilar skráð sig til þátttöku. Umhverfis­stofnun var falið að innleiða Grænu skrefin og gerði umhverfis- og auðlinda­ráðuneyti sérstakan samning við stofnunina í því skyni. Núverandi samningur gildir út árið 2017 en að sögn ráðuneytisins stendur til að fram­lengja hann til nokkurra ára.

Grænt bókhald gefur stofnunum og ráðuneytum yfirlit um hvað vistvæn innkaup og grænar áherslur í rekstri geta skilað bæði í hagkvæmni og auknum umhverfis­legum ávinningi. Verkefni um grænt bókhald ríkis­aðila hófst að frumkvæði stýrihóps VINN árið 2011 en Umhverfis­stofnun heldur nú utan um verkefnið. Enn færa aðeins um 30 stofnanir og þrjú ráðuneyti grænt bókhald með nokkuð reglu­bundnum hætti og skila niður­stöðum til Umhverfis­stofnunar. Fjölga þarf þessum aðilum svo að unnt sé að fylgjast með hverju vistvæn innkaup og grænn ríkis­rekstur skila ríkinu í aukinni hagræðingu og minnkandi umhverfis­áhrifum. Í skýrslu Alta ehf. um mat á stefnu um vistvæn innkaup og grænan ríkis­rekstur er lagt til að skylda ríkis­aðila til að færa grænt bókhald samhliða gerð ársreikninga. Ríkis­endurskoðun hvetur ráðuneytin til að skoða kosti þess.

Yfirsýn um innkaup lítil sem engin

Innkaup ríkisins eru umtalsverður hluti af hagkerfinu og því skiptir máli hvernig þeim er hagað. Áætlað er að ríkið kaupi vörur og þjónustu fyrir um 150 til 200 ma.kr. á ári. Ný lög um opinber innkaup tóku gildi 29. október 2016. Þau taka mið af tilskipun Evrópu­þingsins og ráðsins um innkaup opinberra aðila á vörum, verkum og þjónustu. Í greinar­gerð við lögin kemur fram að í þeim sé lögð enn frekari áhersla á vistvæn innkaup en var í eldri lögum. Birtist það fyrst og fremst í því að verð er ekki lengur megin­forsenda við innkaup heldur er mögulegt að horfa í auknum mæli til gæða, umhverfis­verndar, félagslegra markmiða og nýsköpunar. Um leið er áhersla lögð á vist­ferils­kostnað þess sem keypt er.

Ríkis­endurskoðun hefur í fyrri úttektum sínum um innkaupa­stefnu ríkisins bent á að yfirsýn um innkaup hjá ríkis­aðilum sé lítil sem engin. Það þýðir m.a. að ekki er hægt að fylgjast með hvort vistvæn innkaup eða umhverfis­skilyrði í ramma­samningum sem Ríkiskaup hafa gert séu nýtt. Einnig skorti viðmið um árangur af innleiðingu vistvænna innkaupa. Til stendur að bæta úr þessu með auknum áherslum á rafræn innkaup og innleiðingu á rafrænu innkaupa­kerfi. Nýlega var samþykkt í fjármála- og efnahags­ráðuneyti að fara í tilrauna­verkefni til innleiðingar á slíku kerfi. Ríkis­endurskoðun fagnar því að verkefni um rafrænt innkaupa­kerfi sé loks komið af stað

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár