Fimm milljarðar fara árlega í auglýsingakaup á miðlum eins og Google og Facebook

Tekjur innlendra fjölmiðla af auglýsingum drógust saman milli ára og voru sambærilegar við árið 2004 í hitteðfyrra. Hlutdeild innlendra vefmiðla er mun minni en á þorra hinna Norður­landanna og prent­miðla mun meiri.

Samfélagsmiðillinn Facebook tekur til sín umtalsverðan hluta af íslensku birtingarfé, án þess að greiða virðisaukaskatt á Íslandi.
Sam­fé­lags­mið­ill­inn Facebook tekur til sín umtals­verðan hluta af íslensku birt­ing­arfé, án þess að greiða virð­is­auka­skatt á Íslandi. Mynd: EPA

Hagstofa Íslands telur, samkvæmt varfærnu mati á gögnum um þjónustu­innflutning fyrir kaup á birtingu auglýsinga, markaðs­rannsóknum og skoðana­könnunum, að ætla megi að greiðslur frá íslenskum auglýsendum til erlendra aðila fyrir birtingu auglýsinga á vef hafi numið vel yfir fimm milljörðum króna árið 2018. Það er yfir 70 prósent þeirrar upphæðar sem innlendir aðilar greiddu fyrir birtingu auglýsinga á vef til innlendra og erlendra aðila það árið.

Mat Hagstofunnar er framkvæmt út frá ofan­greindum forsendum vegna þess að ekki liggja fyrir beinar tölur um tekjur erlendra fyrir­tækja á borð við Google og Facebook af sölu á auglýsingum á Íslandi, enda greiða þessi fyrirtæki ekki virðis­aukaskatt af sölunni til íslenskra stjórn­valda líkt og innlend fjölmiðla­fyrirtæki.

Þetta kemur fram í samantekt sem Hagstofa Íslands birti í dag.

Auglýsingatekjur innlendra fjölmiðla drógust saman milli ára

Greiðslur fyrir birtingu auglýsinga í innlendum miðlum árið 2018 námu 13,4 milljörðum króna eða tveimur prósentum lægri upphæð en árið 2017 reiknað á föstu verðlagi. Tekjur innlendra aðila af birtingu auglýsinga árið 2018 voru sambærilegar við það sem var árið 2004.

Í samantekt Hagstofunnar segir að mest hafi farið til dag- og vikublaða á því ári, eða tæplega 4,5 milljarðar króna. Það þýðir að þriðjungur allra auglýsinga­tekna fór til slíkra fjölmiðla. Hlutdeild prent­miðla í auglýsinga­tekjum hérlendis er mun hærri en á flestum hinum Norður­löndunum og hlutdeild vefmiðla mun rýrari.

Sjónvarps­miðlar tóku næst stærstu sneiðina af kökunni, eða 21 prósent, en 2,8 milljarðar króna runnu til þeirra. Hljóðvarps­miðlar fengu 18 prósent, eða rúmlega 2,3 milljarða króna, tímarit og önnur blöð tóku til sín 1,2 milljarða króna, eða níu prósent allra auglýsinga­tekna, og umhverfis­auglýsingar, kvikmyndahús og mynd­diskar skiptu með sér fimm prósentum, eða 666 milljónum króna.

Innlendir vefmiðlar með 14 prósent af kökunni

Innlendir vefmiðlar fengu 14 prósent, eða 1,9 milljarða króna, af öllum auglýsinga­tekjum á árinu 2018. Sérstak­lega er tekið fram að átta af hverjum tíu krónum auglýsinga­tekna á vefnum hafi runnið til vefja sem „starf­ræktir voru í tengslum við hefð­bundna fjölmiðla.“

Kjarninn greindi frá því nýverið að tvö fjöl­miðla­fyr­ir­tæki, Árvakur og Sýn sem reka vef­miðl­anna Mbl.is og Vísi.is, væru sam­an­lagt með 75 til 85 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í sölu aug­lýs­inga í íslenskum vefmiðlum á síð­asta ári. Þetta kom fram í tölum sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið birti í áliti sínu vegna kaupa Torgs ehf., útgef­anda Frétta­blaðs­ins og tengdra miðla, á Frjálsri fjöl­miðl­un, útgef­anda DV og tengdra miðla. Það þýðir að allir aðrir vefmiðlar sem starfa á Íslandi skipta með sér 15 til 25 pró­sent mark­aðs­hlut­deild.

Hlutdeild vefmiðla mun meira á flestum Norðurlöndunum

Tekjur útlendra vefmiðla eru ekki inni í ofan­greindum tölum. Í umfjöllun Hagstofunnar segir að upplýsingar um tekjur erlendra af birtingu auglýsinga sem beint sé að lands­mönnum liggi einfald­lega ekki fyrir þar eð fæstir þessara aðila greiða virðis­aukaskatt af sölu sinni til íslenskra stjórn­valda. „Þar á meðal eru stóru vefmiðlarnir Google og Facebook. Samkvæmt varfærnu mati á gögnum um þjónustu­innflutning fyrir kaup á birtingu auglýsinga, markaðs­rannsóknum og skoðana­könnunum má ætla að greiðslur til erlendra aðila fyrir birtingu auglýsinga á vef hafi numið vel yfir fimm milljörðum króna árið 2018, eða yfir 70 prósent þeirrar upphæðar sem innlendir aðilar greiddu fyrir birtingu auglýsinga á vef til innlendra og erlendra aðila.“

Í samantekt Hagstofunnar kemur einnig fram að hlutdeild vefmiðla, bæði innlendra og erlendra, sé mun minni en í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Þar er hún á bilinu 55 til 58 prósent en á Íslandi er hún 38 prósent. Hlut­deildin er sambærileg í Finnlandi og á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár