Konurnar sem komust á þing

Aðeins þriðjungur þing­flokks Sjálfstæðis­flokksins eru konur. Þrátt fyrir það hefur hlutfall kvenna á Alþingi hefur aldrei verið hærra. Af átta þing­mönnum Framsóknar­flokks eru fimm konur. Unnur Brá Konráðs­dóttir náði þingsæti vegna þess að hún var færð ofar á lista Sjálfstæðis­flokksins.

Aldrei hafa fleiri konur tekið sæti á Alþingi en 30 konur náðu kjöri í kosningunum í gær. Í þeim hópi eru níu konur sem hafa aldrei tekið sæti á Alþingi, þar af þrjár á lista Sjálfstæðis­flokksins.

Úrslitin í próf­kjörum Sjálfstæðis­flokksins vöktu mikla athygli á sínum tíma vegna þess hve fáar konur náðu efstu sætum á lista sem varð þess valdandi að áhrifa­konur sögðu sig úr flokknum. Athygli vekur að Unnur Brá náði þingsæti í nótt, en hún var ein þeirra kvenna sem beið afhroð í próf­kjörinu, þar sem hún sóttist eftir öðru sæti en endaði í því fimmta. Ákvörðun var tekin um að færa hana upp um sæti eftir að Ragn­heiður Elín ákvað að hætta í pólitík. Sú ákvörðun gerði það að verkum að hún náði inn á þing í nótt, en hefði fallið af þingi ella.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­innUnnur Brá
…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár