Málsmeðferð kærunefndar fær falleinkunn hjá Héraðsdómi Reykjavíkur

Kærunefnd útboðs­mála er sögð hafa farið á svig við lög og stuðst við vafasama útreikninga er hún komst að þeirri niður­stöðu að rétt væri að óvirkja samning Orku nátt­úrunnar við Reykja­víkurborg um hrað­hleðslu­stöðvar.

Deilum um útboð Reykja­víkurborgar á hleðslu­stöðvum virðist vera lokið, í bili hið minnsta, með ógildingu Héraðs­dóms Reykja­víkur á úrskurði kæru­nefndar útboðs­mála frá 11. júní. Sá úrskurður leiddi til þess að 156 hleðslu­stöðvum Orku nátt­úrunnar í Reykjavík þurfti að loka í um hálft ár.

Dómur Héraðs­dóms Reykja­víkurí þessu máli er mjög afdráttar­laus. Raunar fær kærunefnd útboðs­mála aðeins á baukinn fyrir það hvernig meðferð málsins var háttað fyrir nefndinni.

Í dómnum, sem kveðinn var upp 23. nóvember, segir að kæru­nefndinni hefði borið að vísa tilteknum kröfum fyrir­tækinu Ísorku í málinu frá um leið og þær bárust – þar á meðal kröfunni um að samningurinn sem um ræðir væri óvirkjaður og þar með allar hleðslu­stöðvarnar.

Ástæðan fyrir því að vísa hefði átt þeirri kröfu frá, að mati héraðs­dóms, var sú að hún kom of seint fram, en hún var ekki hluti af upphaf­legum mála­tilbúnaði Ísorku vegna útboðsins, sem beindist bæði gegn Orku nátt­úrunnar og Reykja­víkurborg. Kæra barst frá Ísorku 8. október í fyrra, en Ísorka bætti svo við kröfugerð sína þann 8. febrúar á þessu ári.

Dómari við héraðsdóm kemst að þeirri niður­stöðu í málinu að kærunefnd útboðs­mála hafi við meðferð kröfu Ísorku farið á svig við ýmsar laga­reglur sem gilda um störf og hlutverk kæru­nefndarinnar.

Kærunefndin réðist í könnun án lagaheimildar

Sú ákvörðun nefndarinnar að ráðast í sérstaka könnun að eigin frumkvæði á því hvort útboðið hefði í raun verið útboð á sérleyfi, og ef svo væri, útboðs- eða tilkynningar­skylt á Evrópska efnahags­svæðinu, er ekki talin hafa byggst á lögum. Hún byggðist heldur ekki á upphaf­legu umkvörtunar­efni Ísorku vegna útboðsins.

„Ekki verður séð að kæru­nefndin hafi heimildir að lögum til að leggja mál í allt annan farveg en kærandinn hefur búið mál sitt til nefndarinnar í,“ segir í dómnum og einnig að könnunin virðist ekki eiga sér stoð í lögum um opinber innkaup – hún hafi verið gerð án tilefnis frá kæranda og án tengsla við kröfugerð Ísorku.

Einnig leggur dómari áherslu á það að kærunefnd útboðs­mála skuli samkvæmt lögum leysa með skjótum hætti úr málum og kveða upp úrskurði eins fljótt og auðið er. Það hafi ekki verið gert, heldur hafi úrskurður um óvirkni samningsins um hleðslu­stöðvarnar litið dagsins ljós átta mánuðum eftir að samningurinn tók gildi og samnings­aðilar hófu að efna hann, með tilheyrandi kostnaði við kaup og uppsetningu hleðslu­stöðva.

„Virðist nokkuð viðurhlutamikið að svo íþyngjandi úrræði sé beitt á grund­velli kröfu sem fyrst kom fram fjórum mánuðum eftir að samningurinn tók gildi,“ segir í dómnum.

Einnig segir dómari í niður­stöðu sinni að ekki fáist séð að niður­staða kæru­nefndarinnar um það að leyfa Reykja­víkurborg ekki að taka afstöðu til endanlegrar fram­setningar máls­kostnaðar­kröfu Ísorku hafi samræmst reglum stjórnsýslu­réttar um meðalhóf.

„Mikið áhorfsmál“ að um sérleyfissamning hafi verið að ræða

Í dómi héraðsdóm er vafi einnig dreginn yfir þá niður­stöðu kæru­nefndar útboðs­mála að samningurinn um hleðslu­stöðvarnar hefði fallið að skilgreiningum laga um opinber innkaup á sérleyfis­samningi. Það er sagt „mikið áhorfsmál“.

Í öllu falli telur héraðs­dómur það orka verulegs tvímælis hvaða fjárhæðir voru lagðar til grund­vallar þeirra ályktana sem settar voru fram í niður­stöðu kæru­nefndarinnar.

Útreikningarnir hjá kæru­nefndinni hafi hreinlega verið rangir, samnings­fjárhæð samningsins sem boðinn var út hafi ekki náð lágmarks­viðmiði, 697,4 milljónum, sem þarf til að samningurinn geti talist útboðs­skyldur á Evrópska efnahags­svæðinu.

Máls­meðferð kæru­nefndar er sögð „verulegum annmörkum háð“ í dómi héraðs­dóms og þar segir að fyrir utan aðra galla við máls­meðferðina hafi þær tvær ástæður sem hér voru nefndar til sögunnar átt að leiða til þess að málinu yrði vísað frá.

Að sögn talsmanns Orku nátt­úrunnar hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um hvort reynt verði að sækja skaða­bætur til hins opinbera vegna máls­meðferðar kæru­nefndar útboðs­mála og óvirkjunar samningsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár