ON fékk úrskurði hnekkt og opnar hleðslustöðvar sínar á ný

Orka nátt­úr­unnar fékk í dag úrskurði kæru­nefndar útboðs­mála hnekkt í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur og getur því opnað á ný á annað hund­rað hleðslu­stöðva sem hafa verið raf­magns­lausar frá í júní.

Alls 156 hleðslustöðvar á vegum Orku náttúrunnar verða á ný virkar síðar í vikunni.
Alls 156 hleðslu­stöðvar á vegum Orku nátt­úr­unnar verða á ný virkar síðar í vik­unni. Mynd: ON

Síðar í vik­unni mun Orka nátt­úr­unnar (ON) opna á ný 156 svo­kall­aðar hverfa­hleðslur sem stað­settar eru víða um Reykja­vík­ur­borg. Þetta ger­ist í kjöl­far þess að Hér­aðs­dómur Reykja­víkur felldi úr gildi úrskurð kæru­nefndar útboðs­mála fyrr í dag, sam­kvæmt því sem segir í til­kynn­ingu frá ON.

Í lok júní úrskurð­aði kæru­nefnd útboðs­mála að útboð Reykja­vík­ur­borgar á þessum hleðslu­stöðvum væri ógilt þar sem ekki var boðið út á evr­ópska efna­hags­svæð­inu. Í kjöl­farið var ON, sem vann útboðið á sínum tíma, gert að slökkva á hleðsl­unum.

„Eftir að hafa rýnt í úrskurð kæru­nefndar taldi ON ljóst að for­sendur nefnd­ar­innar fyrir nið­ur­stöð­unni væru rangar. Því var ákveðið að fara með málið fyrir hér­aðs­dóm til þess að fá úrskurð­inum hnekkt. Flýti­með­ferð fékkst á dóms­mál­inu og í dag féllst Hér­aðs­dómur Reykja­víkur á sjón­ar­mið ON,“ segir í til­kynn­ingu ON.

Í nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur kemur fram að máls­með­ferð kæru­nefndar útboðs­mála hafi verið veru­legum ann­mörkum háð.

Berglind Rán Ólafs­dóttir fram­kvæmda­stýra fyr­ir­tæk­is­ins segir, í til­kynn­ingu frá ON, að þetta sé „fyrst og fremst mikið gleði­efni fyrir þá fjöl­mörgu raf­bíla­eig­endur sem treysta á þessa þjón­ustu“.

Frítt að hlaða út mánuðinn

Hleðslu­stöðv­arnar hafa verið ótengdar allt frá því í lok júní, en verða tengdar strax í þess­ari viku. ON hefur ákveðið að hafa hleðsl­una fría frá og með næsta föstu­degi og út mán­uð­inn. Er það sagt gert til að „þessi end­ur­nýj­uðu kynni raf­bíla­eig­enda af“ hleðslu­stöðv­unum gangi sem best fyrir sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár