„Almannavarnir lýsa ekki yfir almannavarnarstigi af léttúð“

Víðir Reynisson yfir­lögreglu­þjónn telur að almenningur taki yfir­lýsingu neyðar­ástands vegna COVID-19 ekki af meiri léttúð, þrátt fyrir að neyðar­ástandi hafi verið lýst yfir fjórum sinnum á síðustu tveimur árum.

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hefur ekki áhyggjur af því að almenningur sé orðin ónæmur eða hættur að hlusta þegar almannavarnastig er sett á.
Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn hefur ekki áhyggjur af því að almenn­ingur sé orðin ónæmur eða hættur að hlusta þegar almanna­varna­stig er sett á. Mynd: Bára Huld Beck

Neyðar­stigi vegna COVID-19 var lýst yfir 11. janúar og er þetta í fjórða sinn sem hæsta háska­stigi almanna­varna er lýst yfir frá því að faraldurinn braust út í lok febrúar 2020. Sálfræðingur sem Kjarninn ræddi við segir að vani og þreyta á samfélags­aðstæðum vegna faraldursins kunni að skýra breytt mat almennings á hættu­stigi almanna­varna.Víðir Reynisson, yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, tekur ekki í sama streng.

„Þrátt fyrir að þetta sé í fjórða skiptið sem neyðar­stigi er lýst yfir vegna COVID-19 þá tel ég ekki að almenningur taki því af meiri léttúð en áður,“ segir Víðir, en bendir á að í þetta sinn er neyðar­stigi lýst yfir fyrst og fremst til að virkja fyrirtæki, stofnanir og viðbragðs­aðila sem hlutverki hafa að gegna í viðbragðs­áætlun almanna­varna og sóttvarna­læknis. Áhrif neyðar­stigsins nú hefur því takmarkaðri áhrif á daglegt líf almennings, rétt eins og Dr. Tómas Kristjánsson sálfræðingur sagði í viðtali við Kjarnann fyrr í vikunni.

Neyðar­stigi vegna COVID-19 var fyrst lýst yfir 6. mars 2020 og varði í um 12 vikur. Í október sama ár var neyðar­ástandi aftur lýst yfir og varði til 12. febrúar eða í rúma fjóra mánuði. Neyðar­ástandi var í þriðja sinn lýst yfir 24.mars 2021 og var í gildi til 12. maí. Neyðar­ástandi var svo lýst yfir 11. janúar síðastliðinn vegna fjölda smita en í tilkynningu almanna­varna segir að bjartari tímar séu fram undan.

Víðir bendir á að á þeim tveimur árum sem faraldurinn hefur staðið yfir hafa aðstæður verið mismun­andi þegar neyðar­stigin hafa verið sett á og mis mikil óvissa, hún hafi til að mynda verið meiri í byrjun faraldursins. Þá segir hann samspil margra þátta hafa áhrif á ákvörðun um neyðar­stig hverju sinni, svo sem fjöldi smita þegar ný bylgja hófst, ný afbrigði, innlagnir á sjúkra­húsum og fjöldi starfs­manna heilbrigðis­stofnanna i einangrun eða sóttkví.

Munur á almannavarnastigi vegna veðurs annars vegar og heimsfaraldurs hins vegar

Almanna­varnarstig vegna veðurs, náttúruvár eða annarra atburða eru ólík almanna­varnarstigi vegna COVID-19 að sögn Víðis að því leytu að þau hafa bein áhrif á líf fólks og lýsingu stiganna er því frekar beint til almennings.

„Það er vissulega öðruvísi í heims­faraldri eins og COVID-19, en þrátt fyrir það höfum ekki áhyggjur að almenningur sé orðin ónæmur eða hættur að hlusta þegar almanna­varna­stig er sett á. Almenningur getur treyst því að Almanna­varnir lýsa ekki yfir almanna­varnarstigi af léttuð, þvert á móti, þau eru alltaf sett á að vel athuguðu máli,“ segir Víðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár