Vani og þreyta kunni að skýra breyttan skilning á neyðarstigi almannavarna

Neyð­ar­á­stand almanna­varna vegna COVID-19 er í gildi, enn eina ferð­ina. Sál­fræð­ingur segir að vani og þreyta á ástand­inu kunni að skýra breytt mat almenn­ings á hættu­stigi almanna­varna.

Þríeykið: Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason og Alma Möller fara yfir stöðuna á einum af fjölmörgum upplýsingafundum almannavarna. Neyðarstigi vegna COVID-19 hefur fjórum sinnum verið lýst yfir hér á landi.
Þríeykið: Víðir Reyn­is­son, Þórólfur Guðnason og Alma Möller fara yfir stöð­una á einum af fjöl­mörgum upp­lýs­inga­fundum almanna­varna. Neyð­ar­stigi vegna COVID-19 hefur fjórum sinnum verið lýst yfir hér á landi. Mynd: Bára Huld Beck

Neyð­ar­stig. Hættu­stig. Óvissu­stig. Þrjú orð sem heyrst hafa reglu­lega síð­ustu miss­eri í boði almanna­varna, ekki síst vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins en einnig vegna nátt­úru­vár af ýmsu tagi.

Síð­ast­liðin tvö ár hefur neyð­ar­stigi almanna­varna fimm sinnum verið lýst yfir, fjórum sinnum vegna COVID-19 og einu sinni vegna eld­goss í Geld­inga­dölum. Hættu- og óvissu­stigin eru auk þess fjöl­mörg og dæmi eru um að mis­mun­andi stig hafi verið í gildi sam­tímis. Í dag er til að mynda í gildi neyð­ar­stig vegna COVID-19 og óvissu­stig vegna land­riss í Öskju.

[adspot]Stigin þrjú eiga fyrst og fremst við við­bragðs­að­ila en krefj­ast auk þess að almenn­ingur sé á varð­bergi. Neyð­ar­stigi vegna COVID-19 var lýst yfir á þriðju­dag í síð­ustu viku og er það í fjórða sinn sem það er gert frá því að far­ald­ur­inn braust út í febr­úar 2020. Staðan er óneit­an­lega öðru­vísi núna en í mars 2020 þegar neyð­ar­á­standi var fyrst lýst yfir. Dr. Tómas Krist­jáns­son, sál­fræð­ingur hjá Kvíða­með­ferð­ar­stöð­inni, segir þreytu á óbreyttu ástandi og vana kunna að skýra breytt mat fólks á því þegar almanna­varnir lýsa yfir neyðar-, óvissu- eða hættu­stigi.

„Fólk er þreytt, ég held að það sé óhætt að segja það, og þá verða minni við­brögð yfir­höfuð. Þegar við erum undir miklu álagi og streitu förum við að bregð­ast minna við, bæði líf­fræði­legt og til­finn­inga­legt við­bragð verður minna.“

Tómas segir einnig að fólk sé almennt orðið vant ástand­inu. Þegar neyð­ar­á­standi var fyrst lýst yfir í mars 2020 hafði það lík­lega meiri áhrif á dag­legt líf fólks en það gerir nú. „Fólk hefur minni áhyggjur og ótt­ast minna að þetta sé að fara að hafa bein áhrif á þeirra dag­lega líf,“ segir Tómas, sem líkir ástand­inu við þegar reyk­skynj­ari eða bruna­kerfi fer í gang á hverjum degi. „Eftir nokkra daga hættir þú að hlaupa fram á gang sem er auð­vitað ekki gott til lengri tíma ef að kviknar í.“

Óvissu-, hættu- eða neyðarstig í 22 mánuði

Óvissu-, hættu- eða neyð­ar­stig vegna COVID-19 hefur verið í gildi í 22 mán­uði og segir Tómas að við breyt­ingu á milli stiga auk­ist óvissan, sem ýtir undir streitu sem getur ýtt undir kvíða eða dep­urð. „En ég held samt að mjög margir geri lít­inn grein­ar­mun á þessum stigum því fyrir mjög marga er þetta mjög óljóst hvað þetta þýðir fyrir okkur í okkar dag­lega lífi.“

Stigs­mun­ur­inn skiptir fyrst og fremst máli fyrir við­bragðs­að­ila. Þegar óvissu­stig er í gildi er atburða­rás „hafin og ætla má að geti leitt til þess að öryggi fólks og/eða byggðar sé stefnt í hættu. Á þessu stigi hefst sam­ráð milli almanna­varna og þeirra stofn­ana sem málið varðar“. Hættu­stigi er lýst yfir ef hættu­mat leiðir í ljós að hætta fer vax­andi, til dæmis ef auka þarf við­búnað og sótt­varna­ráð­staf­anir vegna yfir­vof­andi far­sóttar. Hæsta alvar­leika­stig almanna­varna er neyð­ar­stig og ein­kenn­ist af „taf­ar­lausum aðgerðum til lífs­bjarg­andi aðstoðar“.

Af þessum lýs­ingum má greina að hvert stig hefur í raun óveru­leg áhrif á dag­legt líf fólks en stig­unum fylgir ákveðin óvissa sem getur valdið óþæg­indum en Tómas segir að óvissan geti á sama tíma verið vernd­andi. „Við gerum ekki grein­ar­mun á stig­unum en auð­vitað þegar þetta er stöðugt í fréttum og það er alltaf verið að lýsa yfir breyt­ingum á reglum og hættu­stigum ýtir undir óvissu og óör­yggi og hefur ekki góð áhrif til lengri tíma.“

Á sama tíma og neyðar-, hættu- eða óvissu­stig almanna­varna hefur verið í gildi síð­ustu tvö ár hefur nátt­úruvá af ýmsu tagi, allt frá eld­gosi til óveð­urs, orðið til þess að almanna­varnir hafa lýst yfir óvissu- eða hættu­stigi og einu sinni, þegar eld­gos hófst í Geld­inga­dölum í mars í fyrra, neyð­ar­stigi. Það er því orðið eins konar óbreytt ástand lands­manna að búa við ein­hvers konar alvar­leika­stig.

„Með tím­anum, því oftar sem því er lýst yfir, förum við að leiða það hjá okkur sem er kannski gott fyrir and­lega líðan akkúrat á því augna­bliki en ekki gott ef það krefst þess að við bregð­umst við,“ segir Tómas.

Faraldurinn ýtti undir vandamál sem voru þegar til staðar

Á þeim tæpu tveimur árum sem liðin eru frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn lét á sér kræla hér á landi hefur þeim fjölgað sem leita til Kvíða­með­ferð­ar­stöðv­ar­innar. Tómas seg­ist fyr­ir­fram hafa búist við því að heilsu­kvíði og kvíði gegn COVID yrði helsta við­fangs­efni sál­fræð­inga en svo er ekki, far­ald­ur­inn hafi frekar ýtt undir vanda­mál sem voru þegar til staðar. Þannig hafi til dæmis þau sem glíma við áhyggju­vanda fundið fyrir meiri áhyggjum og þung­lyndi og félags­kvíði auk­ist.

„Það sem var und­ir­liggj­andi brýst fram en kvíði við COVID hefur ekki komið mikið inn á borð okkar ennþá, en það breyt­ist kannski þegar ógnin er farin. Kvíði í grunn­inn er þegar við skynjum ein­hverja ógn og er mjög gott og hjálp­legt við­bragð þegar það er ógn fyrir framan okkur og hjálpar okkur að bregð­ast við. Og núna er COVID fyrir framan okkur og það er að mörgu leyti mjög eðli­legt að það sé kvíði en svo kemur vand­inn kannski meira í ljós þegar ástandið er liðið hjá. Ákveðinn hluti fólks mun sitja eftir með kvíð­ann, óör­yggið og áhyggj­urnar.“

„Finnum leiðir til að lifa fjölbreyttu og innihaldsríku lífi“

Sótt­varna­reglur voru hertar í enn eitt skiptið fyrir helgi og hafa sjaldan verið jafn harðar og nú. Aðspurður hvernig er best að bregð­ast ástand­inu, sem virð­ist engan enda ætla að taka, segir Tómas grunn­skila­boðin alltaf vera þau sömu, að ein­blína á það sem við höfum stjórn á.

„Við höfum ekki stjórn á því hvenær þetta er búið eða hvaða aðgerðir eru í gangi hverju sinni. Við höfum stjórn á að sinna okkar per­sónu­legu sótt­vörnum og sjá til þess að við hættum ekki að lifa líf­inu. Við finnum leiðir til að lifa fjöl­breyttu og inni­halds­ríku lífi í stað þess að ein­angr­ast og detta í van­virkni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár