Bill Cosby fær allt að tíu ára fangelsisdóm

Bill Cosby hefur verið dæmdur í 3 til 10 ára fangelsi fyrir brot sín gegn Andreu Constand. Réttar­höldin höfðust vegna ummæla annars grínista um Cosby. Fyrstu réttar­höldin yfir frægum einstakling eftir #MeToo byltinguna.

Bill Cosby ásamt lögmanni
Bill Cosby ásamt lög­manni Rétt­ar­höldin hafa meðal ann­ars taf­ist um nokkra mán­uði vegna lög­manna­skipta Cosby.

Bill Cosby var í gær dæmdur til þriggja til tíu ára fangelsis­vistar.  Hann var einnig dæmdur til að skrá sig sem "kynferðis­afbrota­maður" og til frambúðar. Hann var sakfelldur í þriggja liða líkams­árás gegn Andreu Constand í apríl síðastliðnum. Allt að sextíu konur hafa ásakað Cosby um kynferðis­brot á tímabili sem nær yfir fjóra áratugi. Umrætt atvik gegn Constand átti sér stað á heimili Cosby árið 2004. 

Réttar­höldin hafa tafist og árið 2017 voru þau dæmd ómerk vegna þess að kvið­dómurinn gat ekki komið sér um sekt eða sakleysi. Byrjað var upp á nýtt í apríl árið 2018. 

Ákæru­liðirnir sem sakfellt var fyrir þann 26. apríl síðastliðinn voru líkams­árás í þremur liðum, en Cosby byrlaði Constand ólyfjan eftir að hún hafði drukkið áfengi, og braut gegn henni kynferðis­lega. Svipaða sögu er að segja um reynslu hinna kvennana, þær tala margar um að Cosby hafi gefið þeim lyf til að slaka á og vaknað svo eftir kynferðis­brot, en sumar segjast aðeins muna eftir að hafa fengið vínglas eða annan drykk frá Cosby og vaknað svo nokkrum klukku­stundum síðar.

Andrea Constand hafði áður kært Cosby en réttar­höldin fóru fram fyrir borgara­legum dómstól og hafði Constand fjórtán vitni til að leiða fram í réttar­höldum yfir honum. Cosby samdi um að greiða henni tiltekna upphæð fyrir utan réttar­höldin og varð ekki meira úr því.

Almenningsálit breytt vegna uppistands

Tveir atburðir urðu til þess að mál gegn Cosby voru tekin upp á ný. Grín­istinn Hannibal Buress talaði um Cosby í uppi­standi sínu árið 2014, þar sem hann minnist á hvernig Cosby talaði niður til ungra grínista og gagnrýndi þá á ósann­gjarnan hátt. Hann hvatti svo áhorf­endur sína til þess að slá upp „Bill Cosby rape“ í leitar­vélum eftir sýninguna, og skjótt breyttist almanna­álit á Cosby, en hann hafði áratugum saman verið álitinn föður­legur grínari. 

Cosby hóf að tala um ásakanirnar og þver­neitaði fyrir þær allar. Viðbrögð almennings var að gera „meme“ myndir af honum þar sem gert var mikið úr því að sýna hvernig hann væri í raun nauðgari. 

Athygli almennings var vakin, en #MeToo byltingin átti loka­höggið. Frásagnir kvenna af kynferðislegri misnotkun náði um alla kima netheims og fóru konur að tjá sig um misnotkun Cosby á hendur þeim. Allt að sextíu konur komu fram með ásakanir á hendur honum. 

Viðbrögðin settu af stað atburðarás sem endaði á ásökunum og loks ákæru Constand á hendur Cosby, þar sem þver­neitun hans á öllum ásökunum var talið brot á trúnaðar­samningnum sem þau bæði undir­rituðu þegar samið var um fyrra málið árið 2005. Constand var dæmt í hag sem gerði henni kleift að kæra Cosby fyrir glæpa­dómstólum, en ekki fyrir borgara­legum rétti eins og tíu árum áður. 

Réttarhöldin löng og erfið

Sakfellt var í apríl en að þeim tíma höfðu réttar­höldin ýmist verið lengd um vikur eða mánuði, til að mynda vegna þess að Cosby skipti út lögmönnum sínum. Daginn fyrir dóminn drógust réttar­höldin enn fremur vegna ágrein­ings um það hvort skikka ætti Cosby til að skrá sig sem kynferðis­brotamann eftir dóminn. Ákveðið var að gera það að lokum.

Einnig var erfitt að ákveða hversu löng fangelsis­vist ætti að vofa yfir Cosby. Ákæru­valdið krafðist tíu ára fyrir hvern lið, samtals þrjátíu ára fangelsis, sem var að lokum lækkað í tíu ár að hámarki þegar ákæru­liðirnir voru sameinaðir. Verjandi Cosby fór fram á að möguleg refsing verði að hámarki fimm ára stofu­fangelsi vegna aldurs og hrakandi heilsu Cosby, en hann er 81 árs gamall. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár