Siðferðispróf þúsaldarkynslóðarinnar

Klemman varð­andi bóka­út­gáf­una Auðlesin er þó mun áhuga­verð­ari. Þótt sagan sé sam­tíma­saga þá er bóka­út­gáfan eins og frjó­korn fyrir nálæga dystópíu, manni dettur helst í hug Veröld ný og góð Huxleys, þar sem öllum óþæg­indum er haldið í þægi­legri fjar­lægð.

Bók

Auðlesin

Höfundur Adolf Smári Unnarsson
Forlagið - Mál og menning
235 blaðsíður
Gefðu umsögn

Geta bækur skil­greint kyn­slóðir? Já, kyn­slóðin sem ég til­heyri er meira að segja nefnd í höf­uðið á bók, Generation X eftir Douglas Coupland. Bækur þar sem höf­undar gang­ast á hólm við eigin kyn­slóð eru nán­ast sér­stakt bók­mennta­form, þótt oftar en ekki verði kyn­slóða­teng­ingin til óvart eftir á.

Það er hins vegar klárt mál að Auðlesin er saga um kyn­slóð, eig­in­lega frekar en per­sónur. Aðal­per­són­urnar eru tvær, verk­efna­stjór­inn Bjartur, sem bjargar hun­angs­flugum í beinni útsend­ingu á net­inu, og síblanka hug­sjóna­skáldið Nína Kristín. Þau skipta með sér köflum bók­ar­innar en þekkj­ast þó ekki að ráði.

Þetta eru sann­kall­aðar erkitýpur. Bæði koma úr stönd­ugum fjöl­skyldum, en Bjartur sækir áfram í fjár­hags­lega öryggið á meðan Nína Kristín er í þög­ulli upp­reisn gegn eigin góð­borg­ara­fjöl­skyldu.

Báðum er hins vegar annt um að vera góðar mann­eskjur – þótt það birt­ist á gjör­ó­líkan hátt. Bjartur er nán­ast eins og gjörn­ingur um inni­stæðu­lausa góð­mennsku. Hann …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár