„Umtalsverð hækkun“ á rafmagnsverði til Elkem

Gerðar­dómur hefur komist að þeirri niður­stöðu að Elkem eigi að greiða Lands­virkjun hærra verð fyrir rafmagn vegna fram­lengingar á samningi milli fyrir­tækjanna um sölu á raforku.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar. Mynd: Bára Huld Beck

Gerðar­dómur hefur komist að niður­stöðu um nýtt verð á rafmagni milli Lands­virkjunar og Elkem, sem rekur verksmiðju á Grundar­tanga. Hörður Arnarson, forstjóri Lands­virkjunar, segir að nýtt verð verði ekki gefið upp en að í niður­stöðunni felist „umtalstverð hækkun“ frá því verði sem Elkem greiddi áður.

Samningur Elkem er upphaf­lega frá árinu 1975 en verksmiðjan á Grundar­tanga hóf starfsemi árið 1979. Honum hefur alls verið breytt sex sinnum en samningurinn var upphaf­lega til 40 ára, og átti því að renna út í ár. Í samningnum var hins vegar ákvæði sem heimilaði Elkem að fram­lengja gildis­tímann um áratug, eða til ársins 2029. Það ákvæði nýtti fyrir­tækið sér og samhliða var ákvörðun um það rafmagns­verð sem þá greiðir til Lands­virkjunar vísað til gerðar­dóms. Elkem er fjórði stærsti viðskipta­vinur Lands­virkjunar og nemur rafmagns­magn samningsins 127 MW og 1.035 GWst. Því er um stórar upphæðir að ræða.

Búið að semja við níu af tíu stærstu

Niður­staða gerðar­dómsins liggur nú fyrir en samkomulag er milli Lands­virkjunar og Elkem um að gefa ekki upp hvert nýja verðið sé. Hörður segir þó í samtali við Kjarnann að niður­staðan sé jákvæð fyrir Lands­virkjun. „„Þetta er gott skref að það sé verið að ljúka þessari fram­lengingu við Elkem. Verðið verður ekki gefið upp en við getum sagt að það er umtals­verð hækkun.“

Nú hefur Lands­virkjun endur­samið um verð við níu af tíu stærstu viðskipta­vinum sínum frá því að upphaf­legir samningar voru gerðir og hækkað rafmagns­verð til stór­notenda umtals­vert. Ósamið er hins vegar við Alcoa Fjarðarál á Reyðar­firði en upphaf­legur samningur Lands­virkjunar við það fyrirtæki er frá árinu 2003. Það er sömuleiðis lang­stærsti orku­sölu­samningur Lands­virkjunar en Alcoa Fjarðarál kaupir alls um þriðjung af allri raforku­framleiðslu fyrir­tækisins. Ál­verið á Reyð­ar­firði tók til starfa um mitt ár 2007 og náði fullum afköstum nokkru síð­ar. Raf­orku­samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður 2003, en gild­is­tíma­bil hans er 40 ár frá umsömdum föstum afhend­ing­ar­degi orkunn­ar. Hann rennur því út um 2048.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár