Kúrs í skapandi skrifum

Í hverju bóka­blaði munu þrír rit­höf­und­ar gefa ráð í skap­andi skrif­um. Les­end­ur geta klippt út ráð­in í hverju blaði – já, eða prent­að þau út af vefn­um – og safn­að þeim, ef þá lang­ar að skrifa.

Hermann Stefánsson

Þér berst kostaboð frá vafasamri ferða­skrifstofu: Að steypa þér fram af bjargi. Þú hugsar ekki málið til enda. Skrif fela í sér tvenns konar áhættu: fjárhags­lega og andlega. Í frjálsu falli er hættan aðeins ein. Þó má taka kollhnís í loftinu, pósa, snúa sér mjúklega í hringi. Leyfðu þér ljóðrænu og mýkt, syntu. Baðaðu út öngum eins og fugl, settu upp gamanleik. Það er fegurð að falla án afláts og vonar en plokka þó í óslítandi streng á milli háska og húmors. Rósemdin yfir þér bætir enn á óhugnað þeirra sem upp á horfa. En mundu: Taktu með þér fallhlíf.

Birna Anna Björnsdóttir

Rútínan er vinur þinn. Helst að snerta á verkinu daglega, hvað sem það þýðir fyrir þig, hálftími, klukku­tími, fleiri klukku­tímar. Daglegt innlit heldur verkinu lifandi innra með þér alla hina klukku­tíma dagsins og í skrifum gerist svo ótrúlega mikið í undir­meðvitundinni. Muna svo að setjast við þótt þú sért ekki endilega í stuði, því hlutirnir gerast um leið og þú byrjar. Texti getur af sér texta. Hugmyndir fæðast í ferlinu.

Þórarinn Leifsson

Besta ráðið sem ég get gefið er að fara eitthvert í burtu og slökkva á öllum samfélags­miðlum og símum. Þetta getur verið Lands­bókasafnið, sumar­bústaður í kjós eða Airbnb á Spáni. En fólk er misjafnt, sumum hentar betur að sitja á fjölmennum kaffi­húsum og skima yfir salinn meðan þeir hugleiða næstu setningu. Loks er mikilvægt að skrifa um eitthvað sem maður þekkir úr eigin lífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár