Meira en helmingur þeirra sem hafa prófað Klappið segjast óánægð með það

Rúm 53 prósent þeirra sem segjast hafa prófað Klappið, nýtt greiðslu­kerfi Strætó, eru ýmist mjög óánægð eða frekar óánægð með greiðslu­lausnina, samkvæmt könnun sem framkvæmd var fyrir Strætó. Yfir 300 milljónum hefur verið varið í innleiðingu kerfisins.

Strætisvagn númer 14 á ferðinni við Fiskislóð.
Stræt­is­vagn númer 14 á ferð­inni við Fiski­slóð. Mynd: Arnar Þór

Rúmur helmingur strætó­farþega sem hafa prófað Klappið, nýtt rafrænt greiðslu­kerfi Strætó, er óánægður með forritið, samkvæmt niður­stöðum könnunar sem Prósent framkvæmdi fyrir Strætó í á vormánuðum.

Af alls 138 svarendum könnunarinnar sem sögðust hafa prófað nýja greiðslu­kerfið sögðust rúm 33 prósent mjög óánægð og 20 prósent fremur óánægð. Um 20 prósent sögðu hvorki óánægð né ánægð með Klappið og jafnstór hluti sagðist fremur ánægður. Einungis 5 prósent svarenda sögðust svo mjög ánægð með nýja greiðslu­kerfið.

Svarendur í könnuninni voru alls 757 talsins og einungis tæp 19 prósent svarenda höfðu prófað að nota Klappið er könnunin var framkvæmd, en um er að ræða netkönnun sem framkvæmd var dagana 29. mars til 5. maí.

Ein og hálf stjarna í App Store – 1,7 stjörnur í Google Play

Klappið var innleitt á liðnum vetri og hefur fengið blendin viðbrögð notenda, sem hafa sumir tjáð sig um neikvæða upplifun sína á samfélags­miðlum og það stundum ratað í fréttir. Í vefverslun Apple er snjall­síma­forritið með eina og hálfa stjörnu af fimm mögulegum og í vefverslun Google er appið með 1,7 stjörnur af fimm mögulegum.

Með Klappinu eru þrír greiðslu­möguleikar í boði. Í fyrsta lagi er hægt að kaupa miða í Klapp-appinu í símanum og skanna miðann af síma­skjánum við inngöngu í strætis­vagn. Í annan stað má svo kaupa Klapp-kort, en það eru snjall­kort sem borin eru upp við farmiðaskann um borð í strætis­vagninum. Í þriðja lagi er svo hægt að kaupa Klapp-tíu, sem eru pappa­miðar með tíu fargjöldum.

Við innleiðingu nýja greiðslu­kerfisins í vetur var boðað að brátt myndi eldra Strætó-snjall­forrit verða tekið úr notkun, en enn er þó hægt að versla farmiða í því forriti þrátt fyrir að Klappið hafi verið innleitt fyrir rúmu hálfu ári.

Kostnaður við fyrsta áfanga greiðslukerfisins 320 milljónir

Fjár­festing Strætó í hinu nýja greiðslu­kerfi hefur verið fjár­mögnuð beint úr rekstri félagsins, sem hefur verið þungur vegna áhrifa kórónu­veiru­faraldursins.

Sumarið 2021 áætlaði Jóhannes S. Rúnarsson framkvæmda­stjóri Strætó bs., í svari við fyrir­spurn frá borgar­fulltrúa Sósíalista­flokksins, að heildar­fjár­festingin vegna fyrsta áfanga innleiðingar nýja kerfisins myndi nema um 320 milljónum króna.

Inni í þeirri tölu er hugbúnaðar­þróun og sömuleiðis kaup á nýjum farmiða­skönnum sem settir hafa verið inn í hvern einasta strætis­vagn á höfuð­borgar­svæðinu.

Rafræna greiðslu­kerfið er hugsað til framtíðar, fyrir bæði fyrir Strætó og Borgar­línu, en einungis er búið að ljúka við fyrsta áfanga þeirra breytingar sem á að gera á greiðslu­kerfinu.

Næsta skref Strætó verður að innleiða snertilausar greiðslur í vagnana, þannig að notendur sem eru að kaupa staka miða geti gert það beint með sínu greiðslu­korti eða Apple Pay og Samsung Pay og álíka lausnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár