Vilja að íslenska ríkisstjórnin fordæmi viðbrögð stjórnvalda á Spáni

Þingmenn Pírata leggja til að rík­is­stjórnin for­dæmi við­brögð stjórn­valda á Spáni við atkvæða­greiðslu um sjálf­stæði Kata­lóníu, þar á meðal hand­tökur á kata­lónskum stjórn­mála­mönnum.

Mótmæli þann 1. október síðastliðinn en þá var ár liðið frá atkvæðagreiðslunni.
Mótmæli þann 1. októ­ber síð­ast­lið­inn en þá var ár liðið frá atkvæða­greiðsl­unni. Mynd: EPA

Píratar hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að rík­is­stjórnin for­dæmi við­brögð stjórn­valda á Spáni við atkvæða­greiðslu sem fór fram í Kata­lóníu 1. októ­ber á síð­asta ári um sjálf­stæði hér­aðs­ins, þar á meðal hand­tökur á kata­lónskum stjórn­mála­mönnum.

Fyrsti flutn­ings­maður er Álf­heiður Eymars­dóttir, vara­þing­maður Pírata, en með henni eru fimm þing­menn úr sama flokki.

Þann 6. sept­em­ber árið 2017 sam­þykkti hér­aðs­þing Kata­lóníu lög­gjöf sem heim­il­aði atkvæða­greiðslu um sjálf­stæð­is­yf­ir­lýs­ingu Kata­lóníu gagn­vart Spáni. Stjórn­laga­dóm­stóll Spánar ógilti aftur á móti lög­gjöf­ina dag­inn eftir.

Niðurstaðan skýr

Atkvæða­greiðslan fór engu að síður fram þann 1. októ­ber árið 2017, þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir spænskra stjórn­valda. Í grein­ar­gerð með til­lög­unni kemur fram að þær til­raunir hafi oft verið ofbeld­is­fullar og ætlað að koma í veg fyrir fram­kvæmd atkvæða­greiðsl­unnar.

Nið­ur­staðan var þó skýr því að 92 pró­sent þeirra sem greiddu atkvæði sögðu já við spurn­ing­unni sem lögð var fyrir kjós­endur en spurt var hvort þeir vildu að Kata­lónía yrði sjálf­stætt ríki með lýð­veld­is­stjórn­ar­fari.

Stjórn­laga­dóm­stóll Spánar ógilti sjálf­stæð­is­yf­ir­lýs­ingu hér­aðs­stjórn­ar­innar mán­uði seinna, eða þann 8. nóv­em­ber, á grund­velli þess að hún hefði brotið gegn stjórn­ar­skrá lands­ins og væri því mark­laus.

Fólk fært í fangelsi eða gert útlægt

Í grein­ar­gerð­inni kemur enn fremur fram að frá því að atkvæða­greiðslan fór fram hafi verið gefnar út hand­töku­skip­anir á hendur fjöl­mörgum stjórn­mála­mönnum í Kata­lóníu og hafi að minnsta kosti níu þeirra setið í fang­elsi á Spáni mán­uðum saman án þess að þeir hafi verið ákærðir. Meðal þeirra sé fyrr­ver­andi for­seti kata­lónska þings­ins. Enn fleiri séu í útlegð og eigi á hættu að verða hand­teknir ef þeir snúa til síns heima.

Tekið er fram í tilllög­unni að þings­á­lykt­unin sé ekki stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing við mál­stað sjálf­stæð­is­sinna í Kata­lóníu, heldur alvar­leg áminn­ing til spænskra stjórn­valda um að tryggja rétt manna til að bjóða sig fram til starfa í þágu kjós­enda án þess að eiga á hættu að verða sviptir frelsi sínu.

Ríkt hérað

Kata­lónía er eitt rík­asta hérað Spánar og hefur það, ásamt Baska­landi, sterk­ari sjálf­stjórn en nokkuð annað hérað á Spáni og jafn­vel þótt víðar væri leit­að. Hér­aðið hefur yfir­um­sjón með mennta-, heil­brig­iðs- og vel­ferð­ar­málum ásamt því að það hefur eigin lög­reglu, eigið þing, hér­aðs­stjórn og dóm­stóla.

Hér­aðs­stjórn Kata­lóníu hefur áskilið sér rétt til að krefj­ast sjálfs­á­kvörð­un­ar­réttar og sjálf­stæðis en alþjóða­lög við­ur­kenna ein­ungis þann rétt fyrir svæði sem lúta stjórn nýlendu­valds, hafa orðið fyrir inn­rás eða orðið fyrir alvar­legum brotum á mann­rétt­indum vegna aðgerða stjórn­valda. Margir telja þó að það eigi við um Kata­lóníu. 

Katalónía endurheimti réttindi eftir Franco

Kjarninn hefur fjallað um málið en í frétta­skýr­ingu frá því 1. októ­ber á síð­asta ári kemur fram að margir Kata­lónar séu ósáttir með það hvernig rík­is­stjórnin í Madríd kemur fram við hér­að­ið. Stjórn­ar­skrár­dóm­stóll Spánar dró árið 2010 til baka ákvöruðun um að skil­greina Kata­lóníu sem þjóð frekar en hérað og veita kata­lónska tungu­mál­inu for­gangs­stöðu og fór það illa í Kata­lóna.

Þá jókst óánægja við Madríd í kjöl­far efna­hag­skrepp­unn­ar á Spáni árið 2009 vegna þess að bilið milli þess sem Kata­lónar greiða í skatta og þess sem fjár­fest er í hér­að­inu af rík­inu nemur um 8 til 10 millj­arða evra á ári. Til­finn­ingin að rík­is­stjórnin í Madríd steli frá Kata­lónum er sterk og algeng en með­al­tekjur á íbúa eru umtals­vert hærri í Kata­lóníu en í land­inu sem heild – eða um 19 pró­sent – þó að þessi munur hafi minnkað úr um 50 pró­sent í byrjun sjö­unda ára­tug­ar­ins.

Rétt­indi Kata­lóna til sjálfs­stjórn­ar voru mjög tak­mörkuð í stjórn­ar­tíð ein­ræð­is­herr­ans Francisco Franco 1936 til 1975. Þegar lýð­ræði komst á í land­inu eftir dauða Franco end­ur­heimti Kata­lónía mörg af sér­rétt­indum sínum og var hér­að­inu veitt umtals­verð sjálfs­stjórn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár