Sjálfstæðissinnar sigruðu í héraðskosningunum í Katalóníu

Flokkar sem hafa sjálf­stæði Kata­lóníu á stefnu­skrá sinni eru með rúman meiri­hluta þing­sæta í hér­að­inu og unnu mik­inn kosn­inga­sigur, sam­kvæmt nýj­ustu tölum, en hér­aðs­kosn­ingar fóru fram í dag. Útgöngu­spár höfðu gert ráð fyrir þess­ari nið­ur­stöðu, eins og greint var frá í dag.

Eftir að um 90 pró­sent atkvæða höfðu verið talin voru þeir flokkar sem voru með sjálf­stæði Kata­lóníu á stefnu­skránni, Convergencia og Esquerra Republicana, með 72 sæti af 135 sem til­heyra hér­að­inu. For­ystu­fólk þeirra hafði lýst því yfir fyrir kosn­ing­arnar að það myndi lýsa yfir sjálf­stæði Kata­lóníu ef það næði meiri­hluta, en slíkt er afar illa séð hjá rík­is­stjórn Spánar, og hefur for­sæt­is­ráð­herr­ann, Mariano Rajoy, lýst því yfir að sjálf­stæði Kata­lóníu geti haft afar nei­kvæð áhrif fyrir efna­hag Spánar.

Búast má við að þessi nið­ur­staða setji auk­inn þunga í umræð­una um sjálf­stæði Kata­lóníu.

Samkvæmt útgöngu­spám, meðal ann­ars skoð­ana­könnun sjón­varp­stöðv­ar­innar TV3 þá voru flokkar sem eru með sjálf­stæði Kata­lóníu á stefnu­skrá sinni með um 50 pró­sent atkvæða, og gætu fengið á bil­inu 63 til 68 þing­sæti af þeim 135 sem hér­að­inu til­heyra. Aðrar kann­anir hafa sýnt sterk­ari meiri­hluta, á bil­inu 74 til 79 sæti af 135.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár