Þreifað á mold, talað til vits og tilfinninga!

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Lífið - stór­skemmtilegt drullumall, sem sýnt er í Tjarnar­bíói.

Leikhúsið 10 fingur í Tjarnarbíói: Lífið – stórskemmtilegt drullumall

Höfundar: Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sólveig Guðmunds­dóttir, Charlotte Bøving, Helga Arnalds

Leikmynda- og búninga­hönnun: Helga Arnalds

Aðferð og stjórnun á myndrænni fram­setningu: Helga Arnalds

Tónlist: Margrét Kristín Blöndal

Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson

Aðstoð við brúðu­vinnu: Satu Kivisto

Leikarar: Sólveig Guðmunds­dóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson

Leikhúsið 10 fingur á senn 25 ára afmæli og var í upphafi einnar konu leikhús Helgu Arnalds sem ferðaðist milli leikskóla og skóla í landinu með sýningar sínar. Smám saman bættist í hópinn og hefur margt af okkar fremsta lista­fólki gengið í lið með Helgu; Leikhúsið 10 fingur hefur einnig í æ ríkara mæli sérhæft sig í list­sköpun sem stendur á mörkum leikhúss og mynd­listar og er eina leikhúsið í landinu sem helgar sig slíkum sýningum og hefur auk þess lagt áherslu á að gera sýningar sem börn og full­orðnir geta notið saman. Það er gaman að geta þess einnig að á ferli sínum hefur Leikhúsið 10 fingur hlotið tvær Grímur fyrir bestu barna­sýningarnar auk þess að hafa hreppt íslensku bjartsýnis­verðlaunin.

Þegar gluggað er í leikskrá sýningarinnar Lífið – stór­skemmtilegt drullumall má lesa hvaða hugmyndir voru kveikjan að verkinu: „Lífið er ferðalag og skref fyrir skref fikrum við okkur inn í óvissuna. ... Við þreifuðum á moldinni og skoðuðum hvaða hugmyndir voru fólgnar í henni. Svo fórum við að rannsaka poka, ljós og skugga. ... Við tókum eitt skref í einu án þess að vita hvar sýningin myndi enda. ...“

Þessar sérdeilis frjóu hugmyndir urðu að ákaflega sérstæðri, fallegri og einlægri sögu sem þau Sólveig Guðmunds­dóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson miðla áhorf­endum á tæpri klukku­stund, sem er hæfileg lengd á sýningu fyrir yngstu áhorfendurna.

Sagan kviknar með spili skugga á stóru baktjaldi sem gnæfir yfir sviði Tjarnar­bíós. Óræðar, torkennilegar fígúrur kvikna til lífs, hreyfa sig til og frá, ummyndast, stækka og minnka á víxl og smám saman birtast þær á sviðinu, tvær verur sem tjá sig með ýmiss konar frum­stæðum hljóðum. Þetta er fallegt sjónar­spil þar sem unnið er með baklýsingu aftan við baktjaldið – og eins og atriðið er unnið, fer einnig heilmikið fyrir lýsingu framan við baktjaldið líka – og þannig geta skuggarnir leikið sér og búið til hugrenninga­tengsl sem takmarkast af engu nema ímyndunar­aflinu. Og þá eru þau ekki síður tilkomu­mikil hljóðin sem frá verunum koma og undir heyrist tónlistin, sem á stóran þátt í að glæða heildina spennandi lífi.

Það var býsna magnað að upplifa, að nokkrir hinna ungu áhorfenda virtust þegar í upphafi eiga erfitt með skilin milli listar og lífs og gripust skelfingu þegar skuggarnir brugðu á leik. Það er vissulega gaman þegar listin heltekur svo áhorf­endur sína og þeir lifa sig svo gersam­lega inn í það sem fyrir augu þeirra og eyru ber – þannig vill jú leikhúsið virka, ekki satt? – en það er engu að síður umhugsunar­efni þegar ungir áhorf­endur ráða ekki við að greina á milli þess sem er áhugavert, hluti af þróun, líkt og upphaf sögu er, og svo þess sem er ógnvekjandi af því þau virðast ekki þekkja sjálfan miðilinn – leikhúsið.

Getur verið að foreldrar anni ekki skyldum sínum, að leiða börn sín inn í heim sögunnar, kenni þeim í verki að greina á milli þess sem er veruleiki annars vegar og hins vegar frásögnin af þessum veruleika? Eða reynist sú fantasía, sem birtist okkur í upphafi Lífsins – stór­skemmtilegt drullumall einfald­lega hinum ungu áhorf­endum ofviða? Eru þau alin upp í einhvers konar „afþreyingar­natúralisma“ sem gerir alla symbólík framandi og hættulega?

Þetta voru nokkrar hugleiðingar sem flugu um huga þess sem hér skrifar og ekki skal fullyrt neitt um svör eða niður­stöður, en óneitanlega eru þetta pælingar sem vert er að gefa gaum.

Lífið – stór­skemmtilegt drullumall vex hægt og örugglega og verður að sögu tveggja einstaklinga sem mætast óvænt, kynnast og bregða á leik sem þróast frá því að einkennast af hrifningu fyrir öllu því nýja og spennandi sem fyrir skilningar­vitin ber, bragð, sjón, heyrn, ilman og skynjan yfir í andstæðu sína og hörkulega baráttu um yfirráða­svæði; með því er samtímis brugðið upp ljós­lifandi mynd af sögu mannkyns frá upphafi til nútíma og um leið gerist fyrir augum okkar leikhús­ævintýri þar sem moldar­pokar öðlast líf og tær og fingur verða að sérstæðum karakterum.

Allt er gert af næmni fyrir og þekkingu á ótakmörkuðum tjáningar­tækjum leik­listarinnar og ber vott um þróað listrænt innsæi, rótgróna þekkingu á bæði leik­listinni og sögu­efninu og yfir öllu skín virðing fyrir hinum ungu áhorf­endum (og reyndar hinum eldri líka!) sem er og á að vera aðal og einkennis­merki allrar góðrar leik­listar. Hér er sagan sögð blátt áfram og af einlægni, hvergi ber á tilgerð eða auðveldum gervi­lausnum heldur allt sett fram í krafti þess sem rökrétt er og talar til vitsmuna áhorfenda í sama mæli og tilfinningum þeirra er ögrað.

Þeir ungu áhorf­endur sem gripnir voru ótta í upphafi róuðust, enda þeirra fullorðna fylgdar­fólk natið við að hugga og knúsa; hvað sem líður vanga­veltum hér ofar, er það hverju orði sannara að leikhúsi þarf að venjast og læra á táknrænan frásagnir þess og hvernig þær orka á tilfinningar og sálarlíf. Þá getur verið einkar gott að hafa einhverja hlýja og góða eldri fylgdar­manneskju sem opnar faðminn, sefar og telur kjark í unga sál. Og kannski rétt að geta þess að lokamynd sýningarinnar andar frá sér friði og værð; þar er slegið á hárréttan tón til að foreldrar og fylgdar­fólk geti tekið við og hjálpað til við að láta sýninguna og þau hughrif sem hún hefur vakið að gerjast og jafnvel öðlast sjálfstætt líf í barns­huganum. Til þess er jú leikhúsið, ekki satt?

Lífið – stór­skemmtilegt drullumall er hrífandi sýning, falleg og talar til allra skilningar­vita. Leikurinn er hugmynda­ríkur og fjörlegur, þau Sólveig og Sveinn Ólafur hlífa sér hvergi og líkams­tjáning þeirra náði svo sannarlega áhorf­endum. Það er hrein unun að sjá hvílíkt vald þau hafa á meðulum leikarans, hve samleikur þeirra er öruggur og traustur og hvernig þau leiða söguna til lykta án þess að styðjast við hefð­bundið tungumál heldur aðeins hreyfingar, svip­brigði, og óhefðbundin hljóð – og óhljóð.

Leik­stjórn Charlotte Bøving er eins og búast má við, traust og markviss og sér til þess að hinn mannlegi, hlýlegi svipur haldi sér í hvívetna – en ekki verður svo skilið við Lífið – stór­skemmtilegt drullumall án þess að minnst sé á tónlist Margrétar Kristínar Blöndal, sem gerði allt í senn, að draga, fylgja með og elta rás atburða, innilega samfléttuð í allan þann listræna gjörning sem fram fór á sviðinu.

Lýsing Björns Bergsteins Guðmunds­sonar var sömuleiðis sköpuð í anda frásagnarinnar og þjónaði henni út í ystu æsar. Allt þetta gerir Lífið – stór­skemmtilegt drullumall ekki bara að stór­skemmtilegu drullumalli, heldur fallegri, vandaðri og heil­steyptri leik­sýningu fyrir börn á öllum aldri – þar sem borin er ósvikin virðing fyrir greind þeirra og tilfinningum og þau hvött til nokkurs þroska. Betri gerast leik­sýningar ekki!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár