Félagaskiptaglugginn í enska boltanum í íslensku samhengi

Upphæðirnar sem ensk knattspyrnu­félög settu í að kaupa nokkra tugi leikmanna í sumar slá öll fyrri met. Heildar­eyðsla félaganna í úrvals­deildinni var meiri en árleg útgjöld íslenska ríkisins til heilbrigðis­mála.

Erling Braut Haaland framherji Manchester City er búinn að skora 10 mörk í fyrstu sex leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. Hann kostaði City svipað mikið og veiðigjöldin sem lögð eru á útgerðir á Íslandi í ár.
Erling Braut Haaland fram­herji Manchester City er búinn að skora 10 mörk í fyrstu sex leikjum sínum í ensku úrvals­deild­inni. Hann kost­aði City svipað mikið og veiði­gjöldin sem lögð eru á útgerðir á Íslandi í ár. Mynd: EPA

Áætlað er að knattspyrnu­liðin tuttugu sem leika í ensku úrvals­deildinni í knatt­spyrnu hafi varið næstum tveimur milljörðum breskra punda, jafnvirði um 315 milljarða íslenskra króna, í nýja leikmenn í félaga­skipta­glugga sumarsins, en hann lokaði á fimmtudag.

Þetta er nýtt met og eru upphæðirnar sem ensku knattspyrnu­liðin hafa varið í leik­mannakaup í sumar afar háar í öllu samhengi. Upphæðin er til dæmis hærri en öll þau tæplega sextíu knattspyrnulið sem leika í efstu deildum á Spáni, Ítalíu og Þýska­landi vörðu til samans í sumar í því skyni að styrkja leik­mannahópa sína.

Ekkert lið varði meira fé til leik­mannakaupa en Chelsea. Raunar varði Chelsea meira fé í nýja leikmenn en nokkurt lið í enska boltanum hefur gert á einu sumri hingað til, eða 40,3 milljörðum íslenskra króna. Á hæla Chelsea kom Manchester United, sem varði 34 milljörðum í leikmenn.

Á meðal þeirra sem bættust í hópinn hjá Manchester United var brasilíski væng­maðurinn Antony, sem kom frá Ajax í Amsterdam á lokadegi félaga­skipta­gluggans fyrir 86 milljónir punda. Hann var dýrastur allra þeirra leikmanna sem ensku liðin keyptu í sumar og er reyndar dýrasti leik­maðurinn sem enskt lið hefur nokkru sinni keypt á lokadegi félaga­skipta­glugga.

Áhrif nýrra sjónvarpssamninga

Peninga­streymið inn í ensku knatt­spyrnuna hefur stóraukist á undan­förnum árum vegna gríðarlegra verðmætra sjónvarps­réttar­samninga sem liðin njóta góðs af, en úrvals­deildin fær samanlagt yfir 10 milljarða punda, jafnvirði um 1.650 milljarða íslenskra krónu, frá sjónvarps­stöðvum um heim allan vegna sölu sýningar­réttar frá deildinni næstu þrjú tímabil, eða fram til loka tíma­bilsins 2024-25.

Það getur verið nokkuð snúið að átta sig á þeim fjárhæðum sem þarna eru undir. Kjarninn tók saman nokkra mola um leikmanna­viðskipti ensku liðanna í sumar og setti fjár­hæðirnar í íslenskt samhengi.

Heildarupphæðin samsvarar rúmlega útgjöldum ríkisins til heilbrigðismála

Heilbrigðismál eru lang­stærsti útgjalda­liður íslenska ríkisins á hverju ári. Samkvæmt fjárlögum ársins 2022 er áætlað að rúmir 300 milljarðar króna renni til þess að reka heilbrigðis­kerfið á Íslandi í ár, sem er hátt í þriðjungur af öllum innheimtum skatt­tekjum ríkisins, sem eiga að verða 955 milljarðar í ár.

Eins og áður var nefnt vörðu ensku knattspyrnu­liðin 315 milljörðum í að kaupa leikmenn í sumar, sem þýðir að hægt væri að halda uppi heilbrigðis­þjónustu á Íslandi fyrir það fé sem tuttugu fótbolta­félög vörðu í að tryggja sér þjónustu nokkurra tuga knattspyrnu­manna.

Chelsea varði meira fé í leikmenn en innheimt er í eldsneytisgjald

Gert er ráð fyrir því í fjárlögum þess árs að tæpir 40 milljarðar króna innheimtist vegna eldsneytis­gjalds, sem leggst ofan á hvern einasta seldan lítra af jarðefna­eldsneyti. Þessi upphæð er ögn lægri en sú upphæð sem lið Chelsea varði í nýja leikmenn í sumar, en það voru 40,3 milljarðar króna, miðað við gengi breska pundsins á föstudag.

Sá dýrasti á pari við framlög til byggingu nýs Landspítala

Eins og áður var nefnt var dýrasti leikmaður félaga­skipta­gluggans hinn brasilíski Antony sem Manchester United fékk til frá Ajax á fimmtudaginn.

Hann kostaði félagið jafnvirði 14,2 milljarða íslenskra króna, sem er svo gott sem á pari við áætluð framlög ríkisins til byggingar nýs Land­spítala á þessu ári, en 14.177 milljónir króna renna í það verkefni samkvæmt fjárlögum.

Eyðsla nýliða meiri en allur kostnaður við löggæslu í landinu og fæðingarorlofssjóð

Framganga nýliða Nottingham Forest á leikmanna­markaðnum í sumar hefur vakið athygli, en þetta sögufræga lið leikur nú í efstu deild enska boltans á ný eftir mörg mögur ár skör neðar.

Í Nottinghamborg er stefnan sett á að haldast í deild þeirra bestu, enda eftir miklu að slægjast vegna teknanna sem sjónvarps­réttar­samningar færa liðunum í deildinni. Liðið keypti hátt á þriðja tug nýrra leikmanna í sumar fyrir jafnvirði 23,2 milljarða íslenskra króna.

Til þess að setja þá upphæð í samhengi mætti nefna að samkvæmt fjárlögum ársins er áætlað að rúmum 21 milljarði verði varið í alla löggæslu á Íslandi á árinu. Svipuð upphæð er einnig áætluð til fæðingar­orlofssjóðs, eða rúmir 22 milljarðar.

Norskur markahrókur kostaði svipað og ríkið innheimtir í veiðigjöld í ár

Það hefur stundum verið meiri fyrirferð á Englands­meisturum Manchester City á leikmanna­markaðnum en í sumar. Félagið keypti þó Norð­manninn Erling Braut Haaland og nokkra leikmenn til viðbótar fyrir jafnvirði alls 19,9 milljarða króna.

Haaland, sem hefur komið sem stormsveipur inn í enska boltann og skorað heil 10 mörk í fyrstu fimm umferðum mótsins, kostaði um 8,5 milljarða króna.

Það er svipuð upphæð og þau veiði­gjöld sem lögð eru á útgerðar­félög í ár, en alls nema álögð veiði­gjöld 8,37 milljörðum króna.

Leicester og Landbúnaðarháskólinn

Lið Leicester varði minnstu fé allra liða í deildinni til leik­mannakaupa. Á sama tíma seldi liðið frá sér varnar­manninn Wesley Fofana til Chelsea á stórfé í síðustu viku og varð þannig eitt fárra liða sem kom út úr félaga­skipta­glugganum í plús.

Heildar­eyðsla Leicester í félaga­skipta­glugganum nam um 2,4 milljörðum króna, sem samsvarar rúmlega þeirri upphæð sem rennur til rekstrar Land­búnaðar­háskóla Íslands úr ríkis­sjóði á þessu ári.

Eyðsla Aston Villa og Southampton á pari við kostnað Íslands við alþjóðlega þróunarsamvinnu

Íslenska ríkið áætlar að veita rúmum 10,2 milljörðum króna til alþjóðlegrar þróunar­samvinnu á þessu ári. Það er svipuð upphæð og félögin Aston Villa og Southampton vörðu hvort um sig til kaupa á nýjum knattspyrnu­mönnum í sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár