Obama: Bandaríkin eru til í að vinna með Rússum að friði í Sýrlandi

Barack Obama, forseti Banda­ríkjanna, segir að allt verði gert til að tryggja frið í Sýrlandi og koma í veg fyrir meiri hörmungar í landinu. Banda­ríkin séu til í að vinna saman að friði með Rússum, og einnig Írönum. Þetta kom fram í máli Obama þegar hann ávarpaði sjötugasta allsherjar­þing Sameinuðu þjóðanna í dag.

Hann ítrekaði þó fyrri afstöðu um nauðsyn þess að starfa með öðrum leiðtoga í Sýrlandi en Bashar al-Assad forseta. Honum væri ekki treystandi.

Obama hefur ekki áður talað með svo afgerandi hætti um að Banda­ríkin séu samstarfsfús með Rússum þegar kemur að því að stilla til friðar í Sýrlandi. Efnahags­þvinganir landsins gagnvart Rússum hafa gert samskipti ríkjanna stirð, en svo virðist sem samstarfs­grundvöllur sé mögulegur þrátt fyrir allt.

Um 250 þúsund manns hafa látið lífið í borgar­styröldinni í Sýrlandi og yfir 800 þúsund slasast. Þá er um helmingur íbúa landsins, sem voru um 22 milljónir í lok árs 2013, á flótta.


Watch @POTUS speak at the @UN General Assembly at 10am ET → http://t.co/QrXzBhdOjp #UNGA pic.twitter.com/9vdmSOeYe6


— The White House (@WhiteHouse) September 28, 2015

Obama og Vladímir Pútín, forseti Rússlands, munu eiga fund um málefni Sýrlands síðar í dag, og á morgun, en búist er við því að Pútín muni freista þess að ná sáttum við Obama svo að ríkin tvö geti í sameiningu barist gegn Íslamska ríkinu og hryðja­verka­samtökum í Sýrlandi, og einnig í nágranna­ríkjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár