Breska þingið hyggst rannsaka Cameron - Pressan eykst

David Cameron forsætis­ráðherra Bretlands sætir mikilli gagnrýni heima fyrir vegna tengsla sinna við aflandsfélög í Panama­skjölunum.

David Cameron, forsætis­ráðherra Bretlands, þarf að gera grein fyrir öllum fjármálum sínum, sem snúa að viðskiptum aflandsfélagsins Blackmore Invesments Fund, eftir að ljóst varð að hann hafði sagt ósatt um hagsmuni sína, sem tengjast félaginu. 

Á blaðamanna­fundi á þriðjudaginn, fullyrti hann, og ítrekaði raunar síðar um daginn sömuleiðis, að hann „tengdist með engum hætti aflandsfélagi“. Þegar betur var að gáð, í Panama­skjölunum svokölluðu, reyndist hann hafa hagnast á eignar­hlut föður síns í félaginu, um 31.500 pund, eða sem nemur um 5,5 milljónum króna.

Cameron viðurkenndi þetta í gær, og er nú lentur undir mikilli pressu í breska þinginu, sem boðað hefur rannsókn á öllum fjármálum Cameron og annarra þingmanna sem tengjast aflandsfélögum með einum eða öðrum hætti.

Ken Livingstone, fyrr­verandi borgar­stjóri í London, er einn þeirra sem hefur gagnrýnt Cameron harkalega og sagt að hann ætti ekki aðeins að vera rann­sakaður ítarlega, eftir að hafa sagt af sér, heldur ætti hann að þurfa að svara fyrir þessi mál fyrir dómi. „Þetta eru alveg sérstak­lega skaðleg og alvarleg mál [...] Nú er komið í ljós að faðir Cameron hafi verið í þrjátíu ár, í því að þvætta peninga í gegnum Panama, án þess að borga skatta í samræmi við lög í Bretlandi,“ sagði Livingstone í viðtali í dag, sem Telegraph vitnar til.

Cameron segist engin lög hafa brotið, og allt hafi verið gefið upp til skatts í samræmi við lög. Í morgun fór Independent fram á það í leiðara að Cameron myndi segja af sér, þar sem hann hefði verið staðinn að því að leyna upplýsingum fyrir þingi og þjóð, og segja ósatt í þokkabót um tengsl sín við aflandsfélög.

Mótmæli eru nú skipulögð við Dowingstræti 10, þar sem megin­krafan er sú að Cameron segi af sér. Hann hafi boðið átak gegn aflands­starfsemi banka og skatta­skjólum, en hafi sjálfur hagnast á slíkri starfsemi. Það gangi ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár