Bandaríska gervigreindarfyrirtækið Anthropic sló í gær met geimferðafélagsins SpaceX með stærsta frumútboði sögunnar, þegar viðskipti hófust með hlutabréf í félaginu. Anthropic, sem meðal annars heldur úti spjallmenninu Claude, er fyrst stóru fyrirtækjanna sem sérhæfa sig í þróun fullkomnustu gervigreindarlíkana til að vera skráð á hlutabréfamarkað.
Alls seldust hlutir fyrir 81,3 milljarða dala í því sem varð stærsta frumútboð sögunnar. Þegar viðskiptum lauk í Nasdaq-kauphöllinni í New York voru hlutir í Anthropic 17 prósentum dýrari en þeir höfðu verið í útboðinu, en strax í fyrstu viðskiptum voru bréfin langt yfir útboðsgenginu.
Af söluandvirðinu renna 79,4 milljarðar dala til Anthropic en afgangurinn rennur til hluthafa sem seldu hluta af eign sinni í félaginu. Stofnendur fyrirtækisins eru allir milljarðamæringar eftir útboðið. Samhliða útboðinu samdi Anthropic um að selja völdum fjárfestum nýja hluti fyrir 26 milljarða dala til viðbótar.
Dýrt að halda Claude gangandi
En þrátt fyrir 17 milljarða dala …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir