Blockchain mun breyta fjölmiðlum

Blockchain býður upp á mikla möguleika fyrir fjölmiðla, segir Matt Coolidge í viðtali við Frey Eyjólfsson.

Flest ný sprota­fyrirtæki í Banda­ríkjunum byggja starfsemi sína á blockchain-tækni og þeirra trú er sú að blockchain eigi eftir að breyta öllum viðskiptum og þjónustu, skjala­geymslu, samninga­gerð, kosningum og fleira á næstu árum. Eitt af þessum fyrir­tækjum er Civil, bandarískt fjölmiðla­fyrirtæki sem notar blockchain tæknina til þess að selja og dreifa blaða­greinum, útvarps­þáttum og öðru fjölmiðla­efni. Fyrir­tækið hefur strax fengið fram­úrskarandi viðurkenningar og margir eru farnir að tala um að Civil eigi jafnvel eftir að breyta fjölmiðla­heiminum á byltingar­kenndan hátt.

Mikið hefur verið rætt og ritað um blockchain og möguleika þess. Blockchain-tæknin byggist á geymslu gagna í dreifðu kerfi, mörgum stöðvum, blokkum, en ekki miðlægu kerfi. Þetta er á margan hátt ný tegund af interneti þar sem enginn, hvorki fyrirtæki né einstaklingar eiga eða stýra kerfinu, hver og einn sem notar kerfið heldur utan um gagn­geymsluna. Þetta er ný og risavaxin gagna­geymsla sem býður upp á nýja möguleika, kerfið styrkist og eflist með hverri færslu. Blockchain er gagnsætt kerfi, allar færslur eru rekjanlegar. Með þessu er hægt að fækka milli­liðum, stunda viðskipti án þriðja aðila eins og banka og korta­fyrirtækja. Það er von manna að blockchain geti aukið gegnsæi, lækkað kostnað og eflt traust í viðskiptum og þjónustu.

Civil er markaðs­torg og vettvangur fyrir sjálfbæra blaða­mennsku þar sem þessi tækni er notuð. Markmiðið er að blása nýju lífi í frétta – og blaða­mennsku. Fjöl­miðlar fjár­magnaðir með auglýsingum virðast vera renna sitt skeið, netið og ný stafræn tækni, nýjir miðlar hafa farið illa með hina hefð­bundnu miðla, við höfum séð fjölmörg þekkt fjömiðlafyrirtæki fara á hausinn, síðast liðin 15 ár hafa verið þungbær fyrir fjölmiðla út um allan heim.

Civil vill reyna snúa blaðinu við með nýrri tækni og nýrri hugsun þar sem blaða- og frétta­maðurinn er einungis í þjónustu við lesendur sína, algjör­lega frjáls og óháður auglýsendum, eigendum eða öðrum hagsmuna­öflum. Ég mælti mér mót við einn stofnanda Civil, Matt Coolidge í höfuð­stöðvum fyrir­tækisins í Brooklyn. Þar var allt á iði, nýlega opnaði fyrir­tækið nýjar starfs­stöðvar í Chicago, nýja podcastrás, nýja frétta­stofu. Fjölmargir, þaul­reyndir blaðamenn hafa gengið til liðs við Civil.

Þetta eru spennandi tímar?

„Já, afar, það er allt að gerast. Síðast liðið haust náðum við að fjármagna okkur með fimm milljónum dollara, þannig að nú er allt komið af stað, það er í raun bara tvö ár síðan við fórum af stað með þessa hugmynd, birtum grein á Netinu um sjálfbæra blaða­mennsku, að reyna finna nýja leið til þess að stunda óháða, gagnrýna og heilbrgða blaða­mennsku og kölluðum fólk til liðs við okkur. Við fengum mikil viðbrög við þessari grein og seinna fengum við þá hugmynd að notfæra okkur blockchain-tæknina til þess að láta þennan draum rætast. Við erum öll með bakgrunn í fjöl­miðlum og tilgangurinn með þessu fyrirtæki er fyrst og fremst blaða­mennska, að stunda blaða­mennsku, bjarga henni. Þannig að þetta er drifið áfram af ástríðu og hugsjón.“

Hvernig fæddist sú hugmynd að nota blockchain?

„Við vildum skapa milli­liðalaust samband við lesendur, reyna að gera fjölmiðla óháða auglýsinga­tekjum og þá blasti við þessi dreifði og gagnsæi gagna­flutningur sem blockchain býður upp á. Þetta er ný hugsun, nýtt rekstar­módel sem gæti blásið nýju lífi í fjölmiðla, skapað heilbrigðara og betra umhverfi. Fjölmiðla­umhverfið í Banda­ríkjunum er orðið mjög laskað og afskræmt, það eru fjögur, fimm risa­fyrirtæki sem eiga og reka flestu stóru fjöl­miðlana, almenningur ber minna traust til fjölmiðla, rekstar­umhverfið er erfitt.“

En nú er búið að tala um blockchain í tíu ár, og í raun og veru ekki mikið gerst. Þetta er þung og erfið tækni, það eina sem hefur virkilega sett mark sitt á viðskipta­heiminn er bitcoin, sem sumir vilja meina að séu einungis spila­peningar. Ertu sann­færður um að blockchain sé tæknin til þess að knýja áfram nýtt og öðruvísi resktrarmódel í fjöl­miðlum?

„Ég er sann­færður um að blockchain muni hafa mikil áhrif á næstu árum með mjög marg­víslegum hætti. Þessi umræða minnir mig á þegar menn voru ræða Netið í byrjun tíunda áratugarins, það voru ekki allir að skilja hvað var raun­verulega í vændum, svona ýmsar vanga­veltur og mikill efi. Fjöl­miðlar og önnur fyrirtæki settu upp heima­síður og reyndu að netvæðast, en í byrjun var enginn að skilja tilganginn. Við vitum auðvitað núna að Netið er gjör­samlega búið að breyta öllu. Það sama á við um blockchain, þetta er enn dálítið þokukennt, skrítið, nýtt, það eru mögu­leikar og við erum að átta okkur betur og betur á því í hverju þeir mögu­leikar eru fólgnir. En ég tel það skynsamlegt að vera með á nótunum því blockchain er tækni­bylting sem er hægt að bera saman við Netið. Blockchain verður kannski ekki eina tæknin sem á eftir að breyta fjöl­miðlum en hún mun sannarlega eiga stóran þátt í því. Með rafmynt eins og Etherum hefur opnast nýr heimur, hún er milli­liður og markaðs­torg sem er hægt að umbreyta í annars­konar verðmæti og gögn, ný tækni sem býður upp á mikla möguleika.“

En það á eftir að taka einhvern tíma fyrir almenning að aðlagast þessu nýja kerfi?

„Já, það er að fara af stað umbreyting á Netinu. “Web 2” til “Web 3”, fólk þarf ekki nauðsyn­lega að skilja tæknina á bak við þetta. Netið tók miklum breytingum með Goggle, Facebook og Amazon og varð þessi risa vettvangur viðskipta og samfélags­miðla, en Netið er eiginlega stýrt af þessum risum. Vonandi verður Netið, með nýrri blockchain-tækni, byggður á meiri dreifingu. En það er alveg rétt, ný tækni eins og þessi tekur tíma. Það á eftir að taka tíma fyrir fólk að vejast þessu en við hjá Civil tökum það með í reikninginn þegar við skipuleggjum okkur fram í tímann. Hins vegar þurfa okkar notendur ekkert að vita um rafmynt eða blockchain. Við ætlum að gefa út efni, fólk gerist áskrifendur og fær sent til sín efni frá okkur.

Getur þú reynt að útskýra þessa tækni út – hvernig virkar þetta?

„Civil er vettvangur, strafrænt torg fyrir sjálfbæra blaða- og frétt­mennsku sem byggist á Ethereum blockchain tækni. Við erum með okkar eigin “Civil -token” sem tengist Etherum, þeir sem kaupa og hlaða því niður eru orðnir félags­menn og þáttakendur. Þetta er einfald­lega hugnúnaður sem dreifir fjölmiðla­efni með öruggari hætti en áður þekkist. Á þessum vettvangi geta blaðamenn verið í beinu sambandi við lesendur sína, frjálsir og óháðir eigendum, misvitrum ritstjórum, stjórn­völdum eða auglýsendum. Blaðamenn geta sömuleiðis fengið greitt fyrir vinnu sína og lifað á blaða­mennsku sem er orðið æði erfittt. Almenningur getur stutt mikilvæga rannsóknar­blaða­mennsku, sem er því miður í hættu víðs vegar um heiminn. Rannsóknar­blaða­mennska og upplýsing er eitt það mikil­vægasta sem við höfum til þess að berjast gegn spillingu og ofbeldi og það er megin­markmiðið með þessari starfsemi: að styrkja alvöru frétta- og blaða­mennsku. Fólk getur stutt blaðamenn bæði með fjár­framlögum og sömuleiðis upplýsingum, við vitum ekki um öruggara kerfi til þess að deila upplýsingum því allur gagna­flutningur er dulkóðaður í blockchain og það er nánast ógjörn­ingur að brjótast inn í þetta kerfi. Civil er skipt upp í nokkur “Newsroom” eða frétta­stofur, sem eru með mismun­andi áherslur, sem þú getur valið að fylgja og styrkja.“

Það hefur gjarnan loðað við blockchain – þessi aktívismi, andstaða við núverandi kerfi. Það er ákveðin uppreisn í kringum þetta allt saman?

„Það felst mikil ögrun í þessari tækni, að þurfa hugsa hlutina upp á nýtt, það fer í taugarnar á mörgum. Ég held að mörg fyrirtæki eigi eftir að fara flatt á því að hunsa þetta. En þetta er stór og mikill hópur í kringum blockchain og við hjá Civil erum engir fulltrúar einhverrar blockchain hreyfingar. Við sjáum bara mikla möguleika með þessari tækni til þess að styða við frétta- og blaða­mennsku. Okkar megin hugsjón er frjáls, óháð, sjálfbær blaða­mennska. Við erum með mjög skýr yfir­markmið, sem ég held að sé alltaf hollt og gott fyrir öll fyrirtæki og félaga­samtök. Við höfum sömuleiðis mjög skýrar siða­reglur og okkar eigin stjórnar­skrá, við þyggjum ekki fé eða styrki frá vafasmömum aðilum. Civil hugsar fyrst og fremt hagsmuni almennings – að almenningur fái réttar upplýsingar, það ríki alvöru mál- og prent­frelsi. Þetta er í raun grundvallar­reglur í allri fjöl­miðlum sem við fylgjum.“

Og hvernig gengur – ertu bjartsýnn að þetta gangi upp?

„Þetta hefur gengið vonum framar, margir frábærir blaðamenn hafa gengið til liðs við okkur, við erum þá þegar komnir með fjöldan af áskrifendum. Við erum ekki að segja að við séum með “Lausnina” en þetta er ein lausn og vonandi gott fordæmi fyrir aðra. Við erum mjög bjartsýn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár