„Við kærum ekki því að réttarkerfið segir okkur að þegja“

Vara­þing­maður Pírata segir að spyrja ætti á af hverju „þessir góðu ger­endur“ hætti ekki að áreita, nauðga, lít­il­lækka og valda óaft­ur­kall­an­legum skaða á lífi kvenna og kynsegin. Skömmin sé ekki þolenda.

Olga Margrét Cilia, varaþingmaður Pírata.
Olga Margrét Cilia, vara­þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

„Enn og aftur er spurt: Af hverju kæra þessar konur ekki? Spurn­ingin ætti hins vegar að vera: Af hverju treystum við okkur ekki til að kæra?“ Þannig hóf Olga Margrét Cilia, vara­þing­maður Pírata, mál sitt undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag en þing­menn VG og Sjálf­stæð­is­flokks­ins lögðu líka orð í belg vegna þeirrar metoo-bylgju sem nú herjar á land­ann.

Gaf Olga Margrét nokkrar ástæður sem gott væri að hafa í huga. „Enda­lausar sögur af lög­reglu­fólki sem hlær þolendur kyn­ferð­is­of­beldis út af lög­reglu­stöð­inni. Dómarar sem gefa beint og óbeint í skyn að þetta hafi verið okkur að kenna því að við drukkum of mikið. Kærum er vísað frá vegna skorts á sönn­un­ar­gögnum þó að við hefðum gert allt rétt, þ.e. það sem rétt­ar­kerf­inu finnst að við eigum að gera eftir að okkur er nauðgað; fara á neyð­ar­mót­tök­una, tala við lög­reglu og lækna og fá svo ávítur fyrir að hafa ekki verið nógu skýrar. En það er bara svo­lítið erfitt að vera skýr þegar heil­inn og lík­am­inn er í áfalli. Það er líka svo­lítið erfitt að vera skýr þegar ger­endur eru okkur svo nákomnir að við hættum á að missa allt okkar bak­land frá okkur ef við segjum eitt­hvað eða að starfs­fer­ill okkar, orð­spor og fjár­hags­legt bak­land verði fyrir óaft­ur­kall­an­legum skaða fyrir að segja frá,“ sagði hún.

„Við kærum ekki því að rétt­ar­kerfið segir okkur að þegja. Við kærum við ekki því að ef við dirfumst að gera það er okkur úthúðað í sam­fé­lag­inu. Ef við segjum frá erum við útskúf­aðar frá fjöl­skyldum og vinum.“

Telur Olga Margrét að spurn­ingin ætti enn fremur að vera: „Af hverju hætta þessir góðu ger­endur ekki bara að áreita, nauðga, lít­il­lækka og valda óaft­ur­kall­an­legum skaða á lífi kvenna og kynsegin? Skömmin er ekki þolenda. Skömmin er ger­enda og rétt­ar­kerfis sem hefur gjör­sam­lega brugð­ist þolendum kyn­ferð­is­of­beldis og neita að taka ábyrgð á þeim var­an­legum skaða sem það hefur valdið á kyn­slóðum kvenna og kynsegin sem treysta ekki kerf­inu til að ná fram rétt­læti.“

Þurfum að læra og einfaldlega gera betur

Bryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fjall­aði einnig um metoo-bylgj­una sem nú ríður yfir. „Um helg­ina skók okkur sem sam­fé­lag ný bylgja metoo. Ég veit ekki hvort maður á að gráta eða fagna þegar slíkar bylgjur koma upp á yfir­borðið. Líklega hvort tveggja. Sögurnar eru hrylli­legar en við þurfum þó að fagna því að þær komi upp á yfir­borðið. Líklega er bylgjan komin til að vera. Hrylli­legt er að vita til þess að okkar ann­ars góða sam­fé­lag sé með þann ljóta blett sem kyn­ferð­is­legt ofbeldi og áreiti er,“ sagði hún.

„Við þurfum að hlusta á þessar sögur. Við þurfum að læra og við þurfum ein­fald­lega að gera betur. Þrátt fyrir átak í að efla rann­sóknir kyn­ferð­is­brota­mála og hraða afgreiðslu þeirra erum við samt ekki að gera nógu vel. Við þurfum að gera betur. Við þurfum ávallt að veita þolendum skjól og aðstoða þá.

En hvað með ger­end­urna? Við heyrum sög­urnar. Þær eru alls konar. Stundum um hrylli­legt ofbeldi, stundum þannig að upp­lifun ein­stak­ling­anna virð­ist vera mjög ólík. Hvernig vinnum við með þessa mein­semd? Er refsi­vörslu­kerfið okkar þannig búið að það geti tek­ist á við verk­efnið? Hvernig aðstoðum við ger­endur við að hætta að beita ofbeldi?“ spurði Bryndís að lokum.

Skyldi engan undra að þolendur séu tregir til að leita réttar síns

Þing­maður VG, Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þakk­aði þeim hug­rekkið sem sett hafa reynslu sína af kyn­bundnu ofbeldi á sam­fé­lags­miðla. „Það er ekki auð­velt að ber­skjalda sig opin­ber­lega. Það er ekki auð­velt að vinda ofan af nauðg­un­ar­menn­ingu. Við erum í annarri bylgju #metoo. Þetta er sem sagt í annað sinn á nokkrum árum sem sam­fé­lags­miðlar ljá konum rödd og körlum sem voru líka lengi radd­lausir vegna þögg­unar og druslu­skömm­unnar, vegna við­horfa sem hafa verið mein­semd í sam­fé­lagi okkar og ýta við okkur til að horfa framan í okkur sjálf sem sam­fé­lag, blákalt.“

Benti hún á að núna hefði skap­ast nokkur umræða um hvers vegna fólk stigi fram á sam­fé­lags­miðlum, hvort rétt­læt­an­legt væri að birta svo miklar upp­lýs­ingar að ger­andi væri nán­ast per­sónu­greindur án þess að málið rataði nokkurn tím­ann á borð lög­reglu.

„En á sama tíma fáum við upp­lýs­ingar um að Lands­réttur mildi dóma í 40 pró­sent kyn­ferð­is­brota­mála sem fara fyrir dóm­inn, 40 pró­sent. Til sam­an­burðar eru 25 pró­sent dóma í ofbeldis- og fíkni­efna­brotum mild­aðir. Skyldi engan undra að þolendur séu tregir til að leita réttar síns ef þetta eru kveðj­urnar frá dóm­stólum lands­ins. Þó að þrjú ár séu síðan við hér í þessum sal breyttum almennum hegn­ing­ar­lögum á þá vegu að sam­þykki væri sett í for­grunn í kyn­ferð­is­brota­málum er sönn­un­ar­byrðin í þeim málum enn þá allt of þung. Í ofaná­lag eru þolendur sem stíga fram sak­aðir um að sverta mann­orð ger­enda sinna. Það er umræða sem við þurfum að upp­ræta strax. Það eru ger­endur sem sverta sitt eigið mann­orð þegar þeir beita ofbeld­inu. Við þurfum öll að líta í eigin barm, við þurfum að standa með öllum þolendum, ekki síst þeim sem standa okkur næst, og horfast í augu við ger­endur sem við kunnum að þekkja og gera þeim ljóst að við tökum afstöðu gegn ofbeldi,“ sagði Bjarkey.

Þakkaði hún öllum þeim sem sýnt hafa hug­rekki með því að segja sína sögu. „Ég sé ykkur. Ég trúi því að við séum öll að hlusta og nú þurfum við að takast á við þetta saman. Ég stend með ykkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár