Þögnin rofin á ný

Hundruð íslenskra kvenna hafa í vik­unni stigið fram opin­ber­lega með sínar erf­ið­ustu minn­ingar, í kjöl­far þess að stuðn­ings­bylgja reis upp með þjóð­þekktum manni sem tvær konur segja að brotið hafi á sér. Lærði sam­fé­lagið lítið af fyrri #metoo-bylgj­unni?

Und­an­farna sól­ar­hringa hafa frá­sagnir þolenda kyn­ferð­is­of­beldis flætt fram í stríðum straumum á sam­fé­lags­miðl­inum Twitter, margar undir kass­merk­inu #metoo. Segja má að þetta sé önnur hrina frá­sagna, aðal­lega kvenna, af kyn­ferð­is­legu og kyn­bundnu ofbeldi og áreitni sem rís hér á landi á und­an­förnum fjórum árum. Sögurnar skipta hund­ruðum.

Kveikjan í þetta skiptið voru við­brögð sam­fé­lags­ins við því að þjóð­þekktur fjöl­miðla­maður steig sjálfur fram og bar af sér orðróm sem fáir höfðu kom­ist hjá því að heyra dag­ana á undan. Einn víð­lesnasti vef­mið­ill lands­ins virt­ist lýsa yfir sak­leysi hans í kjöl­farið, en ein kona hefur kært mann­inn fyrir lík­ams­árás og önnur sakað hann um kyn­ferð­is­brot.

Konurnar hafa ekki stigið fram undir nafni í fjöl­miðlum, en hafa mátt þola það að vera úthróp­aðar sem bæði lygarar og mann­orðs­morð­ingjar. Druslur og hórur. Eins og svo margar konur sem á undan þeim komu.

Sjálfvirkur stuðningur við gerendur

Það sem hefur ein­kennt umræðu síð­ustu daga eru ákveðin von­brigði. Von­brigði og svekk­elsi þolenda ofbeldis yfir því að sam­fé­lagið, eða hluti þess og jafn­vel fjöl­miðlar, snú­ist eins og á sjálf­stýr­ingu gegn þeim sem stíga fram og segja frá því að þær hafi orðið fyrir ofbeldi.

Á sama tíma fái ger­endur umsvifa­laust stuðn­ing þegar þeir segj­ast sak­lausir. Til­finn­ing margra virð­ist sú að það hafi ekki nægi­lega mikið breyst, þrátt fyrir alla þá umræðu sem hefur átt sér stað um kyn­ferð­is­legt og kyn­bundið ofbeldi í íslensku sam­fé­lagi á und­an­förnum árum.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í gær að það væri „í raun og veru dap­ur­legt að við séum ekki kom­in lengra þrátt fyr­ir #met­oo-bylgj­una sem var hér 2017.“

Þúsundir kvenna kröfðust breytinga

Sú bylgja reis á alþjóða­vísu í kjöl­far þess að kyn­bundið ofbeldi valda­mik­illa karla í kvik­mynda­geir­anum í Hollywood var dregið upp á yfir­borðið. Þúsundir kvenna hér á landi stigu þá fram með yfir­lýs­ingar og frá­sagnir sem tengd­ust kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bund­inni mis­munun og ofbeldi.

Þetta voru meðal ann­arra konur sem feng­ust eða fást við stjórn­mál, vís­indi, sviðs­listir og kvik­mynda­gerð. Konur í heil­brigð­is­þjón­ustu, fjöl­miðlun, flugi og konur í presta­stétt. Konur í mennta­kerf­inu, iðn­greinum, rétt­ar­vörslu­kerf­inu, verka­lýðs­hreyf­ing­unni og íþróttum.

Þetta voru alls konar konur með alls konar sögur sem stöf­uðu af sama kerf­is­læga vanda, ofbeldi og lít­ils­virð­ingu í garð kvenna. Þolenda­skömm og með­virkni sam­fé­lags­ins með ger­endum. Konur af erlendum upp­runa á Íslandi létu sér­stak­lega í sér heyra og kröfð­ust þess að sam­fé­lagið brygð­ist á sama hátt við frá­sögnum þeirra og frá­sögnum íslenskra kvenna.

Þessi bylgja var í hámæli í sam­fé­lags­um­ræð­unni um nokk­urra mán­aða skeið og sam­kvæmt könnun MMR, sem fram­kvæmd var að vori 2018, töldu lands­menn upp til hópa, eða rúm 70 pró­sent, að umræðan um #metoo hefði verið til bóta fyrir íslenskt sam­fé­lag. Ákall var um breyt­ingar og bæði á vett­vangi stjórn­mála og innan flestra vinnu­staða var ráð­ist í aðgerðir til þess að bregð­ast við #metoo bylt­ing­unni.

Klausturmálið og eftirmálar þóttu bakslag

Klaust­ur­málið kom síðan upp á yfir­borðið í nóv­em­ber 2018 og ljóst varð að inni á Alþingi var allur gangur á því hvort #metoo umræðan sem hristi upp svo ræki­lega upp í sam­fé­lag­inu hefði náð til eyrna þing­manna. Í sam­tölum á milli þing­manna – sem nú eru allir í Mið­flokknum – var meðal ann­ars hæðst að #metoo-sögum og talað með nið­ur­lægj­andi og kyn­ferð­is­legum hætti um stjórn­mála­konur.

Daglega vinnu­fé­laga mann­anna og aðrar konur, sem höfðu flestar verið á meðal þeirra um það bil 400 núver­andi og fyrr­ver­andi stjórn­mála­kvenna sem rit­uðu nafn sitt við áskorun þar sem þess var kraf­ist að allir karlar tækju ábyrgð og allir stjórn­mála­flokkar tækju af festu á vanda­mál­inu.

Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra lýsti nokkrum þess­ara þing­manna hreint og beint sem ofbeld­is­mönnum, en einna gróf­ustu ummælin sem við­höfð voru á Klaustri beindust gegn henni. Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir þing­kona sagð­ist „eig­in­lega bara kjaft­stopp“ yfir þeim ummælum sem um hana féllu.

Orð Mið­flokks­manna voru for­dæmd víða í sam­fé­lag­inu. Sumir lýstu mál­inu eins og blautri tusku framan í #metoo-bylt­ing­una og alla þá þolendur kyn­bund­ins ofbeldis sem stigið fram saman og kraf­ist breyt­inga.

Hávær krafa var uppi um afsögn þing­mann­anna, innan þings og utan. Þrjátíu og einn þing­maður sagði Frétta­blað­inu að rétt væri að sex­menn­ing­arnir, á Klaustri, eða að minnsta kosti sumir þeirra, segðu af sér þing­mennsku. Skoð­ana­kann­anir meðal almenn­ings sýndu mik­inn stuðn­ing við það sama, 74 til 91 pró­sent Íslend­inga voru á því máli að rétt­ast væri að þing­menn­irnir tækju pok­ann sinn.

Þingmennirnir sex sem sátu að sumbli á Klaustri haustið 2018. Mynd: Samsett
Þing­menn­irnir sex sem sátu að sum­bli á Klaustri haustið 2018. Mynd: Samsett

Klaust­ur­málið, eft­ir­málar þess og litlar afleið­ingar þóttu mörgum á skjön við þá umræðu sem hafði átt sér stað í sam­fé­lag­inu ein­ungis um ári mán­uðum fyrr. „Gerend­urn­ir í þessu máli bera gríð­ar­lega mikla ábyrgð og þeir neita að taka hana,“ sagði Þór­hild­ur Sunna Ævars­dóttir þing­maður á mál­þingi um stjórn­málin og #metoo sem fram fór í mars 2019.

Í nýrri bylgju #metoo er kallað eftir því að karlar geri betur en áður. „Ég vil sjá karla hlusta, ég vil sjá karla stíga fram og axla ábyrgð,“ sagði Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir kynja­fræð­ingur í við­tali í útvarps­þætt­inum Harma­geddon í gær. Þar sagð­ist hún hrædd um að mik­ill fjöldi karla hefði eitt­hvað á sam­visk­unni.

Venjulegir menn

Miðað við fjölda hörmu­legra frá­sagna kvenna sem hrann­ast hafa upp á sam­fé­lags­miðlum er það ekki ósenni­legt. Sumum sög­unum fylgir að ger­end­urnir, sem þolendur rekast á í sínu dag­lega lífi mörgum árum seinna, hafi verið taldir svo „góðir strákar“ að ótt­inn við að vera ekki trúað hefði komið í veg fyrir að þolendur opn­uðu sig, fyrr en nú.

En góðir strákar og venju­legir menn geta líka gert slæma hluti. Það þarf ekki að vera neitt skrímsli til þess. Og nú eru þeir hvattir til að stíga fram, gera upp við sam­visk­una, en ekki síst – ræða um hlut­ina sín á milli – svo umræðan í sam­fé­lag­inu fær­ist áfram.

Sömu­leiðis hefur verið kallað eftir því að karlar geri meira til þess að fræða sig um kyn­ferð­is­legt ofbeldi gegn konum. Það sé ekki þeirra að upp­fræða karla um hvar mörk í sam­skiptum eigi að liggja.

Á sam­fé­lags­miðlum hafa margir mælt með nám­skeiði Stíga­móta, Banda­menn, þar sem fjallað er um kyn­ferð­is­of­beldi gegn konum með sér­stakri áherslu á hvað karlar geta gert til að berj­ast gegn því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár