Endalok NRA?

The National Rifle Association, Samtök bandarískra byssu­eigenda, standa frammi fyrir alvarlegustu tilvistar­krísu í nærri 150 ára sögu sinni. Það er allsendis óvíst að samtökin lifi af fjárhags­vandræði, spill­ing­armál og innan­hússátök sem hafa skekið samtökin síðasta árið.

Charles Heston
Charles Heston End­ur­vakti slag­orðið: From my cold, dead hands, á lands­fundi NRA, ári eftir skotárás í Columbine-mennta­skól­anum þar sem tólf nem­endur voru myrtir og einn kenn­ari.

Enginn þrýsti­hópur í Banda­ríkjunum er jafn öflugur og samtök byssu­eigenda, The National Rifle Association, NRA. Samtökin og fimm milljón meðlimir þeirra hafa gríðarleg áhrif í kosningum, og það er fyrst og fremst þeim að þakka að allar tilraunir til hertrar byssu­löggjafar í Banda­ríkjunum hafa verið barðar niður. 

Þessi hættulegustu samtök Banda­ríkjanna virðast hins vegar vera að sligast undan gríðar­legum skuldum, innan­hússátaka og spillingar, auk þess sem opinberar rann­sóknir gætu leitt til þess að starfsemi þeirra yrði stöðvuð. NRA gæti liðið undir lok.

Opinberar rannsóknir

Föstu­daginn 19. júlí stefndi saksóknari The District of Columbia NRA til að afhenda öll gögn tengd fjár­reiðum samtak­anna. 

Þetta er önnur stefnan sem ríkis­saksóknarar hafa birt samtökunum. Í vor hóf saksóknari New York-ríkis rannsókn á samtökunum. Samtökin eru grunuð um að hafa brotið lög um starfsemi félaga­samtaka sem njóta skatt­frelsis. Ef samtökin eru fundin sek gætu hvort heldur saksóknara­embætti New York eða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár