Verðtryggð íbúðalán stóru bankanna taka stökk upp á við

Bankarnir hafa ekki lánað jafn lítið til heimila og fyrir­tækja innan mánaðar og þeir gerði í ágúst síðan í lok síðasta árs. Samdrátt­urinn var mestur í lánum til fyrir­tækja. Vinsældir verð­tryggðra íbúðalána tóku mikinn kipp.

Þeir sem eru að flytja sig um íbúðahúsnæði, og taka til þess ný íbúðalán, eru í auknum mæli að taka verðtryggð lán í 9,7 prósent verðbólgu.
Þeir sem eru að flytja sig um íbúða­hús­næði, og taka til þess ný íbúða­lán, eru í auknum mæli að taka verð­tryggð lán í 9,7 pró­sent verð­bólgu. Mynd: Pexels

Stóru íslensku bankarnir þrír: Lands­bankinn, Íslands­banki og Arion banki, lánuðu alls 5,3 milljarða króna verð­tryggt til heimila landsins í ágúst­mánuði og tóku veð íbúð, að frádregnum upp- og umfram­greiðslum. Því er um að ræða íbúðalán, og þorri þeirra var á föstum vöxtum. Fastir verð­tryggðir vextir bankanna þriggja eru nú að jafnaði um 2,1 prósent.

Til saman­burðar eru óverðtryggðir breyti­legir vextir bankanna nú á bilinu sjö til 7,4 prósent og hafa ekki verið hærri síðan 2015.

Verð­tryggð íbúðalán bankanna þriggja til heimila landsins jukust um 3,7 milljarða króna í síðasta mánuði og hafa ekki verið meiri innan eins mánaðar síðan í júlí 2018, þegar verð­tryggðu útlánin til heimila námu 6,2 milljörðum króna. Þá var staðan í hagkerfinu hins vegar allt önnur og verðbólga mældist 2,6 prósent. Aðstæður til að taka verð­tryggð lán voru þar af leiðandi mun skaplegri en í dag.

Þetta má lesa út úr nýbirtum hagtölum Seðla­banka Íslands um banka­kerfið.

Þar kemur einnig fram að óverðtryggð íbúðalán til heimila hafi verið 10,8 milljarðar króna í í ágúst, sem er 4,8 milljörðum krónum minna en bankarnir lánuðu óver­tryggt til íbúðar­kaupa í júlí­mánuði.

Mikill samdráttur í útlánum til fyrirtækja

Þessi þróun er líka athyglis­verð í ljósi þess að ný útlán banka heilt yfir drógust gríðar­lega saman í ágúst. Þeir lánuðu alls 29,4 milljarða króna í þeim mánuði sem er rúmur helmingur þess sem bankarnir lánuðu í júlí. Raunar hafa þeir ekki lánað jafn lítið innan mánaðar síðan í desember í fyrra. Til að setja viðsnúninginn í annað samhengi má benda á að í maí lánuðu Lands­bankinn, Íslands­banki og Arion banki viðskipta­vinum sínum, jafnt heimilum sem fyrir­tækjum, alls 68,1 milljarð króna. Það voru mestu nettó útlán banka hér­lendis innan mán­aðar sem birst hafa í hag­tölum Seðla­banka Íslands, sem ná aftur til byrjun árs 2013.

Í síðasta mánuði munaði mestu um mikinn samdrátt í útlánum til atvinnu­fyrirtækja. Lán til þeirra tóku verulega við sér í upphafi árs og frá síðustu áramótum og til loka júlí­mánaðar lánuðu bankarnir þrír slíkum alls 183,7 milljarða króna.

Í síðasta mánuði námu útlán til fyrir­tækja, að frádregnum upp- og umfram­greiðslum, hins vegar einungis 6,9 milljörðum króna. Það er minna en fjórðungur þess sem lánað var til þeirra í júlí.

Miklar vaxtahækkanir gera lántöku mun dýrari en áður

Ástæður þessarar þróunar ættu að vera öllum ljósar. Mikil verðbólga hefur kallað á miklar vaxta­hækkanir – Seðla­bankinn hefur hækkað stýri­vexti úr 0,75 í 5,5 prósent síðan í maí í fyrra – sem gera alla lántöku miklu dýrari en áður.

Á heimasíðu Alþýðu­sambands Íslands (ASÍ) var nýverið tekið dæmi af breyti­legu óverðtryggðu láni upp á 43,2 milljónir króna sem tekið var í fyrravor til að kaupa 90 fermetra íbúð í Kópavogi.

Greiðslu­byrði þess láns hefur hækkað um 102 þúsund krónur á mánuði og er nú 266 þúsund krónur. Á ársgrundvelli nemur aukin greiðslu­byrði lánsins rúmlega 1,2 milljónum króna.

Á sama tíma hefur greiðslu­byrði á verð­tryggðum lánum hækkað mun hægar. Ástæða þess að greiðslu­byrði verð­tryggðra lána er lægri er sú að verð­bætur leggj­ast á höf­uð­stól lána.

Verð byrjað að lækka

Íbúðaverð á höfuð­borgar­svæðinu hefur hækkað um 48 prósent frá því að kórónu­veiru­faraldurinn hófst snemma árs 2020 og um 23 prósent síðustu tólf mánuði. Það er langt umfram verðbólgu á tíma­bilunum. Þessi mikla hækkun hefur verið drif­krafturinn í verð­bólgunni undan­farin misseri og skörpum vaxta­hækkunum Seðla­banka Íslands var ætlað að draga úr henni. Tilgangurinn var að kæla íbúða­markaðinn.

Það hefur tekist að einhverju leyti. Samkvæmt síðustu tölum Þjóðskrár um vísitölu íbúða­verðs á höfuð­borgar­svæðinu lækkaði hún um 0,4 prósent í ágúst. Það var í fyrsta sinn síðan í nóvember 2019 sem íbúðaverð á höfuð­borgar­svæðinu lækkaði milli mánaða. Lækkunin kom til vegna þess að vísitalan fyrir sérbýli gaf eftir en verð á fjölbýli á svæðinu hélt áfram að hækka í ágúst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár