Utanríkisráðherrar ESB-ríkja funda vegna hryðjuverkaógnar

Utan­ríkis­ráðherrar 28 Evrópu­sambands­ríkja hafa verið boðaðir til fundar í Brussel þar sem umræðu­efnið verður hryðjuverkaógn í Evrópu og stefnu­mörkun Evrópu­sambandsins til þess að draga úr henni. Aðal­ritari Araba­banda­lagsins, Nabil al-Arabi, mun einnig mæta á fundinn til þess að taka þátt í umræðum, en Federica Mogherini, utan­ríkismála­stjóri Evrópu­sambandsins, hefur kallað eftir því að Evrópu­þjóðir starfi meira með Araba- og múslima­þjóðum til þess að ná betri árangri í aðgerðum gegn hryðju­verkum, samkvæmt frásögn breska ríkis­útvarpsins BBC.

Fundurinn er boðaður á sama tíma og hryðjuverkaógn hefur verið viðver­andi í Brussel, eftir að 17 óbreyttir borgarar voru drepnir í París, í árásum á ritstjórnar­skrifstofu skop­mynda­ritsins Charlie Hebdo og verslunar­kjarna Gyðinga. Opinberar byggingar í Brussel eru vaktaðar af lögreglu og þung­vopnuðum hermönnum.

Eitt af því sem lögreglu­yfirvöld í Evrópu óttast er að evrópskir borgarar, sem hafa tekið þátt í hernaði í Írak og Sýrlandi, muni snúa aftur til baka og fremja morð og glæpi. Þúsundir Evrópubúa hafa farið til landanna tveggja, samkvæmt upplýsingum sem teknar hafa verið saman af yfir­völdum í Evrópu­ríkja.

Hér má sjá upplýsingar um fjölda fólks frá Evrópu, eða með ríkis­borgararétt Evrópu­lands, sem tekið hefur þátt í átökum í Írak og Sýrlandi. BBC birti upplýsingarnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár