Þrýst á HSBC bankann að lækka bónusgreiðslur í kjölfar skattahneykslis

Eftir að upp komst um að breski HSBC bankinn hefði aðstoðað viðskipta­vini sína við skatta­undanskot, hefur verið skorað á æðstu stjórn­endur bankans að þeir afsali sér bónus­greiðslum fyrir yfir­standandi ár. Viðskipta­frétta­miðillinn City A.M. greinir frá málinu.

Í frétt City A.M. er greint frá því að fastlega megi reikna með að hluthafar, stjórn­málamenn og fjöl­miðlar fari gaum­gæfilega ofan í saumanna á bónus­greiðslum til starfs­manna þegar árseikningur bankans lítur dagsins ljós á mánudaginn.

Samkvæmt umfjöllun The Financial Times hvetja hluthafar HSBC stjórn bankans til að halda aftur af sér, þar sem bankinn hafi verið áberandi í fréttum að undan­förnu fyrir vafasama starfs­hætti.

Samkvæmt ársreikningi HSBC er búst við að laun banka­stjórans Stuart Gulliver verði lækkuð á næsta ári um 500 þúsund pund og fari úr átta milljónum punda niður í sjö og hálfa milljón. Á meðan er reiknað með að laun annarra stjórn­enda lækki mun meira í kjölfar 618 milljóna dala fjár­sektarinnar sem eftirlits­stofnanir á Bretlands­eyjum og Banda­ríkjunum lögðu á bankann eftir að upp komst um skatta­skjóls­hneykslið.

HSBC hneykslið er orðið að miklu pólitísku þrætuepli í breskum stjórn­málum. Breski verkamanna­flokkurinn hefur sakað ríkis­stjórn breska íhalds­flokksins og frjáls­lyndra um linkind í garð bankans, og fyrir að hafa ekki látið sverfa til stáls með saksóknum eftir að upp komst um hneykslið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár