Staða efnahagsmála í Rússlandi versnar og versnar

Staða efnahags­mála í Rússlandi er slæm í augna­blikinu og til marks um það þá hækkaði verðlag um níu prósent í nóvember­mánuði. Hækkunin koma að mestu leyti fram seinni part mánaðarins, samkvæmt tölum frá hagstofunni í Rússlandi sem vitnað er til í fréttum Quartz.

Þannig hækkað verð á kjöti um 18,2 prósent milli ára og mjólkur­afurðir um 14,3 prósent. Margar fersk­vörur hafa hækkað umtals­vert og grænmeti sömuleiðis. Meðal annars hafa ferskir tómatar hækkað um 35 prósent og kartöflur um 21 prósent. Hækkunin það sem af er ári nemur um 40 prósentum, sen Steve Rosenberg, frétta­ritari BBC, skrifaði meðal um þessa þróun á Twitter á dögunum.

Shopping in Ryazan. The good news: there's plenty of buckwheat. The bad news: food prices up 40% since start of year pic.twitter.com/gY0YQ9FnRu

— Steve Rosenberg (@BBCSteveR) December 5, 2014

Margt helst í hendur sem gerir Rússum erfitt fyrir um þessar mundir. Efnahags­þvinganir Evrópu­sambands­ríkjanna og Banda­ríkjanna hafa haft veruleg áhrif, og vísbendingar eru uppi um að innflutnings­bann Rússa gagnvart fjölmörgum ríkjum, hafi þrýst upp verði með tilheyrandi verðbólgu­áhrifum og ekki styrkt hagkerfið heldur veikt það. Samt hefur bannið mælst vel fyrir hjá almenningi í könnunum, samkvæmt frásögnum rússneskra fjölmiðla.

Ofan í þetta hefur verðfall á olíu bein áhrif á undirstöðu­atvinnuveg Rússa, orku- og olíu­geirann. Frá í júlí hefur olía lækkað um meira 30 prósent í verði.

Í byrjun síðustu viku kom Vladímir Pútín Rúss­lands­forseti fram í sjónvarps­ávarpi og lýsti því yfir, að mikla líkur væru á því að Rússar myndu sigla inn í kreppu á næsta ári, eftir mikinn uppgangs­tíma undan­farin ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár