Ákvörðun um lækkun vaxta í Kína staðfestir áhyggjur yfirvalda af gangi mála

Ákvörðun Seðla­banka Kína, um að lækka stýri­vexti um 0,25 prósentu­stig niður í 4,35 prósent, hefur verið vel tekið á mörkuðum, ekki síst í Banda­ríkjunum, en þar hefur Nasdaq vísitalan hækkað um tæplega tvö prósent.

Þetta er í sjötta skipti síðan í nóvember í fyrra sem vextirnir eru lækkaðir, en að sögn CNBC, þá miðar lækkunin að því að örva kínverska hagkerfið. Að undan­förnu hafa hagtölur í Kína verið neikvæðar, en hagvöxtur fór í fyrsta skipta undir sjö prósent á þriðja ársfjórðungi, frá því árið 2009. 

Stjórn­völd vonast til þess að hagvöxtur verði í það minnsta sjö prósent á árinu. Ákvörðunin um vaxta­lækkun þykir staðfesta að stjórn­völd hafi áhyggjur af því að kínverska hagkerfið sé að sigla í gegnum erfið­leika, sem gætu orðið meiri á næstu misserum. Innflutningur hefur dregist saman í landinu og það sama má segja um útflutning.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár