Kostnaður Lögmannafélagsins vegna máls Jóns Steinars tæpar 10,8 milljónir króna

Heildar­kostnaður Lögmanna­félags Íslands vegna málaferla sem félagið stóð í gegn Jóni Steinari Gunnlaugs­syni nam í heildina tæpum 10,8 milljónum króna frá árinu 2017.

Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður fékk áminningu sinni frá úrskurðarnefnd lögmanna hnekkt fyrir Hæstarétti.
Jón Steinar Gunn­laugs­son lög­maður fékk áminn­ingu sinni frá úrskurð­ar­nefnd lög­manna hnekkt fyrir Hæsta­rétti. Mynd: Skjáskot úr útsendingu RÚV

Heildar­kostnaður Lögmanna­félags Íslands, vegna málaferla sem félagið stóð í gegn Jóni Steinari Gunnlaugs­syni og lauk með dómi Hæstaréttar í lok apríl, nam í heildina tæpum 10,8 milljónum króna frá árinu 2017.

Þar af runnu 8,55 milljónir króna til LOGOS lögmanns­þjónustu vegna starfa Óttars Pálssonar og annarra lögmanna stofunnar fyrir Lögmanna­félagið, auk þess sem Lögmanna­félagið var dæmt til þess að greiða rúmar 2,2 milljónir í máls­kostnað vegna málsins gegn Jóni Steinari, sem Lögmanna­félagið tapaði fyrir Hæstarétti.

Farið var sérstak­lega yfir kostnað Lögmanna­félagsins af málinu á aðalfundi Lögmanna­félagsins í dag á Hótel Nordica í dag, en fundinum var einnig streymt í beinni útsendingu á YouTube.

Málið sem um ræðir hófst eftir að úrskurðar­nefnd lögmanna gerði Jóni Steinari að sæta áminningu vegna framgöngu sinnar í samskiptum við Ingimund Einarsson, þáverandi dómstjóra Héraðs­dóms Reykja­víkur, árið 2016.

Í þeim samskiptum sakaði Jón Steinar meðal annars dómstjórann um „hroka og yfirlæti“, sagðist kenna í brjósti um hann og sagði hann ekki virðast vera í góðu jafnvægi.

Ingimundi blöskraði orðbragðið í tölvupóst­skeytum Jón Steinars til hans og sendi erindi um málið til stjórnar Lögmanna­félagsins, sem ákvað að láta úrskurðar­nefnd lögmanna fara yfir málið.

Jón Steinar hlaut í kjölfarið formlega áminningu frá úrskurðar­nefndinni. Hann vildi ekki fella sig við áminninguna og höfðaði ógildingarmál, sem teygði sig alla leið upp í Hæstarétt.

Héraðs­dómur Reykja­víkur komst fyrst að þeirri niður­stöðu að áminningin mætti standa, en Lands­réttur komst svo að þeirri niður­stöðu í fyrra að fella ætti áminningu úrskurðar­nefndar lögmanna úr gildi.

Lögmanna­félagið áfrýjaði niður­stöðu Lands­réttar í málinu til Hæstaréttar, sem klofnaði 3-2 í málinu, en dæmdi Jóni Steinari í vil.

Nokkrar umræður spunnust um málið, lyktir þess og kostnaðinn sem hér er fjallað um á aðalfundi Lögmanna­félagsins í dag og hafði Jón Steinar sjálfur sig þar töluvert í frammi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár