Fimm látnir eftir skotárásina í Sviss - Byssumaðurinn á meðal þeirra látnu

Fimm létust í Würenlingen í Sviss í gær þegar 36 ára gamall Sviss­lendingur skaut foreldra sína, bróður, nágranna þeirra og loks sjálfan sig. Lögreglan þekkti til byssu­mannsins sem var giftur og átti þrjú börn. Hann skaut fólkið, og sjálfan sig, með skamm­byssu. Þetta kom fram á blaðamanna­fundi með lögreglunni í kantónunni Aargau, en Würenlingen tilheyrir henni, fyrir skemmstu. Ástæða morðanna er talin vera fjölskyldu­erjur.

Kjarninn greindi frá skot­árásinni í morgun.

Um 4.500 manns búa í litla bænum Würenlingen, sem er skammt frá Zurich. Maðurinn skaut fyrst foreldra sína, sem voru 57 og 58 ára gamlir, og síðan 32 ára gamlan bróður sinn á heimili þeirra. Hann skaut síðan 46 ára gamlan nágranna þeirra áður en hann tók eigin líf.

Hverfið þar sem morðin voru framin þykir fjölskyldu­vænt hverfi. Nágranni, sem svissneska dagblaðið Blick ræddi við, sagðist hafa heyrt fjórum skotum hleypt af á mjög skömmum tíma, og svo tveimur í viðbót stutt seinna. Vitnið sagðist ekki hafa heyrt nein öskur frá fórnar­lömbunum samkvæmt Blick.

http://www.news.com.au/video/id-FrMjMwdToUott8CHWIleapeionH-wtvM/Several-people-killed-in-Swiss-shooting

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem skotárás er framin í Würenlingen . Árið 1985 skaut Alfredo Lardelli eiginmann fyrrum elskuhuga síns og tvær vændis­konur. Sá verknaður átti sér stað um 100 metrum frá voða­verkum gærdagsins. Lardelli hlaut 20 ára fangelsisdóm. Eftir að honum var sleppt úr fangelsi hefur hann starfað við fjölmiðla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár