Blóðbað í Sviss - byssumaður skaut marga til bana í Würenlingen

Ótilgreindur fjöldu fólks er látinn eftir byssu­maður skaut og drap fólk í íbúða­hverfi í bænum Würenlingen í Sviss, sem tilheyrir kantónunni Aargau, seint í gærkvöldi. Fjöldi hinna látnu hefur ekki verið gerður opinber að öðru leyti en að um marga sé að ræða. Byssu­maðurinn er talinn vera á meðal þeirra látnu. Lögreglan á svæðinu mun halda blaðamanna­fund á næstu klukku­tímum og segja nánar frá því sem átti sér stað þar. Frá þessu er greint á vef Svissneska ríkis­sjón­varpsins SRF. Þó hefur komið fram að morðin eru talin tengjast fjölskyldu­deilum og að ekki sé talið að um hryðju­verk sé að ræða.

 

"Hræðilegur glæpur"


Þar segir að lög­reglan í Aargau hafi fundið mörg lík í og við íbúða­bygg­ingu í Würenlingen. Allir hinna látnu eru full­orðið fólk og verið er að bera kennsl á þau. Bernhard Graser, tals­maður lög­regl­unnar í Aarfau, sagði að "hræði­legur glæpur" hafi átt sér stað. Hann sagði einnig að engin leitar­að­gerð væri í gangi og að því er talið nokkuð öruggt að byssu­mað­ur­inn sé á meðal þeirra látnu.

Hverfið þar sem morðin voru framin þykir fjölskyldu­vænt hverfi. Nágranni, sem svissneska dagblaðið Blick ræddi við, sagðist hafa heyrt fjórum skotum hleypt af á mjög skömmum tíma, og svo tveimur í viðbót stutt seinna. Vitnið sagðist ekki hafa heyrt nein öskur frá fórnar­lömbunum samkvæmt Blick.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár