Vilja að ríkið eignist Landssímahúsið við Austurvöll

Fjórir þing­menn vilja að ríkið eign­ist Lands­síma­húsið með því að leita samn­inga um kaup rík­is­ins á hús­inu en að öðrum kosti hefja und­ir­bún­ing þess að ríkið taki eign­ar­námi þann hluta bygg­ing­ar­lóðar sem til­heyrir Vík­ur­kirkju­garði.

Landssímareiturinn
Lands­símareit­ur­inn Mynd: Bára Huld Beck

Fjórir þing­menn hafa lagt fram til­lögu til þings­á­lykt­unar um að ríkið eign­ist Lands­síma­húsið við Aust­ur­völl. Þing­menn­irnir vilja að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra beiti sér fyrir því að ríkið eign­ist Lands­síma­húsið með því að leita samn­inga um kaup rík­is­ins á hús­inu en að öðrum kosti hefja und­ir­bún­ing þess að ríkið taki eign­ar­námi þann hluta bygg­ing­ar­lóðar sem til­heyrir Vík­ur­kirkju­garði.

Fyrsti flutn­ings­maður er Ólafur Ísleifs­son, þing­maður utan flokka, en með honum eru Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Karl Gauti Hjalta­son, þing­maður utan flokka, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þing­maður og for­maður Mið­flokks­ins.

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni segir að sam­kvæmt stjórn­ar­skránni sé Alþingi frið­heil­agt og megi eng­inn raska friði né frelsi þess. Fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir og starf­semi á Lands­símareitnum við Aust­ur­völl – þar sem rísa eiga stórt og mikið hótel og veit­inga­staðir með til­heyr­andi umferð ferða­manna og hóp­ferða­bíla – megi telj­ast fela í sér röskun á þing­friði í and­stöðu við umrætt ákvæði.

„Áður hefur verið bent á að frið­helgi Alþingis sé virt að vettugi með áformunum og kærði for­sætis­nefnd Alþingis m.a. deiliskipu­lag svæð­is­ins til úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála á sínum tíma,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Jafn­framt kemur fram að fleiri rök séu fyrir því að ríkið eign­ist Lands­síma­húsið eða eftir atvikum umráða­rétt yfir Lands­símareitnum. Sem dæmi er nefnt að á Lands­símareitnum hafi á tíma­bili verið kirkju­garður Reyk­vík­inga. Í grein Helga Þor­láks­sonar, pró­fess­ors emeritus, „Gef dánum ró en hinum líkn sem lifa“, sem birt­ist í Frétta­blað­inu þann 14. apríl árið 2016, segir að upp­haf kirkju­garðs Vík­ur­kirkju megi rekja hátt í 1000 ár aftur í tím­ann og að þar hafi verið jarðað fólk á seinni hluta 19. aldar. Í grein­inni segir enn fremur: „En leg­steinar molna og minn­ingar hverfa. Þegar svo stendur á er gam­all og góður siður að sýna kirkju­görðum virð­ingu, setja upp minn­ing­ar­mark um hina fram­liðnu og leyfa lif­endum að njóta þess friðar sem hinum fram­liðnu er veittur.“

Samkvæmt grein­ar­gerð­inni með til­lög­unni er í tölvu­pósti Helga Þor­láks­sonar til fyrsta flutn­ings­manns lýst hvernig rík­is­stjórnin hafi á árunum 1965 til 66 gripið inn í rás atburða sem ógn­aði gamla kirkju­garð­inum og komið í veg fyrir að mikil bygg­ing, en álíka stór og sem næst alveg á sama stað og sú sem nú er áformað að þar hýsi hótel, risi sunnan við Lands­síma­húsið.

Skipu­lags­nefnd kirkju­garða, undir for­ystu Sig­ur­bjarnar Ein­ars­sonar bisk­ups og Krist­jáns Eldjárn þjóð­minja­varðar, hefði í mars 1965 vakið athygli borg­ar­lög­manns á því að lög heim­il­uðu ekki að þarna yrði reist mann­virki nema sam­kvæmt sér­stakri und­an­þágu ráð­herra, að fengnu sam­þykki skipu­lags­nefndar kirkju­garða sem var fyr­ir­renn­ari núver­andi kirkju­garða­ráðs. Sam­bæri­legt ákvæði er enn í lögum, sam­kvæmt grein­ar­gerð til­lög­unnar.

Í bréfi Helga kom fram að rík­is­stjórnin hefði á fundi sínum þann 9. sept­em­ber 1965 fjallað um nauð­syn þess að ekki yrði leyfð bygg­ing norðan Kirkju­strætis, milli Aðal­strætis og Thor­vald­sens­strætis. Í bréfi til dóms- og kirkju­mála­ráðu­neytis frá 16. nóv­em­ber 1966, sem Jón Skúlason rit­aði fyrir hönd póst- og síma­mála­stjóra, nefnir hann Vík­ur­kirkju­garð og segir að hann sé ástæða þess að rík­is­stjórnin hefði „bannað“ hina umræddu bygg­ingu. Loks hefði verið sæst á um helm­ingi minni bygg­ingu, þ.e. við­bygg­ing­una við Lands­síma­húsið sem var brotin niður nýlega.

Í grein­ar­gerð­inni kemur jafn­framt fram að sam­komu­lag milli Alþingis og Lind­ar­vatns, nýs eig­anda Lands­síma­húss, hafi legið fyrir þann 15. maí árið 2015. „Fram hefur komið í fjöl­miðlum að eig­and­inn sé til­bú­inn til að beita sér fyrir að inn­gangur hót­els­ins valdi sem minnstu ónæði fyrir húsin næst Alþing­is­hús­inu. Í við­tölum hefur komið fram að nið­ur­staðan hafi orðið sú að inn­gangur hót­els­ins yrði ekki frá Kirkju­stræti. Það þýði að aðal­að­koma verði að vera frá Thor­vald­sens­stræti eða um Fógeta­garð­inn. Í bréfi dags. 22. mars 2016 til Alþingis var því heitið fyrir hönd Lind­ar­vatns að aðal­inn­gangur yrði ekki frá Aust­ur­velli, aðeins auka­inn­gangur. Aðal­inn­gangur yrði úr Vík­ur­garði. Stefnt hefði verið að hinu síð­ar­nefnda en fram hefði komið að Minja­stofnun væri því and­víg. Minja­stofnun vill ekki að aðal­inn­gangur verði um Fógeta­garð (Vík­ur­garð).

Bent er á að hafa verður hug­fast að auk aðkomu gesta þarf að huga að aðflutn­ingi ýmissa vara og vista og ann­arra nauð­synja til hót­el­rekstrar og því fylgir bíla­um­ferð. Fram hafi komið í fjöl­miðlum að slökkvi­lið þurfi einnig aðkomu­braut um Fógeta­garð­inn fyrir slökkvi­tæki sem kosta muni mikið rask í garð­inum. Fram kemur á upp­drætti að fyr­ir­huguð braut fyrir tæki slökkvi­liðs er í Fógeta­garði. Kemur fram að þetta hafi ýtt við Minja­stofnun að óska frið­lýs­ingar Fógeta­garðs­ins. Tilkynnt var 8. jan­úar 2019 að mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefði fall­ist á til­lögu Minja­stofn­unar um frið­lýs­ingu Vík­ur­garðs. Gerir það örð­ugt um vik að finna lausnir á inn­gangs­vand­anum og braut fyrir slökkvi­liðið. Allt sýnir þetta að hót­elið er of stórt og á of við­kvæmum stað þótt ekki væri einnig kirkju­garði til að dreifa.“

Flutn­ings­menn telja ein­sýnt að sam­eina verði virð­ingu við graf­reit­inn og virð­ingu við frið­helgi Alþingis með öðrum hætti en að breyta reitnum í ferða­manna­mið­stöð. Fyr­ir­hug­uðu hót­eli sé ofaukið í hjarta höf­uð­stað­ar­ins og auk grófra helgi­spjalla sé mik­il­vægu og sögu­frægu svæði fórnað fyrir einka­hags­muni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár