Sendiherrastöður verði auglýstar en ráðherra samt heimilt að skipa sendiherra án auglýsingar

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra boðar breyt­ingar á umgjörð þess hvernig sendi­herrar verða skip­aðir í fram­tíð­inni. Hann hefur ekki skipað einn nýjan sendi­herra frá því að hann tók við sem ráð­herra.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Verði frum­varp Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra að lögum mun verða sett þak á fjölda sendi­herra á hverjum tíma þannig að þeir verði aldrei fleiri en fjöldi sendi­skrif­stofa að fimmt­ungi við­bættum. Í dag eru sendi­skrift­stof­urnar 25 tals­ins og hámarks­fjöldi sendi­herra væri því 30 ef frum­varpið væri orðið að lögum, en þeir eru 36 í dag. Enginn sendi­herra verður rek­inn heldur verður ekki skip­aður nýr fyrr en að þeim hefur verið fækkað niður fyrir 30.

Frá þessu greinir Guð­laugur Þór í aðsendri grein sem birt er í Morg­un­blað­inu í dag.

Í frum­varp­inu felst einnig að laus emb­ætti sendi­herra verða að vera aug­lýst laus til umsóknar og umsækj­endum gert að upp­fylla lög­á­kveðin hæf­is­skil­yrði. Gert verður ráð fyrir að umsækj­endur verði að hafa háskóla­próf og reynslu af alþjóða- og utan­rík­is­málum. Samkvæmt frum­varp­inu verður þó utan­rík­is­ráð­herra áfram heim­ilt að skipa „ein­stak­ling tíma­bundið til allt að fimm ára í emb­ætti sendi­herra til að veita sendi­skrif­stofu for­stöðu eða að gegna hlut­verki sér­staks erind­reka án þess að starfið yrði aug­lýst. Skipun þeirra sem koma að starfi sínu með þessum hætti verður þó hvorki heim­ilt að fram­lengja eða senda annað og fjöldi þeirra má ekki nema meira en fimmt­ungi af heild­ar­fjölda skip­aðra sendi­herra. Að þessu marki yrði ráð­herra áfram heim­ilt að leita út fyrir raðir fastra starfs­manna utan­rík­is­þjón­ust­unnar eftir sendi­herrum sem hafa aflað sér sér­þekk­ingar, reynslu og tengsla á öðrum vett­vangi, svo sem í stjórn­málum eða í atvinnu­líf­inu, til að ann­ast afmörkuð verk­efni í þágu hags­muna Íslands á alþjóða­vett­vangi. Með þessu móti verður þeirri heim­ild, sem nú er ótak­mörkuð, settar mál­efna­legar skorður.“

Þar segir enn fremur að frum­varpið geri ráð fyrir þeirri breyt­ingu að ráð­herra geti tíma­bundið sett lægra setta starfs­menn, sendi­full­trúa, í emb­ætti sendi­herra.

Hefur ekki skipað einn sendi­herra

Í grein­inni segir Guð­laugur Þór að sam­kvæmt núgild­andi lögum hafi ráð­herra að mestu leyti frjálsar hendur við skipan sendi­herra. Engar sér­stakar hæfn­is­kröfur séu gerðar til sendi­herra umfram það sem almennt tíðkast og emb­ætti þeirra séu und­an­þegin aug­lýs­inga­skyldu áður en í þau er skipað. „Þessi skipan mála hefur sætt gagn­rýni. Auk þess hefur sendi­herrum fjölgað jafnt og þétt hin síð­ustu ár og er nú svo komið að fjöldi þeirra sam­ræm­ist illa umfangi og verk­efnum utan­rík­is­þjón­ust­unnar. Þetta hefur einnig leitt til þess að fram­gangur yngri starfs­manna hefur reynst hæg­ari en ella enda er þröngt á fleti fyrir þegar fjórð­ungur starfs­manna utan­rík­is­þjón­ust­unnar gegnir stjórn­enda­stöðu.“

Guð­laugur Þór bendir á að frá því að hann tók við sem utan­rík­is­ráð­herra 11. jan­úar 2017 hafi hann ekki skipað neinn nýjan sendi­herra eftir að ég tók við emb­ætti. Þeim hafi á sama tíma fækkað um fjóra, úr 40 í 36. „Það er eins­dæmi í síð­ari tíma sögu utan­rík­is­þjón­ust­unnar að meira en þrjú ár líði án þess að nýr sendi­herra sé skip­aður.“

Utan­rík­is­ráð­herra seg­ist vera þeirrar skoð­unar að óbreytt fyr­ir­komu­lag stand­ist ekki lengur og því ætlar hann að leggja fram áður til­greindar breyt­ingar í frum­varp­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár