Hershöfðingi viðurkennir „hörmuleg mistök“ Bandaríkjahers

John F. Campbell, hers­höfðingi í Band­ríkjaher, viðurkenndi að herinn hefði fyrir mistök gert loftárás á sjúkrahús Lækna án landamæra við Kunduz í Afganistan, 3. október síðastliðinn, með þeim afleiðingum að nítján létust, þar af níu starfs­menn sjúkra­hússins. Þetta kom fram í dag, þegar hann fjallaði um árásina í Banda­ríkjaþingi og svaraði spurningum. Sjúkra­húsið er gjörónýtt og mikilvægt starf þess á stríðs­hrjáðu svæði liggur niðri.

Hann vildi ekki nefna hver það hefði verið, sem fyrir­skipaði árásina og á hvaða forsendum, en sagði að hún hefði verið tekin innan þess ákvarðana­ferils sem væri í bandarískri stjórn­sýslu og hjá Bandaríkjaher, þegar árásir sem þessar væru annars vegar.

Læknar án landamæra segja árásina vera stríðs­glæp, en Campbell sagðist ekki geta gefið tæmandi upplýsingar um árásina að svo stöddu, fyrr en rannsókn væri lokið á því sem átti sér stað. Hann sagðist þó geta sagt að um mistök hefði verið að ræða, og þau væru hörmuleg í ljósi afleiðinganna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár