Segir yfirlýsingar MS „í besta falli hlægilegar“

Forsvars­menn Mjólku gefa lítið fyrir yfir­lýsingar Mjólkur­samsölunnar, sem dæmd var fyrir að misnota markaðs­ráðandi stöðu sína, um að aðgerðir hennar hefðu verið gerðar í góðri trú.

Mjólkurvörur frá MS
Mjólk­ur­vörur frá MS Mynd: Mjólkursamsalan

Samkeppnis­hamlandi aðgerðir Mjólkur­samsölunnar (MS) voru þaul­skipulagðar var þeim ætlað að koma keppinautum hennar út af markaði, samkvæmt forsvars­mönnum Mjólku og Mjólkur­búsins Kú. Í frétta­tilkynningu sem send var á fjölmiðla í dag segja þeir yfir­lýsingar MS um að aðgerðir hennar hafi verið gerðar í góðri trú „í besta falli hlægilegar.“

Líkt og Kjarninn greindi frá síðastliðinn fimmtudag komst Hæstiréttur að því að MS hafi mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína og mis­munað við­skipta­að­ilum sínum með því að að selja hrá­mjólk til vinnslu mjólk­ur­af­urða á hærra verði til keppi­nauta en til eigin fram­leiðslu­deildar og tengdra aðila. MS var gert að greiða alls 480 millj­ónir króna í rík­is­sjóðs vegna þeirra sam­keppn­islaga­brota.

Í kjölfar dóms Hæstaréttar sendi Mjólkur­samsalan frá sér frétta­tilkynningu þar sem fullyrt var að aðgerðir hennar hefðu verið í góðri trú og að MS hafi alltaf talið sig vera að vinna í samræmi við lög. Mjólkur­samsalan bætir einnig við að hagræðing í mjólkurðinaðinum vegna laga­breytinga sem heimiluðu verka­skiptingu og samstarf afurðar­stöðva í mjólkur­iðnaði hafi skilað milljarða króna ávinningi til samfélagsins á hverju ári.

Forsvars­menn Mjólku og mjólkur­búsins Kú draga þessar yfir­lýsingar hins vegar í efa í frétta­tilkynningu sinni: „Aðgerðir MS voru þaul­skipulagðar og þeim ætlað að koma keppinautum MS út af markaði og gera þá ógjaldfæra með alvarlegum afleiðingum fyrir starfs­fólk þeirra, lána­drottna og eigendur. Kalla verður eftir ábyrgð þeirra sem stýrðu þessari aðför með svo illgjörnum og óvægnum hætti,“ segir í yfir­lýsingunni. Einnig bæta þeir við að yfir­lýsingar MS um að aðgerðir þeirra hafi verið gerðar í góðri trú „í besta falli hlægilegar.“

Þeir segja einnig að meint hagræðing sem eigi að hafa náðst vegna undanþágu­ákvæða frá samkeppnis­lögum hafi ekki skilað sér í vasa neytenda og því síður til bænda: „Verð á mjólkur­vörum er síst lægra hér landi en á erlendum mörkuðum þar sem fyrirtæki bænda hafa ekki notið þeirrar gríðar­legu verndar sem MS hefur notið á undan­förnum árum með tolla­vernd og undanþágu­heimildum frá samkeppnis­lögum, í raun einokunar­stöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár