Skotárás í Kaupmannahöfn á ráðstefnu um tjáningarfrelsi

Skotum hef­ur verið hleypt af við menn­ing­ar­húsið Krudttønd­en á Aust­ur­brú í Kaup­manna­höfn. Heim­ild­ir Ekstra Bla­det herma að allt að þrír lög­reglu­menn hafi orðið fyr­ir skoti, en danska ríkis­útvarpið segir lögreglu hafa staðfest að skotárás hafi átt sér stað, og aðgerðir séu enn í gangi.

Í menn­ing­ar­hús­inu fer í dag fram ráðstefna sem fjall­ar meðal annars um tjáningar­frelsi.

Á meðal gesta á ráðstefn­unni voru teikn­ar­inn Lars Vilks, sem teiknaði hinar um­deildu skop­mynd­ir af spá­mann­in­um Múhameð sem birt­ust í blaðinu Jyl­l­ands Posten. Ekki hefur enn verið staðfest hvort árásin tengist því að hann sé meðal gesta.

Uppfært kl. 16:45

Vilks komst ómeiddur frá árásinni en þrír lögreglu­menn urðu fyrir skotum og einn ráðstefnu­gestur til viðbótar. Gesturinn er sagður hafa slasast alvarlega.


Stað­setn­ing menn­ing­ar­húss­ins á Aust­ur­brú.

 

Bein útsending


Danska rík­is­sjón­varpið rauf dag­skrá sína og sendir beint út fréttir af atburða­rásinni í Kaup­manna­höfn. Hér má fylgj­ast með beinni útsend­ingu á DR2.

#cphshooting Tweets

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár