„Í sjávarútvegi ríkir djúpstæð tilfinning meðal almennings um óréttlæti“

Svandís Svav­ars­dóttir telur sam­þjöppun veiði­heim­ilda á fárra hendur – tíu fyr­ir­tæki halda á 67 pró­sent af úthlut­uðum kvóta – og að ágóð­anum af sam­eig­in­legri auð­lind sé ekki skipt á rétt­látan hátt sé ástæða þess að almenn­ingur upp­lifi órétt­læti.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Í sjáv­ar­út­vegi ríkir djúp­stæð til­finn­ing meðal almenn­ings um órétt­læti. Sú til­finn­ing tel ég að stafi aðal­lega af tvennu; sam­þjöppun veiði­heim­ilda og þeirri til­finn­ingu að ágóð­anum af sam­eig­in­legri auð­lind lands­manna sé ekki skipt á rétt­látan hátt.“

Þetta segir Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra, sem fer með mál­efni sjáv­ar­út­vegs, í grein sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag. Þar seg­ist Svandís þó ekki vilja umbylta þeim kerfum sem Íslend­ingar hafi búið sér til, enda sé þar margt gott. „En ég tel gríð­ar­lega mik­il­vægt að rýna þessi kerfi og ráð­ast í nauð­syn­legar breyt­ingar sem ég hef trú á að komi okkur upp úr hjól­förum sem við virð­umst föst í. Með því bætum við um leið líf fólks­ins í land­inu, með beinum og óbeinum hætti, og það er alltaf loka­tak­markið.“

Í grein­inni segir Svandís að stjórn­völd reyni iðu­lega að koma til móts við umbreyt­ingar í atvinnu­háttum og þannig hafi byggst upp flókið net búta­saums­lausna bæði í sjáv­ar­út­vegi og land­bún­aði. „En þessi búta­saumur verður feyskinn með tím­anum og vinnur jafn­vel á köflum gegn þeim mark­miðum sem stjórn­völd hafa sett sér; að skapa gott umhverfi fyrir fólk sem hefur lífs­við­ur­væri sitt af nýt­ingu auð­linda lands og sjávar.“

Það sé eitt þeirra stóru mark­miða sem hún hafi sett sér í emb­ætti mat­væla­ráð­herra að rýna í það með skipu­lögðum hætti hvernig hægt sé að gera ann­ars vegar nauð­syn­legar umbætur á stjórn­kerfi fisk­veiða og hins vegar búvöru­samn­inga þannig að mark­mið stjórn­valda og stefnu­mörkun nái fram að ganga. „Áskor­an­irnar eru ólíkar. Óvið­un­andi afkoma hefur verið um hríð hjá hluta bænda. Það ríkir almenn sátt um að land­bún­aður hljóti opin­beran stuðn­ing, ágrein­ing­ur­inn snýst fyrst og fremst um útfærslur.“ Öðru máli gegni um sjáv­ar­út­veg þar sem ágrein­ing­ur­inn sé mun djúp­stæð­ari.

Greiða meira í arð en í sameiginlega sjóði

Kjarninn greindi frá því í fyrra­haust að á árinu 2020 greiddu útgerðir lands­ins eig­endum sínum alls arð upp á 21,5 millj­arða króna á sama tíma og þau greiddu sam­tals 17,4 millj­arða króna í öll opin­ber gjöld: tekju­skatt, trygg­inga­gjald og veiði­gjald. Það var hæsta arð­greiðsla sem greinin hefur greitt eig­endum sínum frá upp­hafi innan eins árs á sama tíma og greiðslan til hins opin­bera var sú næst lægsta frá árinu 2011. Þetta var auk þess í fyrsta sinn frá banka­hruni sem umfang greiddra opin­berra gjalda var minna en arð­greiðsla sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja til eig­enda sinna innan árs.

Þá á eftir að taka til­lit til þess að rík­is­sjóður hefur umtals­verðan kostnað af eft­ir­liti og rann­sókna vegna fisk­veiða og -vinnslu. Í fyrra voru heild­ar­út­gjöld hans vegna eft­ir­lits og rann­sókna vegna fisk­veiða og -vinnslu um sjö millj­arðar króna í ár. Árin 2015-2020 voru álögð veiði­gjöld að með­al­tali 7,4 millj­arðar á verð­lagi árs­ins 2020. Því fara veiði­gjöld að uppi­stöðu í að greiða kostnað rík­is­sjóðs af eft­ir­liti og rann­sóknum, sem nýt­ast sjáv­ar­út­veg­inum.

Sam­tals hagn­að­ist sjáv­ar­út­veg­ur­inn um 468 millj­arða króna frá byrjun árs 2009 og til loka árs 2020. Frá árinu 2009 hafa sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki greitt 126,3 millj­arðar króna í arð til eig­enda sinna. Auk þess sátu eftir 325 millj­arðar króna í eigið fé í útgerð­ar­fyr­ir­tækj­unum um síð­ustu ára­mót. Það jókst um 28 millj­arða króna árið 2020 þrátt fyrir metarð­greiðsl­ur. Hagur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja í heild vænk­að­ist því um næstum 50 millj­arða króna á árinu 2020.

Eigið fé geirans er stór­lega van­metið þar sem virði kvóta, sem útgerðir eign­færa, er bók­fært á miklu lægra verði en feng­ist fyrir hann á mark­aði.

Frá 2009 hefur sjáv­ar­út­veg­ur­inn greitt alls 196,7 millj­arða króna í opin­ber gjöld, þar af 78 millj­arða króna í veiði­gjöld. Sú tala dregst frá áður en hagn­aður sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja er reikn­að­ur.

Heild­ar­hagn­að­ur­inn á árinu 2020, fyrir skatta og gjöld, var því um 665 millj­arðar króna. Af þeirri upp­hæð fór undir 30 pró­sent til íslenskra rík­is­ins, eig­anda auð­lind­ar­inn­ar, í formi tekju­skatts, trygg­inga­gjalds og veiði­gjalda, en rúm­lega 70 pró­sent sat eftir hjá eig­endum fyr­ir­tækj­anna.

Ofan­greindar tölur komu fram í árlegum sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunni Deloitte sem kynntur er á Sjáv­ar­út­vegs­deg­inum og fyr­ir­tækið heldur í sam­starfi við Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi og Sam­tök atvinnu­lífs­ins.

Stóraukin samþjöppun

Samkvæmt lögum má engin ein blokk í sjáv­ar­út­vegi halda á meira en tólf pró­sent af úthlut­uðum heild­ar­kvóta á hverjum tíma. Þegar Fiski­stofa, sem hefur eft­ir­lit með því að yfir­ráð ein­stakra aðila yfir afla­hlut­deildum fari ekki umfram lög­bundin mörk, birti nýja sam­an­tekt á sam­þjöppun afla­hlut­deildar í nóv­em­ber í fyrra kom í ljós að Brim, eitt stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins, var komið yfir það mark. Það var leyst með því að Brim seldi annarri útgerð, Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur, hluta af úthlut­uðum veiði­heim­ildum sínum. Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur, sem er að uppi­stöðu í eigu Guð­mundar Krist­jáns­sonar for­stjóra Brim, er stærsti eig­andi Brim.

Í tölum Fiski­stofu kom líka fram að heild­ar­verð­mæti úthlut­aðs kvóta sem tíu stærstu útgerðir lands­ins halda á hafði farið úr því að vera 53 pró­sent í að vera rúm­lega 67 pró­sent. Auknar heim­ildir til að veiða loðnu skiptu þar umtals­verðu máli.

Sam­an­lagt halda fjórar blokkir: Þær sem kenndar eru við Sam­herja, Brim, Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og Ísfé­lagið á rúm­lega 60 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta á Íslandi.

Afstaða almennings skýr samkvæmt könnunum

Í aðdrag­anda kosn­ing­anna í fyrra­haust voru gerðar ýmsar kann­anir á skoðun almenn­ings á þeim kerfum sem Ísland hefur komið sér upp í sjáv­ar­út­vegi. Á meðal þeirra var könnun sem Gallup gerði fyrir þrýsti­hóp­inn Þjóð­ar­eign. Í henni var fólk spurt hvort það styddi að mark­aðs­gjald væri greitt fyrir afnot af fiski­miðum þjóð­ar­inn­ar. Nið­ur­staðan var sú að 77 pró­sent aðspurðra var fylgj­andi því og ein­ungis 7,1 pró­sent var and­vígt slíkri kerf­is­breyt­ingu. Afger­andi meiri­hluti kjós­enda allra flokka var fylgj­andi breyt­ing­unni þótt stuðn­ing­ur­inn væri minni hjá kjós­endum Fram­sókn­ar­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks en þeim sem ætla að kjósa aðra flokka.

Í annarri könn­un, sem MMR gerði fyrir Öldu – félags um sjálf­bærni og lýð­ræði, og var birt í ágúst 2021, sögð­ust 66 pró­sent lands­manna, tveir af hverjum þrem­ur, vera óánægðir með núver­andi útfærslu á kvóta­kerfi í sjáv­ar­út­vegi. Þar af sögð­ust 38 pró­sent vera mjög óánægð með hana. Tæpur fimmt­ung­ur, 19 pró­sent aðspurðra, sagð­ist ekki hafa sterka skoðun á útfærsl­unni en ein­ungis 14 pró­sent voru ánægð með hana. Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins reynd­ust þeir einu sem eru ánægð­ari með útfærslu kvóta­kerf­is­ins en óánægð­ari. Alls sögð­ust 42 pró­sent þeirra vera ánægðir með hana en 25 pró­sent eru óánægð.

Í sömu könnun sögðu 64 pró­sent lands­manna, næstum tveir af hverjum þrem­ur, að núver­andi útfærsla á kvóta­kerf­inu ógni lýð­ræð­inu.

Ríkisstjórnin ætlar að skipa nefnd

Í stjórn­ar­sátt­mála sitj­andi rík­is­stjórnar er boðað að skipa nefnd til að „kort­leggja áskor­anir og tæki­færi í sjáv­ar­út­vegi og tengdum greinum og meta þjóð­hags­legan ávinn­ing fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­is­ins. Nefnd­inni verði falið að bera saman stöð­una hér og erlendis og leggja fram til­lögur til að hámarka mögu­leika Íslend­inga til frek­ari árang­urs og sam­fé­lags­legrar sáttar um umgjörð grein­ar­innar. Nefndin fjalli einnig um hvernig hægt er að auka gagn­sæi í rekstri fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi og þá sér­stak­lega meðal stærstu fyr­ir­tækja lands­ins. Þá meti nefndin árangur af atvinnu- og byggða­kvóta og strand­veiðum til að styðja við atvinnu­líf í lands­byggð­unum.“

Nefndin hefur enn ekki verið skipuð en Svandís lagði fram grein­ar­gerð sem lýsir áherslum og fyr­ir­hug­uðu verk­lagi mat­væla­ráð­herra við stefnu­mótun á sviði mat­væla, meðal ann­ars í sjáv­ar­út­vegi, í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í febr­úar. Þar voru drögin til umsagnar til 22. mars síð­ast­lið­ins. Því eru liðnir rúmir tveir mán­uðir frá því að umsagn­ar­tíma­bilið rann út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár