Allt sem þú þarft að vita um nýjan stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar

Stefnt er að því að lækka skatta, selja banka og láta fjár­magns­eig­endur greiða útsvar. Auðvelda á fyr­ir­tækjum að virkja vind og end­ur­skoða lög um ramma­á­ætlun.

„Samstarf þess­ara þriggja flokka, sem spanna lit­róf íslenskra stjórn­mála, skapar jafn­vægi sem er mik­il­vægur grund­völlur fram­fara.“ Þetta segir í upp­hafi nýs stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks undir for­sætis Katrínar Jak­obs­dóttur.

Sátt­mál­inn, sem er nokkuð lengri en sá síð­asta sem rík­is­stjórn sömu flokka gerði fyrir fjórum árum (9.645 orð nú en 6.212 þá) ber þess merki að vera umgjörð utan um sam­starf flokka sem hafa mis­mun­andi póli­tískar áherslur.

Í inn­gangstexta segir að mark­mið síð­asta kjör­tíma­bils hjá þess­ari óvenju­lega sam­settu rík­is­stjórn frá hægri, yfir miðju og til vinstri, hafi verið að „byggja upp traust í sam­fé­lag­inu og efla inn­viði ásamt því að tryggja póli­tískan, félags­legan og efna­hags­legan stöð­ug­leika.“

Nú sé staðan hins vegar önnur og ná sam­starfi snú­ist um að horfa til fram­tíðar.

Sátt­mál­inn sé leið­ar­stef stjórn­ar­innar um „efna­hags­legar og félags­legar fram­farir, vernd umhverfis, kraft­mikla verð­mæta­sköpun, jafn­rétti kynj­anna og jafn­vægi byggða og kyn­slóða“.

Líkt og svo oft vill verða í sátt­málum er stefnt að mörgu, lof­orð gefin um að hlutir verði greindir með það að mark­miði að breyta þeim og nefndir stofn­aðar. Minna er þó um fast­settar áætl­anir um hvernig eigi að útfæra flest þeirra stefnu­mála eða mark­miða sem sett eru fram. 

Skattalækkanir, bankasala og fjármagnseigendum gert að greiða útsvar

Engin áform eru uppi um skatta­hækk­anir eða frek­ari upp­töku þrepa­skipts skatt­kerfis, líkt og bæði Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokkur boð­uðu í aðdrag­anda kosn­inga. Þess í stað er stefnt að skatta­lækk­unum á kjör­tíma­bil­inu en reglu­verk í kringum tekju­til­flutn­ing verður tekið til end­ur­skoð­unar þannig að þau sem hafa ein­göngu fjár­magnstekjur „reikni sér end­ur­gjald og greiði þannig útsvar.“ Þá verða skatt­mats­reglur end­ur­skoð­aðar og „komið í veg fyrir óeðli­lega og óheil­brigða hvata til stofn­unar einka­hluta­fé­laga“.

Eign­ar­hlutir í bönkum verða seldir, lög­gjöf um með­ferð kaup­rétta og hluta­bréfa hjá nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækjum til starfs­manna í nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækjum verður end­ur­skoðun „þannig að þeim verði gert kleift að keppa um starfs­fólk, stjórn­endur og ráð­gjafa með því að bjóða hlut­deild í fram­tíð­ar­á­vinn­ingi með hag­kvæmum hætti.“ Sam­keppn­is­eft­ir­litið verður sam­einað Neyt­enda­stofu og mögu­lega fleiri stofn­unum.

Fyr­ir­komu­lag gjald­töku í ferða­þjón­ustu tekið til skoð­unar með það fyrir augum að „breikka skatt­stofn­inn og tryggja jafn­ræði aðila á mark­aði“. Það mun meðal ann­ars fela í sér breyt­ingu á fyr­ir­komu­lagi gistin­átta­gjalds.

Hærri endurgreiðslur festar í sessi

Þá ætlar rík­is­stjórnin sem lagði niður emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra á síð­asta kjör­tíma­bili að efla skatt­rann­sóknir og beitt sér með virkum hætti gegn skattaund­anskotum og skatta­skjólum ásamt því að styðja alþjóð­legan 15 pró­sent lág­marks­skatt sem OECD hefur fyr­ir­ætl­anir um.

End­ur­greiðslur vegna rann­sókna og þró­unar verða fram­lengdar og farið yfir fram­kvæmd þeirra og eft­ir­lit. Tíma­bundin hækkun end­ur­greiðslu­hlut­falls vegna kostn­aðar sem fellur til við rann­sóknir og þróun verður gerð var­an­leg og umsókn­ar­ferli um dvalar- og atvinnu­leyfi fyrir ein­stak­linga sem sinna störfum sem krefj­ast sér­fræði­þekk­ingar verður ein­faldað.

End­ur­greiðslur rík­is­sjóðs vegna rann­sókna- og þró­un­ar­kostn­aðar voru alls 10.431 millj­ónir króna í ár vegna þess­arar hækk­unar. Það er rúm­lega tvö­falt meira en end­ur­greiðsl­urnar í fyrra, sem námu sam­tals 5.186 millj­ónum króna.

Embætti Rík­is­sátta­semj­ara eflt, en eina aðgerðin sem er nefnd í því sam­hengi er að komið verður á fót stand­andi gerð­ar­dómi.

Fiskveiðistjórnunarkerfið sett í nefnd

Svandís Svav­ars­dóttir fær það vanda­sama verk­efni að reyna að mynda sátt um nýt­ingu fisk­veiði­auð­lind­ar­innar og kerfið utan um þá nýt­ingu. Kannanir hafa sýnt að afger­andi meiri­hluti þjóð­ar­innar er ósáttur með fyr­ir­komu­lagið og umfang gjald­töku fyrir nýt­ing­una og telur kerfið bein­línis vera ógn við lýð­ræði á Íslandi.

Í sátt­mál­anum segir að skipuð verði nefnd til að „kort­leggja áskor­anir og tæki­færi í sjáv­ar­út­vegi og tengdum greinum og meta þjóð­hags­legan ávinn­ing fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­is­ins. Nefnd­inni verði falið að bera saman stöð­una hér og erlendis og leggja fram til­lögur til að hámarka mögu­leika Íslend­inga til frek­ari árang­urs og sam­fé­lags­legrar sáttar um umgjörð grein­ar­innar.“ Þá á nefndin að fjalla um hvernig hægt sé að auka gagn­sæi í rekstri fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi og þá sér­stak­lega meðal stærstu fyr­ir­tækja lands­ins.

Svandís mun einnig fara með land­bún­að­ar­mál og þar ber helst til tíð­inda að auk­inni fram­leiðslu á græn­meti á að ná með föstu nið­ur­greiðslu­hlut­falli á raf­orku­verði til ylræktar og sér­stökum stuðn­ingi við úti­ræktun í gegnum búvöru­samn­inga.

Meira virkjað en Miðhálendisþjóðgarður sleginn af

Lofts­lags- og orku­málum er slegið saman í nýtt ráðu­neyti sem stýrt verður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni. Engar breyt­ingar verða á mark­miðum Íslands í lofts­lags­málum þótt lög­festa eigi lands­mark­miðið. Áfram er stefnt að 55 pró­sent sam­drátt á beinni ábyrgð Íslands fyrir 2030 miðað við árið 2005 og að kolefn­is­hlut­leysi og fullum orku­skiptum eigi síðar en árið 2040. Þá er skjal­fest í sátt­mál­anum að ekki verði gefin út nein leyfi til olíu­leitar í efna­hags­lög­sögu Íslands.

Töluvert er fjallað um virkj­anir og hvernig ákvarð­anir verða teknar um hvað verði virkjað.

Lög um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun verða end­ur­skoðuð frá grunni og sér­stök lög verða sett um nýt­ingu vind­orku með það að mark­miði að ein­falda upp­bygg­ingu vind­orku­vera. Það verður stefna mörkuð um vind­orku­ver á hafi. Lokið verður við þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar og kostum í bið­flokki verður fjölgað.

Í stjórn­ar­sátt­mála sömu flokka sem var gerður fyrir fjórum árum sagði að stofn­aður yrði „þjóð­garður á mið­há­lend­inu“. Hann varð ekki að veru­leika á síð­asta kjör­tíma­bili vegna and­stöðu Fram­sóknar- og Sjálf­stæð­is­flokks við málið. Og í nýja stjórn­ar­sátt­mál­anum er búið að blása Mið­há­lend­is­þjóð­garð­inn af. Þess í stað verður stofn­aður „þjóð­garður á þegar frið­lýstum svæðum og jöklum í þjóð­lendum á hálend­inu með breyt­ingu á lögum um Vatna­jök­uls­þjóð­garð“.

Heildarendurskoðun stjórnarskrár ekki lengur á dagskrá

Í síð­asta stjórn­ar­sátt­mála stóð að rík­is­stjórnin vildi halda áfram „heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar í þverpóli­tísku sam­starfi með aðkomu þjóð­ar­innar“. For­sæt­is­ráð­herra reyndi að koma tak­mörk­uðum stjórn­ar­skrár­breyt­ingum í gegn undir lok kjör­tíma­bils­ins en það reynd­ist árang­urs­laus veg­ferð.

Í nýja sátt­mál­anum er búið að leggja hug­mynd­inni um heild­ar­end­ur­skoðun og þess í stað á að setja af stað vinnu sér­fræð­inga um ákvæði stjórn­ar­skrár um Alþingi, kosn­ingar og kjör­dæma­skipan, dóm­stóla og eftir atvikum önnur ákvæði, svo sem mann­rétt­inda­á­kvæði. „Efnt verður til sam­starfs við fræða­sam­fé­lagið um umræðu og umfjöllun um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar“.

Utan­rík­is­póli­tík rík­is­stjórn­ar­innar er ekki flókin, og hverf­ist um þá stefnu sem allir flokkar hennar eru að fullu sam­mála um: að hags­munum Íslands sé best borgið utan Evr­ópu­sam­bands­ins. Þess utan er eft­ir­tekt­ar­verð­ast í þeim mála­flokki að laga­reglur um rýni á til­teknum fjár­fest­ingum erlendra aðila með hlið­sjón af þjóðar­ör­yggi og alls­herj­ar­reglu verða end­ur­skoð­aðar og styrktar.

Stjórn yfir Landspítalann og frítekjumark tvöfaldað

Í heil­brigð­is­málum, sem Willum Þór Þórsson mun stýra, ber helst til tíð­inda að fag­leg stjórn verður skipuð yfir Land­spít­al­ann. Þá verður ný tækni og staf­rænar lausnir „nýttar í auknum mæli í vel­ferðar- og heil­brigð­is­þjón­ustu og þannig stuðlað að bættri þjón­ustu, gæðum og auk­inni hag­kvæmni í rekstri. Sjúkra­trygg­ingar Íslands verða „efldar sem kaup­andi og kostn­að­ar­grein­andi heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir hönd rík­is­ins.“

Til stendur að end­ur­meta almanna­trygg­inga­kerfi eldri borg­ara og að tvö­falda frí­tekju­mark atvinnu­tekna þeirra um kom­andi ára­mót.

Til stendur að gera örorkulif­eyr­is­kerfið ein­fald­ara og draga úr tekju­teng­ingum, en ekki til­greint með hvaða hætti. Breyt­ing­arnar verða inn­leiddar í áföngum og þau sem eru með fullt örorku­mat við upp­töku á nýju kerfi hafa val um hvort þau fær­ast yfir í nýja kerfið.

Þátttaka og end­ur­koma ein­stak­linga með skerta starfs­getu á vinnu­markað verður auð­velduð þannig að fólk hafi fjár­hags­legan hag af atvinnu­þátt­töku og fái tæki­færi á vinnu­mark­aði án þess að afkomu­ör­yggi þeirra sé ógnað.

Segðu Borgarlína án þess að segja Borgarlína

Í sam­göngu­málum verður mótuð stefna um jarð­göng og stefnt að því að Sunda­braut opni fyrir umferð árið 2031, eða eftir tíu ár. Þá verður unnið að „áfram­hald­andi upp­bygg­ingu og fjár­mögnun hágæða almenn­ings­sam­gangna og ann­arra sam­göngu­mann­virkja á grund­velli sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.“ Það þýðir að Borg­ar­lína, sem greitt verður fyrir af ríki og sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, er áfram á dag­skrá án þess að hún sé nefnd sér­stak­lega á nafn. Fram­tíð­ar­tekju­öfl­un­ar­kerfi rík­is­sjóðs vegna umferðar og orku­skipta verður mótað og inn­leitt á kjör­tíma­bil­inu og stuðlað verður að „almenn­ings­sam­göngum með end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum milli höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og Kefla­vík­ur­flug­vallar“.

Þá verður ráð­ist í skil­greindar þjóð­hags­lega arð­samar flýtifram­kvæmdir í sam­göngum „á grund­velli fjöl­breytt­ari fjár­mögn­unar og sam­starfs við einka­að­ila“.

Fjárhagslegir hvatar til að þrýsta á sameiningu sveitarfélaga

Hús­næð­is­mál og skipu­lags­mál verða færð í nýtt inn­við­a­ráðu­neyti undir stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar „til að tryggja betri sam­hæf­ingu með sveit­ar­fé­lögum og auk­inn stöð­ug­leika á hús­næð­is­mark­aði“. Áætlanir í sam­göngu­málum, hús­næð­is­málum og skipu­lags­málum verða sam­þættar og lagðar fram sam­hliða. Ráðist verður í sér­stakt átak til upp­bygg­ingar á leigu­hús­næði fyrir fatlað fólk og eldra fólk innan almenna íbúða­kerf­is­ins.

Athygli vekur að það á að beita fjár­hags­legum hvötum til að þrýsta á frek­ari sam­ein­ingu sveit­ar­fé­laga með það fyrir augum að slíkt hafi burði til að standa undir þeirri þjón­ustu sem íbúar eiga rétt á.

Opnað á fjárfestingar í innviðum

Líf­eyr­is­kerfið og líf­eyr­is­sjóðir eru tölu­vert til umfjöll­unar í sátt­mál­anum. Þar segir til að mynda að útfærðar verði leiðir til að auka frelsi fólks til að ráð­stafa við­bót­ar­líf­eyr­is­sparn­aði og að lög­fest verði 15,5 pró­sent skyldu­ið­gjald til líf­eyr­is­sjóðs.

Grænbók um líf­eyr­is­mál verður unnin í sam­vinnu við aðila vinnu­mark­að­ar­ins og líf­eyr­is­sjóði á fyrri hluta kjör­tíma­bils­ins í því skyni að „skapa grund­völl fyrir umræðu, stefnu­mörkun og ákvarð­anir um líf­eyr­is­kerfið og fram­tíð­ar­þróun þess með heild­stæðum hætti“. Meðal ann­ars verður horft til ein­föld­unar kerf­is­ins og fjallað um grund­vall­ar­for­sendur varð­andi hlut­verk, upp­bygg­ingu, sjálf­bærni og umfang sjóð­anna í efna­hags­líf­inu, upp­bygg­ingu rétt­inda og sam­spil milli ólíkra stoða líf­eyr­is­kerf­is­ins, nauð­syn­lega hækkun líf­eyr­is­ald­urs og sveigj­an­leika til töku líf­eyris í sam­hengi við hækk­andi lífaldur, trygg­inga­fræði­legar for­sendur, fjár­fest­ing­ar­heim­ildir, starfs­um­hverfi og eft­ir­lit.

Sér­stak­lega er til­tekið að horfa þurfi til þess hvernig megi auka þátt­töku sjóð­anna í inn­viða­fjár­fest­ingum. Kjarninn greindi frá því í gær að sjóð­stýr­inga­fyr­ir­tækið Summa sé þegar byrjað á vinnu við upp­setn­ingu á slíkum sjóði sem ætli að bjóða líf­eyr­is­sjóðum upp á að fjár­festa í hag­rænum og félags­legum innviðum á Íslandi.

Þá verða tíma­bundnar heim­ildir líf­eyr­is­sjóða til auk­innar fjár­fest­ingar í nýsköp­unar- og vaxt­ar­sjóðum gerðar var­an­legar.

Rýmkað ákvæði um dvalarleyfi fyrir þá sem vinna

End­ur­skoða á lög um útlend­inga og lög um atvinnu­rétt­indi útlend­inga með það að mark­miði að rýmka ákvæði er varða útgáfu dval­ar­leyfa á grund­velli atvinnu­þátt­töku. Þá verði þeim sem hér fá dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða eða sér­stakra tengsla við landið veitt und­an­þága frá kröfu um atvinnu­leyfi.

Sér­stak­lega er til­tekið að efla þurfi „traust og gagn­sæi um ákvarð­anir útlend­inga­yf­ir­valda“ en ekk­ert sagt um hvernig það eigi að fara fram.

Unnið verður að útgáfu full­gildra opin­berra raf­rænna per­sónu­skil­ríkja.

Fjölmiðlar, kvikmyndir og þjóðarleikvangar

Umfjöllun um stöðu fjöl­miðla á Íslandi í sátt­mál­anum er loðin. Þar segir að frjálsir fjöl­miðlar séu for­senda opinnar lýð­ræð­is­legrar umræðu og veiti stjórn­völdum, atvinnu­líf­inu og helstu stofn­unum sam­fé­lags­ins nauð­syn­legt aðhald. Rík­is­stjórnin leggi áherslu á fjöl­breytni í flóru fjöl­miðla með öfl­ugu almanna­út­varpi og einka­reknum fjöl­miðlum.

Engar aðgerðir eru hins vegar til­teknar til að ná þessum mark­miðum, heldur ein­ungis sagt að staða einka­rek­inna fjöl­miðla verði metin áður en núver­andi stuðn­ings­kerfi rennur út í lok næsta árs. Í kjöl­farið verði ákveðnar aðgerðir til að „tryggja fjöl­breytni á fjöl­miðla­mark­aði og öfl­ugt almanna­út­varp“.

Eitt stærsta kosn­inga­lof­orð Fram­sókn­ar­flokks­ins var að auka end­ur­greiðslu­hlut­fall vegna þess kostn­aðar sem fell­ur til við kvik­mynda­gerð hér á landi úr 25 í 35 pró­sent. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, gagn­rýndi þessi áform í aðdrag­anda kosn­inga. Þessi áform rata samt sem áður inn í sátt­mál­ann, en með útvötn­uðum hætti. Þar segir að stutt verði við kvik­mynda­gerð með hærri end­ur­greiðslum „á skýrt afmörk­uðum þáttum til að stuðla að því að fleiri stór verk­efni verði unnin alfarið á Íslandi og tryggja auk­inn fyr­ir­sjá­an­leika í fjár­mögnun kerf­is­ins.“ Ekki er til­greint hvaða skýrt afmörk­uðu þættir það eru.

Mikið hefur verið rætt um upp­bygg­ingu nýrra þjóð­ar­leik­vanga og margir með vænt­ingar til þess að ráð­ist verði í slíka upp­bygg­ingu sem fyrst. Engar skýrar ákvarð­anir virð­ast liggja fyrir í þeim málum. Í sátt­mál­unum segir ein­fald­lega: Unnið verður áfram að upp­bygg­ingu þjóð­ar­hallar inni­í­þrótta og þjóð­ar­leik­vanga.

Uppfært 16:18:

Upp­runa­lega sagði í frétta­skýr­ing­unni að í efl­ingu Sjúkra­trygg­inga Íslands sem kaup­anda að heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir hönd rík­is­ins fælist að sú þjón­usta yrði keypt af einka­að­ilum. Eftir ábend­ingu frá starfs­manni Vinstri grænna um að svo væri ekki var því breytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár