CCP aftur með langmesta skattafrádráttinn vegna nýsköpunar

Skatta­frá­dráttur fyr­ir­tækja hér­lendis sem stóðu í rann­sóknar- eða þró­un­ar­vinnu nam alls 10,4 millj­örðum króna í ár og rann til 264 fyr­ir­tækja. Sem fyrr fær tölvu­leikja­fyr­ir­tækið CCP mesta frá­drátt­inn, en hann nam 550 millj­ónum króna.

Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP
Hilmar Veigar Pét­urs­son, for­stjóri CCP Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tölvu­leikja­fyr­ir­tækið CCP fær alls 550 millj­ónir króna end­ur­greiddar frá skatt­inum í ár vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­starfa sem unnin voru í fyrra, mest allra fyr­ir­tækja á Íslandi. Þetta kemur fram í nýupp­færðum lista Skatts­ins yfir nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki sem fengu skatta­frá­drátt.

Tvöfalt meiri en í fyrra

Samkvæmt til­kynn­ingu sem stjórn­ar­ráðið birti á mánu­dag­inn nema end­ur­greiðslur rík­is­sjóðs vegna rann­sókna- og þró­un­ar­kostn­aðar alls 10.431 millj­ónir króna í ár. Þetta er rúm­lega tvö­falt meira en end­ur­greiðsl­urnar í fyrra, sem námu sam­tals 5.186 millj­ónum króna.

Stjórn­ar­ráðið segir þessa miklu aukn­ingu vera meðal ann­ars til komin vegna tíma­bund­innar hækk­unar á end­ur­greiðslu­hlut­falli og hækk­unar á frá­drátt­ar­bærum kostn­aði. Ef fyr­ir­tækin skila hagn­aði gengur þessi afsláttur upp í tekju­skatt, en ann­ars er hann útgreið­an­legur að fullu.

Alls fá 264 lög­að­ilar stuðn­ing­inn í ár en þeir voru 201 á síð­asta ári. Samkvæmt skatt­inum er hámark skatta­frá­dráttar 385 millj­ónir króna hjá litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum, en 275 millj­ónir króna hjá stórum fyr­ir­tækjum í ár.

CCP skráir í gegnum tvö félög

Líkt og Kjarninn hefur fjallað um áður hefur CCP, sem er skil­greint sem stórt fyr­ir­tæki, hins vegar fengið allt að tvö­falda end­ur­greiðslu frá Skatt­inum á síð­ustu árum, þar sem fyr­ir­tækið skiptir rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­að­inum af starf­semi sinni upp í tvö félög. Hið sama er uppi á ten­ingnum í ár, CCP fær 275 millj­óna króna frá­drátt í gegnum félagið CCP ehf. og aðra jafn­háa upp­hæð í gegnum félagið CCP Platform ehf.

Að CCP und­an­skildu fær upp­lýs­inga­tækni­fyr­ir­tækið Origo mesta skatta­frá­drátt­inn í ár, en hann nemur alls 372 millj­ónum króna, ef tal­inn er með 44,5 pró­senta eign­ar­hlutur þess í fyr­ir­tæk­inu Tempo. LS Retail er svo með þriðja mesta skatta­frá­drátt­inn í ár, en hann nemur alls 317 millj­ónum króna. Þar á eftir koma Össur og Alvotech, sem hvort um sig fær 275 millj­ónir króna í skatta­af­slátt vegna nýsköp­unar.

Mestur frádráttur vegna hugbúnaðargerðar

Af þeim 38 félögum sem fengu skatta­frá­drátt­inn og eru til­greindir á vef Skatts­ins fengu 10 þeirra end­ur­greiðslu vegna hug­bún­að­ar­gerðar. Þeirra á meðal voru CCP og LS Retail, en fyr­ir­tækin Activity Stream, Men and Mice og GRID fá einnig yfir 100 millj­ónir króna í skatta­frá­drátt á þessum for­sendum.

Sex af þessum fyr­ir­tækjum fá aftur á móti skatta­frá­drátt vegna fram­leiðslu á tækjum, vélum og bún­aði og er hann yfir 100 millj­ónum króna hjá þeim öllum. Mest fá Össur, Marel og Controlant, en Nox Medical, Skaginn og 3X Technology eru einnig nefndir.

Fyr­ir­tæki fengu einnig skatta­frá­drátt vegna starf­semi sína á ýmsum öðrum sviðum, líkt og útgáfu tölvu­leikja, heil­brigð­is­þjón­ustu, gagna­vinnslu og upp­lýs­inga­tækni. Íslenska net­ör­ygg­is­fyr­ir­tækið AwareGO ehf. var einnig á list­anum, en sam­kvæmt Skatt­inum fékk það end­ur­greiðslu vegna bóka­út­gáfu sinnar.

Fyr­ir­vari: Hjálmar Gíslason, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri GRID, er hlut­hafi og stjórn­ar­maður í Kjarn­anum með 17,68% eign­ar­hlut.

Uppfært 22/11: Upp­lýs­ingum um skatta­frá­drátt til Origo og Tempo var bætt við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár