CCP með allt að tvöfalda endurgreiðslu frá Skattinum

Skatta­frá­dráttur tölvu­leikja­fyr­ir­tæk­is­ins CCP á síð­ustu tveimur árum var langt umfram lög­bund­inn hámarks­frá­drátt á hvert fyr­ir­tæki, þar sem CCP hefur sótt um frá­drátt í gegnum tvö einka­hluta­fé­lög.

Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP
Hilmar Veigar Pét­urs­son, for­stjóri CCP Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tölvu­leikja­fyr­ir­tækið CCP fékk sam­tals 480 millj­ónir króna í skatta­frá­drátt vegna nýsköp­un­ar­verk­efna á árunum 2019 og 2020.

Frá­dráttur fyr­ir­tæk­is­ins var mun hærri en sá hámarks­frá­dráttur sem lög kveða á um að hvert fyr­ir­tæki geti fengið vegna nýsköp­un­ar­verk­efna sinna bæði árin, þar sem CCP sótti um hann í gegnum tvö einka­hluta­fé­lög, CCP ehf. og CCP Develop­ment ehf. Upp­lýs­ingar um þetta má finna á heima­síðu Skatts­ins.

Hámarksfrádráttur á hvert fyrirtæki

Samkvæmt lögum sem hafa verið í gildi frá árinu 2010 eiga nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki rétt á skatta­frá­drætti. Fyr­ir­tækin geta sótt um slíkan frá­drátt hjá Rannís vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­verk­efna sinna, en stofn­unin tekur svo ákvörðun um það hvort verk­efnin upp­fylli skil­yrði um skatta­frá­drátt.

Hins vegar er hámark á því hversu mik­ill slíkur frá­dráttur getur verið. Í fyrra gat hann að hámarki orðið 180 millj­ónir króna, en árið 2019 nam hámarkið 90 millj­ónum króna. Hins vegar, þar sem CCP sótti um skatta­frá­drátt vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­verk­efna sinna í gegnum tvö félög var frá­dráttur fyr­ir­tæk­is­ins sam­tals 300 millj­ónir króna í fyrra og 180 millj­ónir króna árið 2019. Skatta­frá­dráttur CCP var því tvö­falt meiri en lög­bundið hámark á hvert fyr­ir­tæki árið 2019 og helm­ingi hærra en hámarkið árið 2020.

Telur styrkinn eiga við hvert verkefni

Eldar Ást­þórs­son, upp­lýs­inga­full­trúi CCP, sagði í sam­tali við Kjarnann að þessar tvær umsóknir fyr­ir­tæk­is­ins eigi sér ein­falda útskýr­ingu, þar sem CCP vinni að tveimur rann­sóknar- og þró­un­ar­verk­efnum hér­lendis. Báðar umsókn­irnar séu lagðar fram með gagn­sæjum hætti og í sam­ræmi við reglur, auk þess sem þær séu yfir­farnar af Rannís, sem sam­rýmir alla kostn­að­ar­liði.

Samkvæmt Eldari mætti bera þennan skatta­frá­drátt saman við styrki til kvik­mynda­geirans að ein­hverju leyti, þar sem styrkjum er úthlutað eftir verk­efnum en ekki eftir fyr­ir­tækjum.

Líkt norska kerfinu

Davíð Lúð­víks­son, sér­fræð­ingur hjá Rannís, segir hins vegar í sam­tali við Kjarnann að hámarkið sé hugsað á hvert fyr­ir­tæki. Þetta stað­festir einnig emb­ætti rík­is­skatt­stjóra í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Aðspurður um mat hans á því hvernig þetta hámark sé skil­greint, segir hann að sú ákvörðun sé fyrst og fremst í höndum lög­gjafans, svo lengi sem það rúmist innan þess heim­ild­ar­ramma sem við­kom­andi stuðn­ings­kerfi byggir á.

Samkvæmt Davíð er hönnun stuðn­ings­kerfa til nýsköp­unar nokkuð mis­mun­andi á milli OECD-ríkja, en kerfið hér­lendis sé að ein­hverju leyti sam­bæri­legt því norska. Hann bætir við að mikil sam­keppni sé í gangi milli landa um að laða til sín fólk og fyr­ir­tæki í nýsköpun með skatta­legum hvötum. Slík stuðn­ings­kerfi innan aðild­ar­ríkja EES þurfa þó öll að fara í gegnum sam­þykkt­ar­ferli hjá ESA, sem er eft­ir­lits­stofnun EFTA-ríkj­anna, sem hefur eft­ir­lit með að rík­is­að­stoð­ar­reglur og und­an­þágu­heim­ildir í tengslum við slík kerfi séu virtar í hverju aðild­ar­ríki EES.

Ekki vanþörf á eftirliti

Rík­is­skatt­stjóri hafði ýmsar athuga­semdir við fram­kvæmd nýsköp­un­ar­styrkj­anna í umsögn sem hann skil­aði til efna­hags- og við­skipta­nefndar alþingis fyrr í ár. Samkvæmt umsögn­inni er ekki van­þörf á eft­ir­liti með þessum mála­flokki, þar sem almennur rekstr­ar­kostn­aður er oft tal­inn fram sem rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aður. Að mati Skatts­ins væri því mik­il­vægt að styrkja reglu­verkið sem snýr að þessum styrkjum ef hið opin­bera hyggst auka umfang þeirra til fram­búðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár