Undirbúa sókn fjárfesta í flesta innviði samfélagsins „til að létta undir með hinu opinbera“

Í nýlegri kynn­ingu vegna fyr­ir­hug­aðrar stofn­unar á 20 millj­arða inn­viða­sjóði er lagt upp með að fjöl­mörg tæki­færi séu í fjár­fest­ingu á innviðum á Íslandi. Það eru ekki ein­ungis hag­rænir inn­viðir heldur líka félags­legir.

Íslenska sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Summa hefur unnið að því um nokk­urt skeið að fá íslenska líf­eyr­is­sjóði til að leggja fram fjár­magn í nýjan inn­viða­fjár­fest­inga­sjóð. Samkvæmt nýlegri kynn­ingu, sem kall­ast Innviðir 2, er áætluð stærð sjóðs­ins allt að 20 millj­arðar króna.

Í kynn­ing­unni, sem Kjarninn hefur undir höndum, segir að sjóð­ur­inn muni fjár­festa í innviðum á Íslandi. Þar verði áhersla lögð á svo­kall­aða hag­ræna inn­viði en einnig verði þeim mögu­leika haldið opnum að fjár­festa í félags­legum innviðum, ef tæki­færi til þess bjóð­ast. Summa gerði meðal ann­ars til­boð í Mílu í sumar með það fyrir augum að sú eign yrði hluti af eignum hins nýja sjóðs. Sá biti fór hins til franska sjóð­stýr­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Ardian, sem hefur reyndar boðað að íslenskum líf­eyr­is­sjóðum verði boð­inn hlutur í þeirra fjár­fest­ingu.

Samkvæmt kynn­ingu Summu er ávöxt­un­ar­mark­mið sjóðs­ins á bil­inu sex til tíu pró­sent raun­á­vöxtun eftir kostað.

Til sam­an­burðar má nefna að íslenska ríkið gaf út vaxta­laus skulda­bréf í evrum í jan­úar á þessu ári upp á 750 millj­ónir evra, um 110 millj­arða króna á núver­andi gengi. Ávöxt­un­ar­krafa þeirra sem keyptu þau skulda­bréf, en fjór­föld eft­ir­spurn var eftir þeim, til sjö ára er 0,117 pró­sent. Ávöxt­un­ar­krafa óverð­tryggðra rík­is­skulda­bréfa hefur hækkað nokkuð á árinu, krafa styttri flokka hækkað um tæp 1,5 pró­sentu­stig en lengri flokkar um eitt pró­sentu­stig.

Íslenska ríkið ætti þó nokkuð örugg­lega að geta náð í mun ódýr­ara fjár­magn til að borga fyrir inn­viða­upp­bygg­ingu en það fjár­magn sem stefnt er að nýr sjóður Summu komi með að borð­inu.

Tækifæri til fjárfestingar í nánast öllum innviðum

Í kynn­ingu Summu er lagt upp með að ýmis tæki­færi séu til fjár­fest­ingar í innviðum á Íslandi. Kostn­aður vegna við­halds á núver­andi innviðum í eigu ríkis og sveit­ar­fé­laga hafi verið metið á um 420 millj­arða króna af Samtökum iðn­að­ar­ins. Þá sé þörf fyrir fjár­fest­ingu í félags­legum innviðum á borð við hjúkr­un­ar­heim­ili og spít­ala og fjár­fest­ing í öðrum hag­rænum innviðum svo sem í fjar­skiptum, veitum og orku sé líka nauð­syn­leg. Auk þess liggi fyrir að nýfjár­fest­ing í sam­göngum vegna verk­efna eins og Borg­ar­lín­unnar, tvö­földun Hval­fjarð­ar­ganga og Ölf­usár­brúar þurfi að vera um 200 millj­arðar króna.

Í kynningunni er tiltekið að tækifæri séu fyrir fjárfesta í heilbrigðismálum, sérstaklega á þeim sviðum þess sem snúa að umönnun aldraðra.
Í kynn­ing­unni er til­tekið að tæki­færi séu fyrir fjár­festa í heil­brigð­is­málum, sér­stak­lega á þeim sviðum þess sem snúa að umönnun aldr­aðra.

Sam­an­lagt er gert ráð fyrir að tekjur rík­­is­­sjóðs verði 1.128 millj­­örðum krónum lægri en útgjöld hans á sjö ára tíma­bili, frá byrjun síð­­asta árs og út árið 2026. Summa sér „tæki­færi til að létta undir með hinu opin­bera“ vegna þessa halla­rekst­urs. Þau tæki­færi liggi meðal ann­ars í því að ríki og sveit­ar­fé­lög gætu verið til­búin að selja hag­ræna inn­viði til að mæta halla­rekstri og taka á móti fjár­fest­ingu til að byggja upp félags­lega inn­viði. Að mati sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins sé aðkoma fjár­festa „lyk­il­for­senda fyrir upp­bygg­ingu inn­viða á Íslandi í fram­tíð­inni.“

Félagslegt húsnæði, lögreglustöð og bílastæði

Summa segir í kynn­ing­unni að fyr­ir­tækið hafi unnið að fjölda fjár­fest­ing­ar­verk­efna sem Inn­viða­sjóð­ur­inn geti haft aðkomu að​. Heild­ar­pípu­staða í hag­rænum innviðum sé upp á rúm­lega 150 millj­arða króna í hlutafé. Þar sé um að ræða mögu­lega fjár­fest­ingu í hlutafé vegna veitna, fjar­skipta, orku og sam­gangna. Ávöxt­un­ar­mark­mið fyrir kjarna­inn­viði sé fimm til tíu pró­sent verð­tryggt en fyrir virð­is­auk­andi inn­viði sé það hærra, eða sex til tíu pró­sent verð­tryggt.

Þar er einnig fjallað um geira í fjár­fest­ing­ar­mengi félags­legra inn­viða​. Þar er um að ræða heil­brigði (m.a. elli­heim­ili, sjúkra­hús, heilsu­gæsla, hjúkr­un­ar­heim­ili), hús­næði (m.a. félags­legt hús­næði og „aðrar nið­ur­greiddar lausnir“, hús fyrir opin­bera þjón­ustu, lög­reglu­stöð, dóms­hús), menntun (leik-, grunn-, mennta- og háskólar) og menn­ing (m.a. bóka­söfn, söfn, sam­komu­hús, íþrótta­leik­vangar og hús, sund­laugar, tón­lista­hús, almenn­ings­garðar og leik­vellir​). Þá eru til­taldar „aðrar raun­eignir“ eins og bíla­stæði og sam­fé­lags­lega tengd þjón­usta eins og stræt­is­vagna­stöðvar.

Í aukaglæru­pakka er gert grein fyrir áætl­aðri tíma­setn­ing fyr­ir­sjá­an­legra verk­efna hvað varðar hag­ræna inn­viði. Þá tíma­línu má sjá á mynd­inni hér að neðan:

Þar er einnig fjallað sér­tækt um tæki­færi í sam­göngu­fram­kvæmdum, frá­veitu, orku­fram­leiðslu og við ýmis­konar láns­fjár­mögnun sam­hliða hluta­fjár­þátt­töku:

Skuldir afsökun til að afhenda sameiginlegar eigur

Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), fjall­aði um stöðu mála hvað varðar inn­viða­fjár­fest­ingar í pistli sem hún birti í gær. Þar segir hún kom­andi rík­is­stjórn, sem verður kynnt til leiks á morgun, standa frammi fyrir stórum spurn­ingum. Á meðal þeirra sé hvort verja eigi inn­viði sam­fé­lags­ins eða hvort nýta eigi tæki­færið með vísan til skulda rík­is­sjóðs til að „afhenda fjár­mála­öflum sam­eig­in­legar eigur og auka þannig ójöfnuð til að fáir útvaldir geti makað krók­inn.“

Í pistl­inum segir Drífa fjár­magns­eig­endur vera með fulla hendur fjár og þeir bíði eftir að kom­ast yfir sam­fé­lags­legar eigur því þar sé helsta gróða­vonin um þessar mundir. „Að reka hluta af grunn­innviðum fyrir ríkið „tryggir greiðslu­flæði“ eins og það heitir á fjár­mála­tungu­máli. Á venju­legu máli heitir það að vera með hend­urnar í vasa skatt­greið­enda, eða vera hrein­lega á rík­is­spen­anum. Inn­við­irnir verða að vera til staðar, þeir mega ekki klikka og því er ljóst að ríkið hleypur undir bagga ef í harð­bakk­ann slær. Þetta er módel sem getur ekki klikkað fyrir fjár­magns­eig­endur og hefur um ára­tuga­skeið verið kynnt fyrir almenn­ingi sem hag­kvæmni í rekstri. Ríkið hefur minnkað skuldir sínar með því að fá einka­að­ila til verka og bind­ast þeim svo not­enda- eða leigu­samn­ings­böndum um ókomna tíð, sem alla jafna eru dýr­ari fyrir skatt­greið­endur. Hag­kvæmnin er því aðeins til á pappír og í vösum fjár­magns­eig­enda.“

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ.

Drífa seg­ist hafa upp­lýs­ingar um að fjár­fest­ing­ar­sjóðir und­ir­búi inn­viða­sókn í traust þess að kom­andi rík­is­stjórn vinni með þeim að því mark­miði. „Það verður áhuga­vert að vita hvaða öfl innan stjórn­mál­anna munu leggj­ast á sveif með almenn­ingi í þessu máli og hvaða öfl ætla að leyfa fjár­magns­öfl­unum að vaða uppi. ASÍ mun fylgj­ast náið með þró­un­inni, en almenn­ingur verður líka að eiga sína hags­muna­verði í hópi stjórn­mála­manna. Saman eiga slíkir stjórn­mála­menn, verka­lýðs­hreyf­ingin og félaga­sam­tök að mynda öfl­ugt þrýsti­afl sem stendur vörð um vel­ferð, eignir og þjón­ustu sem við höfum byggt upp síð­ustu ára­tugi og eigum sem sam­fé­lag að njóta góðs af.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár