Starfshópur FIFA leggur til að HM 2022 í Katar verði að vetrarlagi

Eftir sex mánaða yfirlegu hefur sérstakur starfs­hópur á vegum Alþjóða­knattspyrnu­sambandsins (FIFA) nú lagt til að heims­meistara­keppnin í knatt­spyrnu karla, sem halda á í Katar árið 2022, verði haldin í lok nóvember til að forðast mikla sumarhita í Mið-Austur­löndum. Frá þessu er greint á vefsíðu FIFA en tillaga starfs­hópsins var lögð fram á lokafundi hans í Doha.

Samkvæmt fréttinni nýtur tillagan stuðnings allra sex aðildar­sambanda FIFA, en hún verður rædd á næsta stjórnar­fundi knattspyrnu­sambandsins dagana 19. og 20. mars næst­komandi.

Þá gerir tillaga starfs­hópsins ráð fyrir að heims­meistara­mótið verði styttra en venjulega í dögum talið. Samkvæmt heimildum fótbolta­síðunnar Teamtalk hefur komið til álita að mótið hefjist 26. nóvember og standi til 23. desember.

Ljóst er að tillagan um að færa heims­meistara­mótið í fótbolta mun mæta mikilli andstöðu frá evrópskum knattspyrnu­liðum, en ljóst er að tilfærsla mótsins mun hafa mikil áhrif á Meistara­deild EUFA og helstu knattspyrnu­deildir álfunnar.

Verði tillagan samþykkt, sem flest virðist benda til, mun leikja­dagskrá landsliða á árunum 2018 til 2024 taka breytingum sem og í helstu knattspyrnu­deildum heims.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár